14.11.1951
Sameinað þing: 14. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 329 í D-deild Alþingistíðinda. (3583)

183. mál, dilkakjöt

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð til þess að láta í ljós vonbrigði yfir að hafa ekki fengið glögg svör við þeim spurningum, sem ég beindi til hæstv. ráðh. En ég vil ítreka, að það verði upplýst, að hve miklu leyti útflutningsverðið til Bandaríkjanna er raunverulega hærra en innanlandsverðið á sambærilegu kjöti, en um það verður ekki vitað meðan ekki liggja fyrir upplýsingar um það, hvert er hlutfallið milli 1. og 2. flokks í því, sem fer til Bandaríkjanna. Í öðru lagi liggur ekki fyrir, hvaða áhrif þetta útflutningsverð, ef það er hærra en innanlandsverðið, hefur á kjötverð innanlands. En það er ljóst, að það hlýtur að eiga að hafa einhver áhrif af tvennum ástæðum. Ef það er betra kjöt, sem út er flutt, þá á verðið innanlands að lækka. Ef verðið á útflutta kjötinu er hærra en meðalinnanlandsverð, þá á innanlandsverðið líka að lækka. Þetta eru staðreyndir, sem skýrar upplýsingar þurfa að fást um, og ég mun, þó að siðar verði, gera ráðstafanir til að fá ótvíræðar upplýsingar um þessi atriði.