19.12.1951
Neðri deild: 50. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 273 í B-deild Alþingistíðinda. (512)
60. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna
Jóhann Hafstein:
Í trausti þess, að það samkomulag innan ríkisstj., sem samþykkt tillagna hv. 7. þm. Reykv. (GTh) við 2. umr. þessa máls hér í d. hefur áorkað, sé aðeins upphaf að því, að ríkisstj. sinni þeirri skyldu við endurskoðun á tekjuskiptingu ríkisins annars vegar og bæjarog sveitarfélaga hins vegar að sjá bæjar- og sveitarfélögum fyrir nýjum verulegum tekjustofnum til þess að mæta þeim síauknu álögum, sem ríkisvaldið hefur lagt þeim á herðar, — af þessum ástæðum segi ég nei við till. hv. 2. þm. Reykv.