23.01.1952
Efri deild: 70. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1433 í B-deild Alþingistíðinda. (3697)
Starfslok deilda
forseti (BSt):
Þrátt fyrir það að hér hafa verið samþ. breyt. á frv., sem gera það að verkum, að þau þurfa að ganga aftur til Nd. og jafnvel megi búast við, að Nd. fallist ekki á þessar breyt. og sendi eitt eða fleiri af þessum frv. hingað aftur, geri ég þó ráð fyrir, að þetta verði síðasti fundur d. á þessu þingi. Það getur að vísu komið fyrir, að nauðsynlegt þyki að kalla saman fund, en ég geri þó ráð fyrir hinu.
Ég vil þá í fyrsta lagi biðja um umboð til þess að ganga frá tveimur síðustu fundargerðum d. og skoða þær samþ. án atkvgr., ef enginn mælir því í gegn.
Í öðru lagi og einkum vil ég leyfa mér að þakka þdm. fyrir samvinnuna á þessu þingi og ágæta samvinnu við mig sem forseta deildarinnar. En þó að allir eigi þar hlut að máli, vil ég þó sérstaklega þakka starfsmönnum d. aðstoð við mig, bæði varaforsetum og skrifurum deildarinnar. Ég vil óska öllum þdm., sem eiga heima utan þessa bæjar, góðrar heimferðar og góðrar heimkomu, og öllum þm. óska ég alls hins bezta og þó sérstaklega þess, að þetta ár, sem nú er ekki langt liðið á, verði þeim farsælt.