10.12.1951
Neðri deild: 39. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 191 í B-deild Alþingistíðinda. (400)

117. mál, tekjuskattsviðauki, lækkun skatts af lágtekjum o. fl.

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Ég tel þá lausn, sem hér er gert ráð fyrir á því vandamáli að leiðrétta það ranglæti, sem felst í núgildandi skattal., t.d. varðandi samsköttun hjóna, ekki vera nægilega og verulega gallaða, enda hef ég flutt frv., sem gerir ráð fyrir gagngerðum breyt. til úrbóta á því vandamáli. Hins vegar tel ég, að í þessari brtt. felist bót frá því ástandi, sem nú er og ég tel vera fráleitt, og segi því já.