06.12.1951
Neðri deild: 37. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1401 í B-deild Alþingistíðinda. (3646)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o. fl.
Gylfi Þ. Gíslason:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir upplýsingarnar. Eitt atriði þarf ég þó að leiðrétta í ræðu hans. Ég sagði ekki í útvarpsumræðunum, að hæstv. ráðh. hefði ætlað að koma í veg fyrir birtingu skýrslunnar, heldur að hann hafi tafið fyrir birtingu hennar. Það er annað mál, en það er staðreynd.
Nú upplýsti hæstv. viðskmrh., að lokið hefði verið við skýrslu um þessi efni, og sagði, að ef þm. óskuðu þess, gætu þeir fengið að sjá hana. Ég fyrir mitt leyti mun notfæra mér þetta og óska eftir að sjá þessa skýrslu.