04.01.1952
Sameinað þing: 29. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1406 í B-deild Alþingistíðinda. (3664)
Innflutningsréttindi bátaútvegsmanna
Atvmrh. (Ólafur Thors):
Herra forseti. Mér hefur verið falið að skýra frá samkomulagi því, sem náðist milli Landssambands íslenzkra útvegsmanna og ríkisstj. um framlengingu bátagjaldeyrisins þann 31. des. s. l. Ríkisstj. hefði viljað skýra frá þessu strax á fyrsta fundi þingsins, eða í gær, en þar sem öllum eru kunnar ástæður þær, sem komu í veg fyrir það, þá skal ég ekki fara nánar út í það.
Til þess að gera hv. þm. ljóst, hvað felst í þessu samkomulagi, ætla ég að leyfa mér að lesa hér upp í heilu lagi auglýsingu um innflutningsréttindi bátaútvegsmanna, sem birt verður í næsta Lögbirtingablaði. Auglýsingin er á þessa leið:
„Samkvæmt ósk ríkisstjórnarinnar og með tilvísun til samkomulags, sem hún hefur gert við Landssamband ísl. útvegsmanna 31. des. s. l., hefur verið ákveðið, að ákvæði í auglýsingu fjárhagsráðs, dags. 7. marz s. l., um innflutningsréttindi bátaútvegsmanna, sbr. viðaukaauglýsingar, dags. 17. apríl og 21. sept. s. l., skuli gilda um útfluttar bátaafurðir framleiddar árið 1952.
Ákveðnar hafa verið eftirtaldar breytingar á ákvæðum fyrrgreindra auglýsinga:
1. Innflutningsskírteini, sem gefin eru út vegna útflutnings, sem greiddur er í dollurum eða EPU-gjaldeyri (gjaldeyri aðildarríkja greiðslubandalags Evrópu), má nota til innflutnings á vörum á hinum skilorðsbundna frílista frá hvaða landi sem er. Sami innflutningslisti gildir því jöfnum höndum á dollarasvæðið og EPU-svæðið. Hins vegar eru tilteknar vörur á skilorðsbundna frílistanum bundnar við innflutning frá ákveðnum löndum, og um þann innflutning gilda óbreyttar reglur, sbr. auglýsingu, dags. 17. apríl 1951, og hér undir 3 B.
2. Bankarnir skulu afhenda Landssambandi ísl. útvegsmanna öll A-skírteini fyrir útfluttar bátaafurðir, framleiddar árið 1952, þó svo, að Sambandi ísl. samvinnufélaga skulu afhent A-skírteini fyrir bátaafurðir útfluttar á vegum þess.
3. Á hinn skilorðsbundna frílista skulu bætast eftirtaldar vörur;
Tollskrá :
Kafli.
Nr.
19
8, 10
Kex.
25
3
Steinmulningur (terazzo).
25
5
Eldfastur leir og mortel.
25
15
Marmari, óunninn, í söguðum eða
tilhöggnum stykkjum.
29
5
Kvikmyndafilmur, óframkallaðar.
39
13
Gólfmottur og kátsjúksetur.
44
42
Ferðakistur, ferðatöskur, fiðlu-
kassar og aðrir hljóðfærakassar,
hattaöskjur kventöskur, seðla-
veski, skjalamöppur og skóla-
töskur, skotfæratöskur og önnur -
þvílík veski, töskur og hylki,
ót. a., úr pappa og pappír, einnig
í sambandi við önnur efni.
46 A
7
Laufaborðar (blúndur),laufaborða-
efni; knipplingar, tyll og önnur
þess konar netofin efni úr
silki.
46 A
8
Leggingar, snúrur og aðrar þess
konar dregilvörur úr silki.
46 A
9
Hárnet úr silki.
46 A
10
Bönd og borðar úr silki, sem ekki
geta talizt dregilvörur eða
laufaborðar.
46 B
8
Laufaborðar, laufaborðaefni,knipp-
lingar, tyll, „eurtain nets“ og
önnur þess konar netofin efni
úr gerviþráðum.
46 B
9
Leggingar, snúrur og aðrar þess
konar dregilvörur úr gerviþráð-
um.
46 B
10
Hárnet úr gerviþráðum.
46 B
11
Bönd og borðar, sem ekki geta
talizt dregilvörur eða laufaborð-
ar, úr gerviþráðum.
46 C
1
Þráður úr alls konar spunaefnum,
vafinn eða tvinnaður með málm-
þræði.
46 C
2
Snúrur og leggingar á einkennis-
búninga o. þ. h. úr málmþræði.
46 C
3
Bönd, dregilvörur, laufaborðar,
knipplingar og tyll úr málm-
þræði.
46 C
4
Annar vefnaður og vörur úr
málmþræði.
47
6
Flauel og flos úr ull eða öðru
dýrahári.
