08.10.1951
Sameinað þing: 3. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 333 í B-deild Alþingistíðinda. (567)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1952

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Eysteinn Jónsson fjármálaráðherra hefur nú lagt fram frv. til fjárlaga fyrir árið 1952. Það er langhæsta fjárlagafrv., sem nokkru sinni hefur legið fyrir Alþingi Íslendinga og á þó að sjálfsögðu eftir að hækka áður en það hlýtur sína lokaafgreiðslu.

Á rekstraryfirliti eru tekjur samtals áætlaðar 357 millj. 918 þús. kr. — Rekstrarútgjöldin eru áætluð 314 millj. og 577 þús., og er rekstrarafgangur þannig áætlaður 43 millj. 340 þús. kr.

Á sjóðsyfirliti er greiðslujöfnuður hagstæður um 4 millj. og 100 þús. kr. og endanlegar niðurstöður tekna- og gjaldamegin 363 milljónir 868 þúsund.

Samkvæmt frv. er íslenzkum skattþegnum ætlað að greiða 270 millj. 850 þús. kr. á næsta ári í skatta og tolla. Er það 491/2 millj. kr. hærri skattabyrði í ríkissjóð en fjárlög þessa árs ákveða, og mun þó flestum þykja sem skattþunginn sé ærin byrði eins og stendur. Af þessum fjárfúlgum eru beinu skattarnir — tekjuskatturinn og eignarskatturinn — ekki nema smáræði eitt, samtals 41 millj. kr. Hrýs þó mörgum hugur við, er þeir fá í hendur þinggjaldsseðilinn sinn og vita naumast, hvernig staðið verði í skilum með greiðsluna. En þetta er þó, eins og ég áðan sagði, smápeningar einir móts við skattgjald það, sem tekið er af fólki, um leið og það kaupir nauðsynjar sínar. Þannig er vörumagnstollur áætlaður á fjárlagafrv. 22.5 millj. kr., verðtollur hvorki meira né minna en 93 millj. og söluskattur 77 millj., svo að nefnd séu aðeins stærstu og virðulegustu nöfnin á óbeinu sköttunum, sem plokkaðir eru af fólki í ríkissjóðinn, um leið og það gerir innkaup sin. Eru þó fjöldamargir smærri skattar ónefndir. — Þessir þrír óbeinu skattar, vörumagnstollur, verðtollur og söluskattur, slaga þannig hátt upp í 200 millj. kr. og leggja þannig sem næst 7000 króna skattabyrði á hverja 5 manna fjölskyldu í landinu. Er af þessu augljóst mál, að óbeinu skattarnir eiga nú orðið mjög verulegan þátt í hinni ægilegu dýrtíð, sem nú liggur eins og mara á íslenzku þjóðinni.

Tekjur af rekstri ríkisstofnana eru á frv. áætlaðar 83 millj. og 600 þús. Eru það að langmestu leyti tekjur af Áfengisverzlun ríkisins og af Tóbakseinkasölu ríkisins, nefnilega 53 millj. áætlaðar af brennivíninu og 26 millj. af tóbakinu. Samtals 79 milljónir.

En þó að þessar tölur allar þyki svimandi háar, sem vonlegt er, þá er það samt sannast sagna, að þær segja ekki allan sannleikann. Þessar áætlunartölur munu flestar eða allar reynast lægri en skattarnir sjálfir, sem krafðir verða af borgurunum á árinu 1952. — Hæstv. fjmrh. hefur nefnilega þann hátt á að áætla stærstu tekjuliði fjárlaga stórum lægri en nokkrar líkur benda til, að þeir verði. Og þetta hlýtur hann að gera vísvitandi, svo glöggur fjármálamaður er hann, enda er ekkert undarlegt, þótt hann sé feiminn við að láta það sjást svart á hvítu, á hvert stig skattpíningin er komin undir fjármálastjórn hans. — Með of lágri tekjuáætlun fær ráðherra líka rýmra um hendur hvað snertir greiðslur úr ríkissjóði. Getur slíkt verið nógu freistandi út af fyrir sig, ef Alþingi lætur slíkt viðgangast. Og í þriðja lagi er það alkunnugt bragð íhaldssamra ríkisstjórna að áætla tekjur lægra en réttmætt er beinlínis í þeim tilgangi að synja svo um fjárveitingar til nauðsynlegra framkvæmda undir því yfirskini, að fé sé ekki fyrir hendi. Það verði þá að henda á nýjar tekjuöflunarleiðir, ef af þessari eða hinni framkvæmdinni eigi að geta orðið.

