18.10.1951
Neðri deild: 14. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 194 í B-deild Alþingistíðinda. (426)
60. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna
Stefán Jóh. Stefánsson:
Herra forseti. Þetta litla frv., sem hæstv. fjmrh. mælti með nokkur orð, er stærra en það virðist vera við lauslega athugun þskj. og ræðu hæstv. ráðh. Hér er um að ræða framlengingu á söluskattinum, sem settur var á 1948, en hækkaður 1950, að framlengja hann út árið 1952. Það dylst engum, sem fylgist með almennum málum, hve mikilli óánægju meðal almennings þessi skattur hefur valdið og hve þungt hann liggur á landsbúum. Einnig veldur þessi skattur mikilli hækkun á dýrtið og gerir sitt til að viðhalda háu vöruverði. Sú dýrtíð er orðin mikil og þungbær. Það hefur líka komið í ljós, er söluskatturinn var hækkaður 1950 í 7%, að hann hefur gefið meiri tekjur en áætlað var 1951 eða yfirstandandi ár. Mér virðast einnig líkur til, að hann gefi meiri tekjur en ætlað er í fjárl. Alþ. nú. Eftir upplýsingum hæstv. fjmrh. mun söluskatturinn nema 50 millj. kr. En fróðir menn telja, að hann verði nær 90 en 80 millj. kr. Þar sem það er og upplýst af hæstv. ráðh.. að verulegur rekstrarafgangur verði á fjárl., þá held ég, að Alþ. ætti að hugsa sig um tvisvar að framlengja þennan háa skatt fyrir árið 1952.
Flokksstjórn Alþfl., sem nýlega var saman á fundi, ræddi meðal annars tolla- og skattamál og ályktaði, að það bæri að vinna að afnámi söluskatts af nauðsynjavörum. Í samræmi við þetta vildi ég láta í ljós andstöðu mína við þetta frv. um framlengingu söluskatts árið 1952. Ég hygg, að það mundi vera hægt að færa tvenn rök fyrir afnáminu eða stórlegri lækkun söluskattsins. Í fyrsta lagi mundi allt verðlag fara lækkandi í landinu. Í öðru lagi mundi ekki stefnt í ófæru varðandi tekjuöflun til handa ríkissjóði. Af þessum tveim ástæðum og því, hvað skatturinn hefur verið óréttlátur og einnig reynzt meiri en áætlað var, held ég, að færa megi fullgild rök fyrir lækkuninni. Hann var á lagður 1948 til þess að standa straum af styrk til bátaútvegsins og til að greiða niður verð á nauðsynjavörum. Nú er þessum tveim ástæðum ekki til að dreifa, þar sem styrkur til bátaútvegsins hefur verið felldur niður og niðurgreiðslu á vörum er hætt. Með þessu tvennu er fallin niður sú ástæða, sem var orsök til þess, að hann var lagður á í árslok 1948. Þótt ég og minn flokkur stæðum að því að leggja hann á, — að vísu vildum við hafa hann lægri, — þá eru ástæðurnar fyrir álagningu hans ekki lengur fyrir hendi. Mér hefur skilizt, að sú ríkisstj., sem stóð fyrir gengislækkuninni, hafi ætlað að draga úr þeim sköttum og tollum, sem lagðir voru á til þess að forðast gengisfellingu með því að styrkja bátaútveginn og greiða niður vörur. Vil ég því láta þetta koma í ljós á þessu stigi málsins. Auk þess hefur legið á því grunur, að skattur þessi hafi verið misnotaður. Erfitt hefur verið um framkvæmdir á innheimtu söluskattsins. Hygg ég, að söluskattinn, sem lagður var á alla þjónustu, sé erfitt að tryggja þannig, að hann renni allur í ríkissjóð. Þetta er einn af þeim göllum, sem eru á framlengingu skattsins. Það ætti að vera nægilegt fyrir almenning að greiða 80–90 millj. í skatt, þótt ekki sé þannig frá honum gengið. Þetta vildi ég einnig segja, áður en málið fer til atkvgr. Við 2. umr. mun tækifæri gefast til að koma með breytingartillögur.