19.12.1951
Neðri deild: 50. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 263 í B-deild Alþingistíðinda. (497)

60. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Það eru aðeins fá orð út af þessum athugasemdum, sem hv. 7. þm. Reykv. kom fram með. — Ég þykist hafa fært fyrir því fullgild rök, sem ekki verði vefengd, að það sé ekki hægt að gera ráð fyrir því að afgreiða tekjuhallalaus fjárlög, þannig að tekjur ríkisins geti staðið undir gjöldunum, nema ríkissjóður fái alla sína tekjustofna eins og þeir eru ráðgerðir. Hvað reynslan svo sýnir í þessu efni, er vitanlega ekki hægt að segja um, en mér virðist ekki nokkurt vit í því að gera ráð fyrir þessu ólíkt því, sem hér er gert. Ríkissjóður má ekki missa þá tekjustofna, sem hann hefur, ef Alþ. ætlar að afgreiða hallalaus fjárlög, og Alþ. verður að afgreiða tekjuhallalaus fjárlög. Það verður að benda á aðrar leiðir fyrir bæjar- og sveitarfélögin en að þau taki tekjur ríkissjóðs. Þetta spursmál allt um útgjöld ríkisins og tekjur bæjarog sveitarfélaga verður að taka fyrir á næsta Alþ. á næsta ári, og enginn neitar þeirri þörf, sem bæjar- og sveitarfélög hafa fyrir auknar tekjur.

Út af því, sem hv. þm. Hafnf. sagði — og hv. 2. þm. Reykv., vil ég taka það fram, að mér finnst þeirra málflutningur einkennilegur. Þessir hv. þm. báðir halda því fram, að ríkið væri með því að gera þessar ráðstafanir — að greiða vangreidd skólaframlög og hafnargjöld — aðeins að gera það, sem því er skylt að gera. Þetta er byggt á misskilningi. Ríkinu er ekki skylt að greiða þetta umfram það, sem fé er veitt á fjárl., þannig hefur þetta verið framkvæmt alla tíð, það er a.m.k. hv. þm. Hafnf. vel kunnugt og hv. 2. þm. Reykv. líka. Þegar Sósfl. átti menntmrh., þá fór hann þannig að, að hann greiddi aðeins til skólanna það, sem veitt var á fjárl. en ekki meira, og það var stórkostleg súpa þá, sem var af ógreiddum framlögum til skóla. Það þarf sem sé tvímælalausa heimild til þess að greiða þetta fé. Það er óleyfilegt fyrir ríkisstj. að greiða framlög til þessara framkvæmda án heimildar Alþ., enda mun ríkisstj. leita sérstakrar heimildar frá þinginu til þess að greiða þessi fyrirhuguðu framlög. Það er þess vegna út í bláinn, sem þeir halda fram, að með þessu sé ekki komið til móts við óskir þessara bæjar- og sveitarfélaga. Þvert á móti er verið að greiða með þessu viðbótarfjárveitingu til þessara framkvæmda, sem nemur 7 millj. kr., sem þessir aðilar geta notað til að greiða sín lán heima fyrir, og þessar 7 millj. eru peningar, sem þessir aðilar geta ekki fengið annars og áttu ekki neina lagalega kröfu til að innheimta. Um þetta ætti ekki að þurfa að deila við þessa hv. þm., þar sem þeir eru það þingvanir og vanir að fylgjast með þessum málum, að þeim ætti að vera þetta ljóst.