19.12.1951
Neðri deild: 50. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 263 í B-deild Alþingistíðinda. (496)
60. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna
Gunnar Thoroddsen:
Það er óvefengjanlegt, að bæjar- og sveitarsjóðir þurfa nauðsynlega á nýjum tekjustofnum að halda til þess að standa undir sívaxandi útgjöldum, sem sumpart eru á þau lögð með lögum og sumpart stafa af aukinni dýrtið. Þess vegna flutti ég brtt. við 2. umr. þessa frv., — í samræmi við óskir bæjarstjóra allra kaupstaða landsins, — um að fjórðungi söluskattsins skyldi skipt milli allra bæjarsjóða og hreppssjóða í réttu hlutfalli við íbúatölu. Var sú tillaga samþykkt.
Ráðherrar Framsfl. hafa lýst yfir því, að þeir muni rjúfa núverandi stjórnarsamstarf, ef Alþingi ákveður, að bæjar- og hreppsfélögin fái hluta af söluskatti. Þó að það sé varhugaverð braut að láta Framsfl. komast upp með að stöðva nauðsynjamál með slíkum viðbrögðum, hefur Sjálfstfl. ekki talið henta hagsmunum þjóðarinnar, að stjórnarsamstarfið verði rofið að svo stöddu.
Ég vil taka það fram, að ég er sömu skoðunar og ríkisstj. um það, að afgreiða beri greiðsluhallalaus fjárlög. Hef ég bent henni á leiðir, sem ég tel vel færar til þess að tryggja slíka afgreiðslu, þótt hluti söluskattsins rynni til sveitarfélaga.
Innan ríkisstj. hefur nú orðið samkomulag um að ganga nokkuð til móts við aðrar kröfur og þarfir sveitarfélaga á þann hátt að leggja til, að greiddar verði 7 millj. kr. upp í vangoldin framlög ríkissjóðs til skólabygginga og hafnargerða.
Þótt vopnahlé hafi verið samið í bili, verður haldið áfram baráttunni fyrir nýjum tekjustofnum sveitarfélaganna og fyrir löggjöf, sem skapar skynsamlegan grundvöll undir traustan fjárhag þeirra.
Með vísan til þessarar greinargerðar mun ég ekki greiða atkvæði um till. á þskj. 511.