Ég minnist þess nú, að ég deildi nokkuð um tekjuáætlun fjárl. 1951 við hæstv. fjmrh. Ég leyfði mér þá að halda því fram, að tekjuáætlun ráðherrans væri a.m.k. 32 millj. kr. of lág. Á þetta vildi ráðherrann með engu móti fallast og hafði stór orð um. Fullyrti hann, að ef tillögur minar yrðu samþ., þýddi það raunverulega, að fjári. yrðu afgr. með 32 millj. kr. tekjuhalla. En nú hefur reynslan skorið úr þessum ágreiningi okkar.

Ég taldi varlegt að áætla tekju- og eignarskattinn með tekjuskattsviðauka 40 millj. á árinu 1951; ráðh. sagði í hæsta lagi 35 millj. Nú upplýsir hann þó sjálfur í skýringum sínum með fjárlagafrv., að í ár hafi tekju- og eignarskatturinn álagður numið rúmum 50 millj., og er það 3 millj. hærra en árið áður. Á árinu 1950 innheimtust rúmar 40 millj., og lætur því nærri, að hann verði í ár fullar 43 millj., þegar ráð hefur verið gert fyrir lækkunum yfirskattanefnda og ríkisskattanefnda og einnig gert ríflega fyrir vanhöldum. Þetta er þá 8 millj. hærra en ráðherrann áætlaði og a.m.k. 3 millj. hærra en ég gerði ráð fyrir.

Á þessu fjárlagafrv. sér ráðh. sér heldur ekki fært annað en áætla tekju- og eignarskattinn 41 millj. kr., eða 6 millj. hærri en í fyrra, og er það óefað af mikilli varfærni gert.

Þá taldi hæstv. ráðh. það tvöfalda fjarstæðu, er ég vildi áætla verðtollinn 78 millj. Fullyrti hann, að verðtollurinn gæti naumast orðið hærri en 65 millj. Endanlega var hann þó áætlaður 73 millj. Nú upplýsir ráðh., að innheimtur verðtollur á yfirstandandi ári hafi verið orðinn 50 millj. þann 1. júlí í sumar, þ.e. á fyrri helmingi ársins. Út frá því fellst ráðh. þá á, að verðtollurinn muni jafnvel reynast rúmar 100 millj. kr. á árinu.

Nú í ágústlokin, eftir 8 mánuði, var verðtollurinn orðinn 69 millj. og 300 þús., og bendir það til, að hann verði a.m.k. ekki undir 104–105 millj. kr. Þarna reynist áætlun ráðherrans, eins og hann að síðustu lét til leiðast að hafa hann, a.m.k. 30 millj. lægri en efni standa til. — Á næsta ári áætlar Eysteinn Jónsson verðtollinn 93 millj. og kveður þar teflt á tæpasta vað.

Þá taldi ráðh. enn versna og fjarstæðurnar keyra um þverbak, er ég vildi áætla söluskattinn mun hærra en hann gerði. „Áætlun fjárlagafrv. á honum,“ sagði Eysteinn fjármálaráðherra, „er byggð á algerri hliðstæðu við verðtollinn, og ég tel ekkert vit í að hækka þá áætlun.“

Og hvað segir þá reynslan um þennan ágreining okkar? Jú, hún segir þetta:

Söluskatturinn var að kröfu ráðh. áætlaður 55 millj. á árinu 1951, en að loknum 8 mánuðum ársins var hann orðinn 53 millj. 344 þús. Þannig benda allar líkur til, að söluskatturinn verði fullar 80 millj. eða kannske meira, ca. 25 millj. hærri en ráðh. vildi vera láta í fyrra. Þetta viðurkennir hæstv. fjmrh. nú í athugasemdum sínum við fjárlfrv. næsta árs með svofelldum orðum:

