19.12.1951
Neðri deild: 50. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1402 í B-deild Alþingistíðinda. (3650)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o. fl.
Einar Olgeirsson:
Eins og hæstv. forsrh. sagði, veit hann ekkert um þetta, og trúi ég orðum hans. En eftir því, sem ég bezt veit, er mest allt slökkviliðið og mikið af lögreglunni við höfnina til þess að vera til taks, ef slys kynni að hljótast af þessu. Ég veit ekki betur en búið sé að skipuleggja mikið af vöruflutningabílum til að flytja þetta suður eftir, og eiga þeir að fara í samfelldri röð eða bílaflota, og er fyrirskipað að fara alveg sérstaklega varlega með tilliti til þess, að margar holur eru nú á veginum og efnið hættulegt og þolir ekki mikinn hristing.
En með því að hæstv. forsrh. veit ekkert um þetta mál enn þá, er það eindregin ósk mín, að ríkisstj. kynni sér málið í dag og búi sig undir að gefa yfirlýsingu um það, hvað hún álítur viðvíkjandi því, sem ég hef sérstaklega spurt um, hvort l. frá 1943, nr. 99, séu ekki enn í gildi og að ríkissjóður taki ábyrgð á hugsanlegu tjóni, þar sem eignir Reykvíkinga eru ekki vátryggðar gegn slíku.