12.12.1951
Sameinað þing: 23. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 351 í D-deild Alþingistíðinda. (3622)

186. mál, sænsk timburhús

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Við 1. lið er það að segja að ríkissjóður hefur endurgreitt hluta af innflutningstolli af sænskum húsum, sem flutt voru inn 1946. Nemur endurgreiðslan því, að verðtollur er færður niður í 10% og vörumagnstollur í 5 aura pr. kg, og er þá eftir skilinn ríflegur tollur til jöfnunar á aðflutningsgjaldi á efni til húsagerðar. Endurgreiddur hefur verið hluti tolla af 88 húsum innfluttum þetta ár.

Viðvíkjandi 2. lið, þá hefur verið endurgreiddur á sama hátt innflutningstollur af 19 húsum, sem til landsins komu í janúar 1947. Eitt hús hafði verið flutt inn árið 1945, en af því hafði aldrei verið greiddur tollur, svo að til endurgreiðslu kom ekki, þótt hún hefði verið talin koma til greina.

3. liður: Heimildin er í brááabirgðaákvæði l. nr. 44 1946. Þau l. voru sett í byrjun ársins, og var þá gert ráð fyrir og orðalagið við það miðað, að húsin kæmu til landsins á því ári, sem líka reyndist, að undanteknum 19 húsum, sem ekki komu fyrr en laust eftir nýárið. Kaupin á þeim 19 húsum fóru vitaskuld eins fram á árinu 1946, og mörgum þeirra var útskipað í erlendri höfn á því ári. Þannig kom auðvitað ekki annað til mála en láta sama gilda um þessi fáu hús sem hin, enda vafalaust, að Alþingi hefði kveðið svo á í upphafi, ef fyrir þessum möguleika hefði verið hugsað.

4. liður: Endurgreiðslan nemur 824 þús. kr. samanlagt, en vera má, að ekki hafi verið leitað endurgreiðslu fyrir 2–3 hús. Fjárhæðir þessar hafa verið greiddar í happdrættisskuldabréfum ríkissjóðs. Endurgreiðslan nemur að jafnaði 7700 kr. á hús, eða samtals ca. 678 þús. kr. fyrir hús flutt inn 1946 og 146 þús. kr. fyrir hús innflutt 1947.

Viðvíkjandi 5. lið, þá hafa þeir aðilar fengið endurgreiðsluna, sem eru eigendur húsanna á endurgreiðsludegi. Hafi þeir ekki verið eigendur frá upphafi, hefur verið staðreynt, að þeir hafi allt að einu verið látnir greiða tollinn í eða með kaupverðinu. Upphæð endurgreiðslu á hvert hús er sem næst 7700 kr., eins og áður segir.

Ég skal geta þess, að til Akureyrar voru flutt beint nokkur hús 1946, sem tollafgreidd voru með nokkuð öðrum hætti en í Reykjavík, þ. e. reynt var að greina í sundur unna vöru og óunna, og varð tollurinn þannig töluvert lægri en af sams konar húsum í Reykjavík. Átti þetta sinn þátt i, að óhjákvæmilegt þótti að neyta endurgreiðsluheimildarinnar.