„Til 1. júlí reyndist söluskatturinn ca. 37.5 millj. kr. Mun þá að mestu búið að innheimta söluskatt fyrir tvo ársfjórðunga. Þar sem telja má víst, að meiri innflutningur verði síðari hluta ársins, er gert ráð fyrir, að söluskatturinn muni verða rúmar 80 millj. kr.“

Þarna var komið þó nokkuð annað hljóð í ráðherrastrokkinn, — en svo sér hann sér þó ekki fært að áætla söluskattinn nema 77 millj. á næsta ári.

Eitt af því, sem okkur hæstv. fjmrh. kom illa saman um í sambandi við afgreiðslu fjárl. fyrir yfirstandandi ár, var það, hvað óhætt væri a3 áætla tekjurnar af brennivíns- og tóbakssölu ríkisins miðað við reynslu undanfarinna ára. Ég vildi áætla brennivínstekjurnar 1951 52 millj. og tóbakstekjurnar 28–29 millj., samtals ca. 80 millj. Út af þessu brá hæstv. ráðh. á gaman, sem hann þó bregður sjaldan fyrir sig, og sagði, að ég gerði bersýnilega ráð fyrir „góðu brennivínsári“, fyrst ég vildi hækka þennan áætlunarlið. Nú þykir mér auðsætt, að hæstv. ráðh. muni hafa fengið það, sem hann kallaði „gott brennivínsár“, því að í fjárlagafrv. fyrir árið 1952 segir hann, að með hliðsjón af fenginni reynslu þyki sér óhætt að áætla hreinan rekstrarhagnað áfengisverzlunarinnar 53 millj. kr., eða 61/2 millj. hærra en árið áður.

Tóbakstekjurnar áætlar ráðh. 26 millj. á næsta ári, og er það 31/2 millj. hærri upphæð en á gildandi fjárl. Má af því draga þá ályktun, að árið 1951 hafi einnig reynzt honum sæmilegt „tóbaksár“. — Því góðæri fagna ég þó hvorugu með honum, en ástæðulaust er, enda enginn greiði við bindindismálstaðinn, að vera að fela ljótar staðreyndir í þessum málum með lægri tölum en efni standa til.

Þetta, sem hér hefur verið sagt, sýnir ótvirætt, að allar tillögur mínar í sambandi við hækkun tekjuáætlunar fjárl. fyrir árið 1951 voru raunhæfar, — engin þeirra hefur reynzt of há. Áætlun ráðherrans var of lág, og efa ég ekki, að þannig hagi hann tillögum sínum af ráðnum hug.

Það er því staðreynd, að það var þannig hægt að samþ. tillögur okkar alþýðuflokksmanna um riflegri fjárframlög til trygginganna — til drykkjumannahælis — til nýbyggingar vega og vegaviðhalds og til hafnargerða. — Það var einnig fært að leggja fram 6 millj. kr. til síldveiðideildar hlutatryggingasjóðs og 8 millj. til niðurgreiðslu á kostnaðarliðum bátaútvegsins, 11/2 millj. til atvinnuaukningar vegna aflabrests á Vestfjörðum og 5.6 millj. til launauppbóta vegna hækkunar vísitölunnar. Þetta var meira að segja allt saman fært án nokkurrar minnstu hækkunar á sköttum. En tillögunum var synjað með tilvísun til hinnar allt of lágu tekjuáætlunar, út frá þeirri fölsku forsendu, að fé yrði ekki fyrir hendi í ríkissjóði.

Og nú í dag hefur hæstv. fjmrh. staðfest þetta með því að upplýsa, að 41 millj. kr. rekstrarhagnaður sé á árinu 1950.

