17.12.1951
Efri deild: 45. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 191 í B-deild Alþingistíðinda. (410)
117. mál, tekjuskattsviðauki, lækkun skatts af lágtekjum o. fl.
Frsm. meiri hl. (Þorsteinn Þorsteinsson):
Herra forseti. Frv. þetta, sem hér er á ferðinni, er ekki annað en framlenging á l., sem áður hafa verið samþykkt á fyrri þingum. Fjhn. hefur athugað frv. og sér ekki ástæðu til annars en að verða við því að leggja til, að l. þessi verði framlengd. Hins vegar hefur einn nm., hv. þm. Barð., sett það að skilyrði fyrir fylgi sínu við frv., að á eftir 5. gr. komi ný grein, þar sem ríkisstj. verði gert að láta fara fram endurskoðun á skattalöggjöfinni, sem lokið verði áður en næsta reglulegt Alþingi kemur saman. Meiri hl. fjhn. áleit, að þetta viðbótarákvæði, sem felst í brtt. hv. þm., ætti ekki heima í þessu frv., en væri mál út af fyrir sig. Þess vegna var það, að við í meiri hl. vildum, að frv. yrði samþ. óbreytt, en við erum reiðubúnir að fylgja hv. þm. Barð. um þetta sama atriði, þegar aðstæður eru aðrar. Við höfum orðið sammála um það, að réttara væri að koma þessum fyrirmælum til ríkisstj. með öðrum hætti. Við í meiri hl. leggjum því til, að málið verði samþ. óbreytt. — Einn nefndarmanna (BrB) var fjarstaddur við afgreiðslu málsins.