06.12.1951
Efri deild: 38. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 184 í B-deild Alþingistíðinda. (377)

6. mál, togarakaup ríkisins

Forsrh. (Steingrímur Steinþórsson):

Herra forseti. Þetta verða aðeins örfá orð. Ég ætla ekki að fara að ræða þau ummæli, sem hv. þm. Barð. hafði hér í frammi. Hv. þm. er fróður maður um flest, sem útgerð viðvíkur, en skoðun hans í þessu máli er ekki í samræmi við skoðanir ríkisstjórnarinnar.

Það hefur mikið að segja fyrir þessi héruð, sem gert er ráð fyrir að fái þessi skip, að fá þau til þess að bæta úr atvinnuástandinu og glæða atvinnulífið. Hvað á t.d. að gera við Þingeyringa, þegar slíkt vandræðaástand um atvinnuskilyrði hefur skapazt? Á að flytja þá í burtu eitthvað annað? Að athuguðu máli þótti sýnt, að hér væri um úrræði að ræða, sem reynandi væri. Ég vona, að spár hv. þm. Barð. rætist ekki. Hins vegar getum við deilt um þetta mál síðar, þegar sýnt verður, hvernig úr rætist. Hins vegar vildi ég mótmæla þeim ummælum, sem hv. þm. hafði hér í frammi varðandi þau skip, sem tekin voru til meðferðar í þessum efnum. Hv. þm. má vera ljóst, að ríkisstj. hefur ekki verið með neinn leikaraskap í þessu máli og gerir þetta ekki að gamni sínu, en þarna var um innlend skip að ræða, sem margir töldu að gera mætti út.