En það er ekki einhlít fjármálastefna að pína bara enn sem riflegastar skattafúlgur í ríkissjóðinn. Slík stefna getur og hlýtur að enda með skelfingu. Nú þegar er svo komið, að ógerlegt er fyrir flest bæjarfélögin að innheimta sína beinu skatta, útsvörin, sökum þess, hve ríkissjóður gengur nærri gjaldgetu manna. Og þegar bæjarfélögin eru komin á vonarvöl, eiga þau einskis annars úrkosta en að leita á náðir ríkisins. Við það þyngjast verulega byrðar ríkissjóðsins, og næst kemur svo röðin að honum sjálfum með að ná ekki inn skatttekjum sínum. Og hvað þá? — Þá eru þrot fyrir dyrum.

Nú á næstunni mun standa til, að bæjarstjórar flestra kaupstaðanna komi saman til fundar hér í Reykjavík til þess að bera saman ráð sín og reyna að finna nýjar tekjuöflunarleiðir fyrir bæjarfélögin. En það mun vera sameiginlegt álit þeirra allra, að ríkið verði að gefa eitthvað ettir af sínum skattstofnum til sveitarfélaganna, ef þau eigi að geta staðizt, þar sem nýjar skattálögur séu óhugsandi.

Það mundi vera flestra mál, að það hafi verið höfuðhlutverk íslenzkra stjórnmála um það leyti sem núverandi stjórn tók við völdum að ráðast af þrótti gegn dýrtíðinni og þoka henni niður á við. En hver hefur orðið var aðgerða í þá átt? Í fyrstu var að vísu ýmislegt hjalað í stjórnarblöðunum um baráttu gegn dýrtíðinni, en það voru orð — bara orð innantóm — og ekkert annað. Því hjali fylgdi engin alvara — engar aðgerðir.

Fyrsta verk hæstv. stj. var að lækka gengi íslenzku krónunnar um 42.6%. Þessari aðgerð fylgdi stórkostleg dýrtíðaraukning, eins og við alþýðuflokksmenn og aðrir andstæðingar gengislækkunarinnar sögðum fyrir. Formælendur hennar, íhaldsmenn og framsóknarmenn, töldu kjósendum hins vegar trú um, að verðhækkanirnar, sem af gengislækkun leiddi, mundu verða smáræði eitt — í allra mesta lagi 11–13%. Fyrir þessari staðhæfingu báru þeir útreikninga tveggja hagspekinga. Og fólkið festi nokkuð almennt trú á þetta fyrirheit í bili, boðað í nafni óbrigðulla vísinda.

En nú hefur reynslan sýnt sjómönnum, bændum, iðnaðarmönnum og öllum neytendum, hvar í stétt sem þeir standa, að gengislækkunin leiddi ægilegra dýrtíðarflóð yfir þjóðina en nokkurn hafði órað fyrir. Olli þar óefað nokkru um, að framkvæmd gengislækkunarlaganna var í höndum manna, sem margir hverjir höfðu beinan hag af vaxandi dýrtíð, sbr. prósentkerfið alræmda í álagningunni.

Verð það, sem sjómönnum hafði verið heitið fyrir fiskinn, 93 aurar pr. kíló, fékkst aldrei. Og áður en ár var liðið frá setningu gengislækkunarlaganna, var vélbátaútgerðin, sem gengislækkunarpostularnir þóttust einmitt ætla að bjarga, komin í rekstrarþrot og hefur nú nýskeð gengið undir almenn skuldaskil. Þá var stigið það skrefið, sem hleypti annarri dýrtíðarflóðöldu af stað. Það var leið bátagjaldeyrisins, sem þjóðin er nú þegar búin að fá nokkra reynslu af.

Það vakti mikla furðu, að Framsfl. skyldi nokkurn tíma samþ. þessa upplögðu leið til brasks og spákaupmennsku. Móti henni hafði ekki aðeins verið barizt af okkur alþýðuflokksmönnum og kommúnistum, heldur höfðu hagfræðingar ríkisstj., höfundar gengislækkunarfrv., þeir Benjamín Eiríksson og Ólafur Björnsson, fordæmt hana með öllu og fundið henni flest til foráttu. Um þetta sögðu þeir það, sem nú skal greina, í fylgiskjölum gengislækkunarfrv., með leyfi hæstv. forseta:

„Ekki er þó hægt að mæla með þessari leið. Má fyrst og fremst á það benda, að hún mundi hafa í för með sér engu minni almenna verðhækkun en almenn gengislækkun; það liggur í augum uppi, að eigi sjávarútvegurinn að fá jafnmikið í sinn hlut með þessari aðferð og með almennri gengislækkun, þá mundi verða mjög hátt verð á erlenda gjaldeyrinum, hærra en það, sem yrði með hinni almennu gengislækkun.

