28.11.1951
Sameinað þing: 18. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 332 í D-deild Alþingistíðinda. (3591)
113. mál, kristfjárjarðir o. fl.
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Það er alveg rétt, sem hv. þm. V-Húnv. sagði, að í eyði eiga þessar jarðir ekki að þurfa að vera fremur en aðrar jarðir, því að þetta eru opinberar jarðir eða opinberar eignir, sem má eftir lögum um erfðaábúð og óðalsrétt byggja á erfðafestu.
En það er annað vandamál í sambandi við þetta, sem kemur fram í náinni framtíð viðkomandi sumum þessara jarða, sem er það, að sjóðir, sem eiga þær, — og er þeirri nefnd, sem hefur með höndum eftirlit með opinberum sjóðum, vel kunnugt um það, og í þeirri n. eru tveir hv. alþm., — þessir sjóðir eru sumir hverjir ekki annað en það verðmæti, sem í jörðinni stendur. Nú eru sumar af þessum jörðum orðnar þannig settar, að verðmæti sjálfs landsins er orðið ósköp lítið, samanborið við það verðmæti, sem búið er að festa í umbótum, svo sem byggingum og rafstöðvum á þessum jörðum. Og viðkomandi sumum þessum jörðum, sem búið er að fara þannig með, er það svo, að enginn lögmætur erfingi er, sem gæti tekið við jörðinni af ábúanda, þar sem sumir þessir ábúendur eru gamalmenni, sem ekki eiga aðra erfingja en fjarskylda ættingja. — Og eftir landslögum er það þannig um jarðir, sem eru á erfðaleigu, að jarðeigandi er skyldur til að leggja í kostnað til endurbóta á jörðinni. Í þessum tilfellum er jarðeigandinn jörðin sjálf, sem á ekki einn eyri. Og slíkum tilfellum, sem ég gat um, man ég eftir við mjög fljótlega athugun fjórum, þar sem stendur svona á. Og þar held ég, að ekki sé gott að komast utan um það að láta þessar jarðir gegna ætlunarverki sínu, nema með því að selja jarðirnar, þó að ég sé yfirleitt ekki með sölu þessara jarða. — Það hefur náttúrlega hver, sem á þessum jörðum býr, fullt leyfi til að byggja á þeim. En ég held, að það geti í sumum tilfellum verið alveg nauðsynlegt að selja þessar jarðir.