23.10.1951
Neðri deild: 17. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 217 í B-deild Alþingistíðinda. (438)
60. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna
Stefán Jóh. Stefánsson:
Herra forseti. Það voru nokkur atriði í ræðu hæstv. ráðh., er hann vék að því, hvað ég hefði sagt hér í umr. í gær. Hæstv. fjmrh. talaði um í ræðu sinni, að ekki þyrfti að undra, þó að hér væri lagður á söluskattur, því að þessi leið væri farin annars staðar, og nefndi hann sem dæmi, að í Noregi væri 10% söluskattur. Þetta er rétt, en það þarf að skýra það nánar. Áður en söluskatturinn í Noregi var hækkaður upp í 10%, var honum varið til niðurgreiðslu á nauðsynjum. En eftir að skatturinn var hækkaður í 10%, er hann notaður til að bera kostnað af sívaxandi hervæðingu. En nú er svo komið, að niðurgreiðslur er litlar á Íslandi og við þurfum ekki að standa straum af hervæðingu. Þess vegna þurfum við ekki að sækja fyrirmyndina til Norðurlandanna, þar sem þau hafa við önnur viðfangsefni að glíma.
Hæstv. ráðh. sagði, að ekki væri um annað að ræða en samanburð á ríkisreikningnum 1949 og áætlun 1952. Ég játa, að hæstv. ráðh. tók skýrt fram, að samanburðurinn var gerður á reikningi og áætlun. Hæstv. ráðh. hafði líka annað til samanburðar, þ.e. áætlun 1949 og 1952, hann hefur ekki athugað þetta, en ég ætla, að niðurstaðan verði nokkuð önnur en hæstv. ráðh. fékk. — Hann sagði einnig, að ef hv. þm. vildu bera fram till. um að minnka tekjur ríkissjóðs, yrðu þeir að benda á, hvernig ríkið ætti að standa straum af kostnaði sínum. Ég gat þess, að það væri sannfæring mín, að hægt sé að afgreiða greiðsluhallalaus fjárlög, þó að söluskatturinn verði afnuminn. Við afgreiðslu fjárl. mun gefast tækifæri til að ræða þetta nánar. Ég hygg, að við Alþfl: menn munum bera fram rök fyrir því, að hægt sé að afnema söluskattinn án þess að afgr. fjárl. með greiðsluhalla.
Hæstv. ráðh. spurði mig, hvort það væri mín ætlun, að ekki ætti að greiða lausaskuldir, sem safnazt hafa fyrir undanfarið. Ég segi, að það sé óeðlilegt og óréttlátt að skattpína almenning til að greiða á örskömmum tíma skuldir, sem af illri nauðsyn varð að stofna til. Ég álít, að skuldir eigi að greiðast, en það eigi ekki að skattpína almenning til að greiða þær á skömmum tíma.
Hæstv. atvmrh. er ekki staddur hér í d. núna, en hann virtist ætla að koma fram stefnubreyt. í þessu máli, — enda virðist hnífurinn ekki ganga á milli þessara ráðh. í stefnu ríkisstj. — Þegar hann varpaði fyrirspurn til mín, þóttist hann hafa matadora á hendi, en ég held, að þeir hafi reynzt lághundar. Hann sagði, að mín ríkisstj. hefði lagt fjárl. fyrir árið 1950 fyrir þingið í nóv. 1949 og þar hafi verið gert ráð fyrir söluskatti, en ekki útflutningsuppbótum til bátaútvegsins. Þetta er rétt, það sem það nær. En það þarf ekki að skoða þau fjárl. lengi til að sjá, að söluskattur er áætlaður 36 millj. og dýrtíðarráðstafanir nærri jafnmiklar. Í beinu framhaldi af l. frá 1948 var lagt til, að söluskatturinn yrði notaður til að greiða niður nauðsynjar og til að styðja bátaútveginn. Það þarf ekki annað en fletta upp í fjárl. frá þeim tíma til að sjá þetta. Rétt eftir kosningarnar 1949 baðst ég lausnar fyrir mig og ráðuneyti mitt, því að þeir flokkar, sem gengu til kosninga, voru með gengislækkun á prjónunum. Ég og minn flokkur vorum andvígir þessu og töldum rétt, að aðrir flokkar kæmu með sin úrlausnarefni. Þáverandi stjórn taldi rétt að binda ekkert fyrir hið nýkjörna Alþingi, þó að hún hafi lagt fram fjárl., sem gerðu ráð fyrir söluskatti og svipaðri upphæð til dýrtíðarráðstafana. Það má segja, að samanburður á fjárl. 1950 og nú sýni sitt hvað, þar sem ráðh. áætlar söluskattinn 77 millj. kr., en dýrtíðarráðstafanir 25 millj. Eftir áætlun eru því 52 millj. af söluskatti, sem fara til beinna útgjalda ríkissjóðs. Tilgangur söluskattsins er því allt annar nú en 1948 og 1949. Það lágu bein og óbein loforð um, að gengislækkunin létti af skattaálögunum. Það er ekki von, að við stjórnarandstæðingar göngum inn á að leggja á þungan söluskatt sem almennan eyðslueyri fyrir ríkissjóð. — Ég sé ekki ástæðu til að taka fleira fram um þetta núna. Það gefst tækifæri til þess síðar að ræða höfuðatriði þessa máls og stjórnarstefnuna.