20.12.1951
Neðri deild: 51. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 291 í B-deild Alþingistíðinda. (552)

139. mál, almannatryggingar

Jónas Árnason:

Herra forseti. Ég flyt hér ásamt hv. 3. landsk. þm. tvær brtt. við þetta frv. Brtt. þessar eru samhljóða brtt., sem hv. 7. landsk. þm. flutti við afgreiðslu þessa máls í hv. Ed., en d. bar ekki gæfu til að samþ. þær. Hv. þm. er vafalaust ljóst, hvaða afleiðingar þetta frv. mundi hafa, ef það yrði að lögum. Það mundi hafa í för með sér gífurlega hækkun á gjöldum til Tryggingastofnunarinnar, hækkun, sem mundi koma harðast niður á þeim, sem hafa mesta fjárhagslega erfiðleika við að etja, en það eru bæjar- og sveitarfélögin og alþýðuheimilin. Það þarf ekki að spyrja að því, hvaða aðili muni helzt vera þess megnugur að rétta þann halla, sem verður hjá Tryggingastofnuninni. Gjaldgeta bæjar- og sveitarfélaganna og alþýðuheimilanna er þrotin, og öllum mun ljóst, að þau geta ekki meira. Vanmáttur þeirra í þessum efnum stafar einmitt af því, að þriðji aðilinn, þ.e.a.s. ríkissjóður, hefur gengið svo hart að þeim. Það er einmitt ríkissjóður, sem er sá aðili, sem er þess megnugur að rétta þennan halla. Það er því von mín og hv. 3. landsk. þm., að ákvæðin um gjöldin verði hin sömu og verið hafa í lögum, en ríkissjóði sé hins vegar skylt að greiða það, sem á vantar, svo að Tryggingastofnunin geti á árinu 1952 greitt bætur með fullri uppbót samkv. kaupgjaldsvísitölu án þess að skerða tryggingasjóðinn. Með öðrum orðum er till. okkar sú, að stórveldið þyrmi nú hinum veiku aðilum og láti þann aðilann, sem sterkastur er, þ.e.a.s. ríkissjóð, rétta hallann.