47
13
Vefnaður úr ull eða öðru dýra-
hári, ót. a.
50
34
Vefnaðarvara úr silki, gervisilki
eða öðrum gerviþráðum, lökkuð,
ferniseruð o. s. frv.
51 1,
4-6
Prjónavörur úr silki.
51
7
Prjónavoð úr gervisilki og öðrum
gerviþráðum.
51
10
Nærfatnaður úr gervisilki og öðrum -
gerviþráðum.
Tollskrá :
Kafli.
Nr.
51
11
Vettlingar úr gervisilki og öðrum
gerviþráðum.
51
12
Aðrar prjónavörur úr gervisilki og
öðrum gerviþráðum.
52
6
Nærfatnaður úr gervisilki og öðrum
gerviþráðum.
58
22
Vegg- og gólfflögur úr gipsi svo
og aðrar plötur úr gipsi til
bygginga o. þ. h.
60
13
Vegg- og gólfflögur úr gleri.
63
99
Blöndunarhanar til baðkera, vaska
o. þ. h. úr járni, stáli eða öðrum
járnblöndum.
64
18
Blöndunarhanar til baðkera, vaska
o. þ. h. úr kopar.
73
84
Útvarpstæki, þó ekki varahlutar.
77
10
Kvikmyndatökuvélar sýningarvélar
fyrir mjófilmu svo og skugga-
myndavélar.
77
11
Sýningarvélar fyrir kvikmyndir,
ót. a.
82
8
Plastikþynnur í dúka.
82
9
Fatnaður, nema skófatnaður, úr
tilbúnum efnum.
82
10
Aðrar vörur úr tilbúnum mótanlegum
l efnum, ót. a.
84
8
Önglar með flugu eða öðru til-
búnu agni til lax- og silungs-
veiða.
84
10
Lax- og silungsveiðarfæri.
84
11
Fiskistengur og lausir liðir í þær.
85
2
Sjálfblekungar, skrúfblýantar og
pennastengur úr öðru en góð-
málmum.
B. Frá Austurríki, Finnlandi, Ísrael, Póllandi,
Spáni, Tékkóslóvakíu og Ungverjalandi.
Tollskrá:
Kafli.
Nr.
8
36
Hnetur, einnig muldar, ót. a.
34
7
Eldspýtur.
44
30
Pentudúkar (servíettur), borð-
dreglar, borðdúkar, vasaklútar,
hilluborðar og aðrir laufaborðar
úr pappír og pappa.
84
6
Jólatrésskraut alls konar.
Listar þessir eru samdir í samræmi við tollskrána í lögum um tollskrá o. fl., og þar sem fram er tekið í texta listans, að um sé að ræða vörur ótaldar annars staðar (ót. a.), er miðað við tollskrána í heild, en ekki ofangreindan lista eingöngu.
4. Innflutnings- og gjaldeyrisleyfi fyrir vörum þeim, sem taldar eru hér að framan undir 3. tölulið, sem féllu úr gildi 31. des. s.l., verða ekki framlengd.
5. Vörur þær, sem hafa verið á frílista, en eru nú tilgreindar undir 3. tölulið að framan, þ. e. tollskrárnr. 51/10, nærfatnaður, prjónaður úr gervisilki og öðrum gerviþráðum, má tollafgreiða án afhendingar B-skírteinis, hafi gjaldeyrir verið tryggður af banka til greiðslu þeirra fyrir 31. des. 1951, og skulu þær háðar verðlagsákvæðum. Innflytjendur skulu snúa sér til verðlagsskrifstofu fjárhagsráðs með verðútreikninga.
Aðrar vörur á skilorðsbundnum frílista eru óháðar verðlagsákvæðum. Þó skulu verðákvarðanir fjárhagsráðs á vöru, sem þegar hefur verið tollafgreidd, halda gildi sínu. Óheimilt er að hækka verð á birgðum þeim, sem til eru í landinu, af vörum þeim, sem taldar eru í þessari auglýsingu.
6. Ákvæði 1. og 3. töluliðs gilda einnig um innflutning gegn B-skírteinum, sem útgefin hafa verið eða verða útgefin vegna útflutnings bátaafurða, framleiddra árið 1951.
7. Heimilað er, án innflutnings- og gjaldeyrisleyfa, að flytja inn bifreiðar frá Tékkóslóvakíu gegn sérstökum B-skírteinum fyrir allt að 1 milljón króna. Bifreiðar þær, sem innfluttar verða samkvæmt þessu, eru undanþegnar verðlagsákvæðum.
8. Enn fremur hafa verið ákveðnar eftirtaldar breytingar á fyrri auglýsingum:
Tollskrá :
Kafli.
Nr.
8
6
Epli, ný.
20
4
Ávextir, niðursoðnir.
20
5, 6
Aldinsulta, aldinhlaup og aldin-
mauk.
