18.12.1951
Efri deild: 49. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 257 í B-deild Alþingistíðinda. (485)
60. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Það eru nokkrar leiðréttingar út af því, sem komið hefur hér fram. Hv. 4. þm. Reykv. vildi reyna að vefengja það, að ekki væri lögð verzlunarálagning á söluskattinn. Og ég spyr: Hvernig veit hann það? Ég veit ekki annað en allmiklar deilur hafi verið um það, hversu mikil álagningin skyldi vera á ýmsum vörum. Og ég spyr hv. 4. þm. Reykv.: Hefur hann þetta frá verzlunarlögunum, að það sé lögð álagning á söluskattinn? Ég veit, að hann hefur það ekki þaðan, því að útilokað er, að það sé lagt á hann.
Hv. þm. átaldi hæstv. ráðh. fyrir tekjuöflunina á síðasta ári. Mér þykir rétt að svara nokkrum þeim átölum. Ég tel ósanngjarnt að átelja ráðh. einan fyrir þessa áætlun. Og ég skammast mín ekkert fyrir það að taka með honum ábyrgðina í þessu máli. Það var fullkomið samkomulag í meiri hl. fjvn. um, að það skyldi ganga þannig frá tekjuáætluninni, að öruggt væri, að skilað yrði greiðsluhallalausum rekstrarreikningum, þó að ekki yrði breytt verzlunarálagningunni í landinu. Hv. þm. sagði einnig. að hann væri viss um, að tekjurnar færu langt yfir 400 millj. kr. Ég vil taka undir það með ráðh., að það er alveg útilokað, að það þurfi ekki meira en 400 millj. kr. til þess að skapa hallalausan ríkisrekstur á næsta ári. Það er þegar vitað, að gjöldin á þessu ári verða hátt upp undir 400 millj. kr. á ríkisreikningunum. Og það er ekki útlit fyrir, að minni útgjöld verði hjá ríkissjóði á næsta ári, svo að ábyrgðarleysi er að ætla sér að afgreiða nú fjárlögin ekki hallalaus, þar sem tekjurnar eru ekki 400 millj. kr.
Þá var hv. 1. landsk. þm. að tala um skyldur ríkissjóðs um að greiða framlag til skóla, og vil ég þá, að hv. þm. fái upplýsingar um það, úr því að hann veit ekki betur og þó að hann sjálfur hafi verið ráðh. og hafi haft þetta með höndum. Það er tekið fram í stjórnarskránni, að það megi enga greiðslu inna af hendi, nema standi í fjárlögum. Þess vegna væri ómögulegt að greiða þessi framlög, nema það standi í fjárlögum. Ætlast hv. þm. til, að ég geti breytt stjórnarskránni? Ég hef prófað, að þeir menn, sem vilja telja sig ábyggilega menn, halda því fram, að það sé ekki skylda að leggja fram umframgreiðslur í fjárlögum.
Ég vil einnig í sambandi við það, sem hefur komið fram hjá minni hl., hv. 1. landsk. þm., í sambandi við afgreiðslu fjárlaganna, henda á, að hann hefur hvað eftir annað lagt til, að söluskatturinn félli niður eða 77 millj. kr., og hvað eftir annað talað um, að þeir eða hans flokkur vildu feila niður svo og svo mikið af rekstrargjöldum ríkissjóðs. Og þessi hv. þm., sem er formaður kommúnistaflokksins og á að hafa einhvern snefil af ábyrgðartilfinningu, bar um daginn fram till. á þskj. 336 um að leggja á ríkissjóð meira en 60 millj. kr. byrði á næsta árs fjárlögum, m.ö.o. að fella niður greiðslur til almannatrygginganna frá einstaklingum og láta ríkissjóð taka við þeim, en það næmi 60 millj. kr. á ári. Svo er þessi maður að tala um, að það þurfi enga skatta og tolla í landinu. Hvaðan ætlar hann að taka þetta fé? Ætlar hann að láta því rigna niður úr himninum? Ég skil ekki, hvernig þm. getur komið með svona fjarstæðu og ætlað mönnum að taka hana gilda.
Ég ætla aðeins að benda á það til að sýna þá fjarstæðu, sem hér kom fram, þegar hv. 1. landsk. þm. sagði, að lagðar séu þúsundir króna á hvern bita og sopa, sem fátæklingarnir í landinu kaupa. Það er ekki lítið, þegar allt er komið saman, ef lagðar eru þúsundir króna á hvern bita og sopa, sem hver fátæklingur neytir í landinu. — Þetta eru rökin, sem við eigum að mæta í þessu máli.