11.12.1951
Efri deild: 41. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 277 í B-deild Alþingistíðinda. (524)

139. mál, almannatryggingar

Brynjólfur Bjarnason:

Ég vil gera þá grein fyrir atkv. mínu, að ég get ekki fallizt á þessa iðgjaldahækkun hinna tryggðu. Þess vegna hef ég flutt hér frv. um afnám iðgjalda hinna tryggðu með öllu, og ég hefði óskað eftir, að n. tæki það frv. til athugunar milli umræðna um þetta frv.