28.11.1951
Sameinað þing: 18. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 344 í D-deild Alþingistíðinda. (3610)

185. mál, Tryggingastofnun ríkisins

Fyrirspyrjandi (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Ég hef lagt þessar fyrirspurnir fram um kostnað og innheimtu iðgjalda Tryggingastofnunar ríkisins vegna þess, að reikningar næstliðins árs liggja enn ekki fyrir. Þeir reikningar stofnunarinnar hafa enn ekki verið birtir almenningi, og finnst mér því vera ástæða til að fá upplýsingar um þessi atriði. — Fyrirspurn þessi er í fjórum liðum:

1. Hvað margir menn vinna á aðalskrifstofu Tryggingastofnunar ríkisins í Reykjavík? Hve miklu námu launagreiðslur til þeirra árið 1950, og hver var annar kostnaður við skrifstofuna það ár?

2. Hvað mikið borgaði Tryggingastofnunin hverjum héraðsdómara um sig árið 1950:

a. í innheimtulaun,

b. í umboðsþóknun?

3. Hvað mikla umboðsþóknun borgaði Tryggingastofnunin hverju sjúkrasamlagi um sig árið 1950?

4. Hvað var mikið óinnheimt af iðgjöldum til Tryggingastofnunarinnar í árslok 1950 úr hverju tryggingarumdæmi:

a. frá árinu 1950,

b. frá fyrri árum?

Ég vænti, að þessar spurningar séu svo ljóst fram settar, að þær þurfi ekki frekari skýringar við.