Þessar vörur er aðeins heimilt
að flytja inn frá löndum, sem
talin eru undir 3. tölulið B hér að
framan. Heimilt er þó að flytja
inn á sama hátt og áður ofan-
greindar vörur gegn B-skírteinum,
sem gefin voru út fyrir birtingu
þessarar auglýsingar.
63
88
Salerni og tilheyrandi vatnskassar,
þvagskálar, þvottaskálar, eldhús-
vaskar og hlutar til þeirra, allt
úr járni og stáli, skal vera á
skilorðsbundnum frílista frá öll-
um löndum.
76
1
Flugvélahreyflar og varahlutar í
flugvélar eru teknir af skilorðs-
bundnum frílista.
73
58a
Duflaljósker eru tekin af skilorðs-
bundnum frílista.“
Þetta var hin nýja auglýsing um innflutningsréttindi bátaútvegsmanna, sem byggð er á samkomulagi ríkisstj. við Landssamband ísl. útvegsmanna.
Hagur útvegsins er nú svo slæmur, eins og öllum er kunnugt, að ekki hefur verið unnt að svipta hann þeim fríðindum, sem honum hafa verið veitt hingað til. Það, sem veldur því, að hagur útvegsins er svo slæmur sem raun ber vitni, er hinn stöðugi aflabrestur, sem orðið hefur undanfarin ár, og ekkert annað en aflabresturinn. T. d. má á það benda, að meðalþorskafli á bát í róðri á vetrarvertíðinni hér við Faxaflóa var 1949 7.1 tonn, 1950 6.1 tonn, en aðeins 5.3 tonn 1951. Síldarvertíð hefur brugðizt algerlega ár eftir ár og haustsíldarvertíð nær alveg brugðizt, svo að varla mun nægjanleg beitusíld til í landinu fyrir vertíðina.
Ríkisstj. skipaði fimm manna nefnd til athugunar á þessum vandamálum. Í nefndinni eru: Gunnlaugur Briem og Þórhallur Ásgeirsson, skrifstofustjórar í atvmrn. og viðskmrn., Benjamín Eiríksson, ráðunautur ríkisstj. í efnahagsmálum, Davíð Ólafsson fiskimálastjóri og Sigtryggur Klemenzson úr fjárhagsráði. Hefur n. þessi starfað í marga mánuði og kynnt sér hag bátaútvegsins og hverjar þarfir hans séu og hvaða leiðir hægt sé að fara til úrbótar, án þess að almenningi sé íþyngt um of. Er því niðurstaða sú, sem hér hefur verið lýst, byggð á mjög ýtarlegri rannsókn þessara manna, sem af öllum eru taldir hinir hæfustu og hlutlausir um þetta mál.
Aðalatriði þessa máls er, að hagur bátaútvegsmanna er svo aðþrengdur, þar sem nær flestir þeirra hafa orðið að fara í skuldaskil, að ekki er unnt að taka þau fríðindi af þeim, sem þeir hafa haft, nema til þess að veita þeim önnur í staðinn. Það er því gert af brýnni nauðsyn og knýjandi, að farið er inn á þessa braut, og að dómi stjórnarinnar skárra úrræði en að leggja nýja skatta á þjóðina, eins og stjórnarandstæðingar hafa bent á, að gera ætti, enda mundu slíkir skattar mun þungbærari fyrir þjóðina en sú leið, sem hér er farin.
Þá vil ég geta þess, að á s. l. hausti kvaddi ríkisstj. hingað til lands fulltrúa frá alþjóðagjaldeyrissjóðnum, svo að hann gæti kynnt sér þessi mál, en eins og kunnugt er eru Íslendingar aðilar að þeim sjóði og verða að fara eftir þeim lögum, sem um hann gilda. Samkv. þeim lögum mega aðildarríkin ekki breyta gjaldeyri sinum án samþykkis sjóðsstjórnarinnar nema innan mjög þröngra vébanda. Féllst sjóðsstjórnin á, að gripið yrði til þeirra úrræða, sem hér hefur verið lýst, og er hér alls ekki um neina gengisbreytingu að ræða. Íslendingar þurfa því ekki að bera neinn kvíðboga fyrir því, að lög gjaldeyrissjóðsins hafi verið brotin með þessum aðgerðum.
Þetta samkomulag við útvegsmenn hefur ríkisstj. gert í samráði við þingmenn stjórnarflokkanna og tryggt sér öruggt þingfylgi með því. En þetta mál er þess eðlis, að ekki er unnt að skýra frá því opinberlega fyrr en um leið og ákvæðin eru sett, því ef menn fengju vitneskju fyrir fram um þær breytingar, sem gerðar yrðu, væri hætta á, að af því skapaðist ýmiss konar misferli og menn gætu hagnazt á því óeðlilega.
Ég sé svo ekki ástæðu til á þessu stigi málsins að hafa um þetta fleiri orð.