19.12.1951
Neðri deild: 50. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1402 í B-deild Alþingistíðinda. (3649)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o. fl.
Forsrh. (Steingrímur Steinþórsson):
Ég vil aðeins geta þess út af þessari fsp. hv. 2. þm. Reykv., að mér er með öllu ókunnugt um, að menn séu að skipa upp þeim farmi, sem hann nefndi hér. Ég hef ekki heyrt það og hef ekki hugmynd um, hvort þessi fregn er rétt eða ekki, og get ekki neinar upplýsingar um þetta gefið.