Vísitalan mundi enn síður en nú sýna rétta mynd af hinu almenna verðlagi,“ sögðu hagfræðingarnir enn fremur.

„Með því að fara þessa leið mundi raunverulega sett tvenns konar gengi á íslenzku krónuna og þá um leið tvenns konar verðlag á innfluttar vörur. Í framkvæmdinni yrði þetta sennilega þannig, að frjálsa gjaldeyrinum yrði einkum varið til að flytja inn vörur, sem ekki gætu talizt bráðnauðsynlegar eða teldust jafnvel óþarfar, og yrði þetta gert til þess að koma í veg fyrir, að hinar óumflýjanlegu verðhækkanir kæmu fram í vísitölunni.

Þessi leið felur í sér fyrst og fremst, að sá gjaldeyrir, sem aflast, er notaður á ónytsamlegri hátt en áður.“

Og enn segja þeir B. E. og Ó. B.:

„Hin tvö gengi og tvenns konar verðlag innanlands mundu gera nauðsynlegt að halda mjög ströngu eftirliti með verðlagi og dreifingu allra innfluttra vara. Sterk öfl mundu reyna að hækka álagningu og verðlag á vörum, sem fluttar væru inn fyrir ódýrari gjaldeyrinn, til samræmis við verðlag á þeim vörum, sem fluttar væru inn fyrir frjálsa gjaldeyrinn. Með því móti væri skapaður jarðvegur fyrir margs konar brask og óheilbrigða verzlunarhætti. Þessi leið mundi því kalla á aukin verzlunarhöft og opinbera íhlutun um verðlagsmál og því ganga alveg í öfuga átt við megintillögur okkar, sem fyrst og fremst er ætlað að skapa skilyrði fyrir frjálsri verzlun.

Þar sem ein afleiðingin yrði hækkun á almennu verðlagi, er líklegt, að framleiðslukostnaðurinn innanlands mundi stíga, fyrst og fremst kaupgjald. Er þá hætt við, að verðið á frjálsa gjaldeyrinum hækkaði enn og um leið almenna verðlagið. Bilið milli hins tvenns konar innflutningsverðlags ykist, og mundi af því hljótast margs konar togstreita. Menn mundu fljótlega vilja breyta ástandinn í heilbrigðara horf, en þeim mundi verða ljóst, að ætti að framkvæma varanlega lausn, þá væri það ekki hægt án þess að hækka fyrst og fremst nauðsynjar í verði. — Húsaleigu-, kaupgjalds- og vísitölusjálfheldan yrði því margfalt verri viðureignar en nú. — Við mælum því eindregið gegn þessari leið.“

Þannig vöruðu þeir hagfræðingarnir Benjamín Eiríksson og Ólafur Björnsson við bátagjaldeyrisleiðinni, en samt var hún farin og hefur sízt gefið betri raun en þeir og ýmsir fleiri sögðu fyrir.

Ég bið menn að taka eftir því, að þau hagfræðingarnir Benjamín og Ólafur lögðu ríka áherzlu á, að ef þessi leið yrði farin, þá yrði að hafa sterkt og strangt eftirlit með verðlagi og dreifingu innfluttra vara, því að sterk öfl mundu reyna að hækka álagningu og verðlag á vörum, sem fluttar væru inn fyrir ódýrari gjaldeyrinn.

Og hefur þetta sterka og stranga verðlagseftirlit þá ekki verið haft til þess að koma í veg fyrir óhóflega álagningu, brask og óheilbrigða verslunarhætti?

