11.12.1951
Neðri deild: 41. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 237 í B-deild Alþingistíðinda. (459)

60. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Pétur Ottesen:

Í samkomulagi, sem á sínum tíma varð um samstarf þeirra stjórnmálaflokka, sem nú standa að ríkisstj., var það eitt atriðið að afgr. hallalaus fjárl., og að afgreiðslu fjárl. á síðasta Alþ. var unnið með það fyrir augum, og allt til þessa hafa Alþ. og fjvn. unnið að afgreiðslu fjárlaga út frá þessu sama sjónarmiði. En eins og málin standa nú sé ég ekki, að hægt sé að framfylgja þessu, ef skertar verða tekjur ríkissjóðs. Þess vegna segi ég nei við þessari till.