16.01.1952
Sameinað þing: 32. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 288 í D-deild Alþingistíðinda. (3744)

137. mál, landhelgisgæsla á Breiðafirði og sunnan við Snæfellsnes

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Það er hinn mesti misskilningur hjá hv. þm. Snæf. að tala hér um mótspyrnu eða andúð gegn landhelgisgæzlu við Snæfellsnes og á Breiðafirði. Það, sem menn verða að gera sér grein fyrir í þessu máli, er, að sú fjárveiting, sem ætluð er í fjárlögum til landhelgisgæzlu, er byggð á þeim forsendum, sem hv. alþm. hafa átt kost á að kynna sér og hafa kynnt sér, ef þeir hafa haft áhuga fyrir landhelgismálum. Þess vegna er það ljóst, að þeir, sem vilja breyta þeim ráðagerðum, sem í fjárlagafrv. var gengið út frá, verða annaðhvort að leggja til, að dregið verði úr landhelgisgæzlunni á öðrum stöðum, svo að hægt verði að auka hana þar, sem þeir óska, eða þá þeir verða að útvega fé til aukinnar landhelgisgæzlu á þeim stöðum, sem þeir hafa áhuga fyrir. Þetta er það, sem ég hef sagt við alla þá þingmenn, sem hafa snúið sér til mín um þetta mál, að auðvitað vildi ég helzt hafa landhelgisgæzluna sem bezta, en fjárveitingin væri takmörkuð og ef þeir vildu auka hana fram yfir það, sem fjárveitingin leyfði, þá yrðu þeir sjálfir að útvega fé til þess. Og ég vildi því segja við minn ágæta vin, hv. þm. Snæf., að auðvitað hefði verið eðlilegast, að hann hefði beitt sér fyrir hærri fjárveitingu við setningu fjárlaganna í þessu skyni, ef hann telur, að hagsmunum sinna kjósenda sé ekki nógu vel fyrir séð. Auk þess veit hv. þm. það, að fjárveitingin til landhelgisgæzlunnar var nú hækkuð m. a. með þetta fyrir augum, að hægt yrði að sinna að einhverju því, sem felst í till. hans. Það þýðir því ekki að láta í það skína, að það eigi að svipta Snæfellinga einhverjum hlunnindum, því að ef hann skoðaði þál. þá, sem samþ. var í fyrra um þetta efni, bindandi um alla framtíð, þá væri hann ekki að koma með þessa till. nú. Og honum er kunnugt um það, að búið er að ákveða í stórum dráttum, hvar gæzluskipin skuli starfa, en ef það á að auka skipakostinn og gæzlustarfið, þá verður að hafa komið fram um það vilji Alþ.