16.01.1952
Sameinað þing: 32. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 359 í D-deild Alþingistíðinda. (3635)
159. mál, endurskoðun stjórnarskrárinnar
Fyrirspyrjandi (Karl Kristjánsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir svör hans, það sem þau ná.
Það kom greinilega fram í svörum hans, að n. hefur ekki treyst sér til þess að taka á verkefnum sínum, af því að hún hefur talið vanta starfsgrundvöll, sem hún hefur ætlazt til, að hinir fjórir pólitísku flokkar á Alþingi legðu sér til. Hún telur sig hafa beðið eftir fyrirsögnum frá flokkunum.
Íslenzkt stjórnmálalíf er í álögum fjögurra flokka greiningarinnar. Alþingi er í þeim álögum, og þau álög hafa lagzt á nefndina. Þau álög koma fram í ábyrgðarleysi og athafnaleysi. Allir flokkarnir fjórir eru minnihlutaflokkar. Ríkisstjórn, sem þarf að styðjast við tvo eða fleiri flokka, hver sem hún er, vinnur tæplega, nema þá á tímum skelfinga, heilsteypt verk heldur bræðingsverk, sem hvorugur eða enginn stjórnmálaflokkurinn telur sig bera ábyrgð á, ef illa gengur.
Stjórnarandstaðan verður líka óábyrg í sinni afstöðu og leyfir sér öfgar og áróðursfjarstæður, af því að hún veit, að hún mun aldrei ein taka við völdum, og þarf því aldrei að standa við sín stóru orð eða sýna, hvað hún getur.
Úr þessum álögum er hægt að leysa stjórnmálalífið með því að breyta stjórnarskránni, — breyta kjördæmaskipun og kosningafyrirkomulagi og aðskilja framkvæmdarvald og löggjafarvald betur en nú er gert. Eftir því bíður þjóðin. Nefndin á að gera tillögur um þetta. Hún getur einfaldlega leyst sig úr álögunum með því að taka til starfa að eigin sannfæringu, án fyrirsagna frá hinum vanmáttugu flokkum — og meira að segja hvað sem þeir segja. Það er hennar hlutverk.
Tími minn er svo takmarkaður, að ég get ekki rætt þetta stóra mál, stjórnarskrármálið, að þessu sinni í einstökum atriðum, enda ekki tilætlunin. En ég leyfi mér að skora á hæstv. dómsmrh., sem er formaður nefndarinnar, að láta n. taka hispurslaust til starfa, sjálfstætt og þjóðhollt, án þess að spyrja flokkana, hvað gera megi.