18.12.1951
Efri deild: 48. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 244 í B-deild Alþingistíðinda. (471)
60. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Herra forseti. Þetta frv., sem er hingað komið frá hv. Nd., fjallar um framlengingu söluskattsins. Á því var gerð sú breyting í Nd. frá því, sem var þegar það kom frá stj., að nokkur hluti söluskattsins skuli renna til bæjar- og sveitarfélaga. Nú álítur ríkisstj., að ekki sé hægt að afgreiða greiðsluhallalaus fjárlög, nema ríkið haldi tekjustofnunum óbreyttum frá því, sem var s.l. ár. Vil ég því beina því til hv. deildar að fara fram á það, að hún breyti frv. aftur í sama horf og það var lagt fram í af hálfu stj.
Í sambandi við þetta mál vil ég skýra frá því, að stj. hefur gert samkomulag um að leggja til við Alþ., að af greiðsluafgangi þessa árs verði varið nokkru fé til viðbótar þeim 30 millj., sem áður var orðið samkomulag um. Þetta viðhótarsamkomulag er um að leggja til við Alþ. að verja 5 millj. kr. af þessum afgangi til greiðslu á vangoldnu ríkissjóðsframlagi til skólabygginga og 2 millj. til greiðslu vangoldinna framlaga til hafnargerða og lendingarbóta. Auk þess verði ein millj. veitt til veðdeildar Búnaðarbankans sem lán. Þannig er lagt til, að ráðstafað verði 8 millj. til viðbótar við þær 30 millj., sem áður hafði náðst samkomulag um og tilkynnt hafði verið um hér á Alþ. Með þessu er að vísu teflt á tæpasta vaðið, þar sem ráðgert er að verja 38 millj. af 50, sem gizkað er á að afgangurinn nemi, einkum þegar þess er gætt, að komið hefur í ljós, að í desember muni tekjurnar reynast lakari en ráð var fyrir gert. Samt hefur stj. ákveðið að hætta á að gera þetta, vegna þess að nauðsynlegt er að greiða nokkra fúlgu upp í þau vanskil, sem orðið hafa í framkvæmd þessara mála, bæði skóla- og hafnarmála.