Nei, það hefur sem kunnugt er verið afnumið, enda hefur taumlaus okurstarfsemi komizt í slíkan algleyming, að öllu sæmilegu fólki stendur ógn af. Jafnvel stjórnarblöðin sum hlífast nú við að mæla því bót. Þó virðist Morgunblaðið vera að sækja í sig veðrið nú seinustu dagana og er farið að bera blak af okrurunum í nafnlausum greinum. Þar sannast hið fornkveðna: „Skrattinn þekkir sína“ — og Morgunblaðið braskarana.

Skýrsla verðgæzlustjóra, sem nýlega var birt í blöðunum, sýnir ótvírætt, að afnám verðlagseftirlitsins er þriðja stóraðgerð hæstv. ríkisstj. til aukinnar dýrtíðar. Það er eins og kjörorðið sé: „Allt fyrir okrarana!“ Og því virðist trúlega fylgt í allri stjórnarstefnunni.

Það var heldur aldrei við góðu að búast, þegar Framsfl. lét beygja sig undir það ok, að settur yrði einhver harðvítugasti heildsalinn úr flokki braskaranna, Sjálfstfl., yfir viðskiptamálin.

Hvernig voru viðbrögð hæstv. viðskmrh. á dögunum, þegar skýrslan um okrið var birt opinberlega? Var það ekki hann sjálfur, sem knúði fram birtingu skýrslunnar til þess að veita aukið aðhald í verðlagsmálunum? Nei, ekki aldeilis; hann stóð öndverður gegn birtingu skýrslunnar. Hann fór í reiði óvirðingarorðum í ríkisútvarpinu um formann verðgæzlunefndar, trúnaðarmann almennings, sem aðeins gerði skyldu sína með birtingu skýrslunnar. Hann hefur að sögn gefið út fyrirmæli um, að sá skolli megi ekki koma fyrir aftur, að formaður verðgæzlunefndar fái vitneskju um verzlunarokrið. Hann gæti nefnilega haft það til að láta vitneskjuna berast til almennings.

Og svo fór sjálfur viðskmrh. í útvarpið og vildi telja þjóðinni trú um, að okurálagningin væri hrein undantekning, yfirleitt væri álagningin hófleg og sanngjörn. Þetta sýnir bara, að hæstv. viðskmrh. er allt annarrar skoðunar í þessum málum en allur þorri þjóðarinnar. Það sýnir, að ráðh. hefur heildsalaafstöðu til málsins, en ekki afstöðu hins almenna borgara.

Það er bert af skýrslu verðgæzlustjóra, að almennt hefur álagningin tvöfaldazt og þrefaldazt síðan verðlagseftirlitið var afnumið. En í nokkrum og þó ekki svo fáum tilfellum hefur hún tí- til þrettánfaldazt.

Það er fullvíst, að þjóðin heimtar, að nöfn verstu okraranna verði birt, eins og eitt stjórnarblaðið — ég held það hafi verið Tíminn hefur stungið upp á. Og í rauninni ætti að svipta þá, sem lengst hafa gengið í því að okra á almenningi, heimild til kaupsýslustarfa.

Einasta afsökun okraranna er sú, að þeir höfðu að mínu áliti nokkra ástæðu til að ætla, að þeir væru aðeins að notfæra sér aðstöðu, sem lögð hefði verið þeim upp í hendurnar til ýtrustu hagnýtingar, þar sem aukin dýrtíð væri einn meginþáttur stjórnarstefnunnar.

Það er algengt að heyra því haldið fram, að dýrtíðaraukningin hér á landi sé fyrst og fremst að kenna verðhækkunum á heimsmarkaðinum. En þetta fær ekki staðizt. Þar tekur af öll tvímæli skýrsla alþjóðavinnumálastofnunarinnar um breytingar á framfærslukostnaði í flestum löndum heims frá því í ársbyrjun 1950 þar til síðastl. vor. Þar er Ísland með langmesta dýrtíðaraukningu, full 32% á einu ári. Danmörk er með 10% verðhækkun, Bandaríkin með 9%, Bretland með 4%, Sviss með 3%, Ísrael með 2%, Írland með 3%, Vestur-Þýzkaland með 5% o.s.frv. Þar sannaðist, að Ísland hafði heimsmet í dýrtíð. Og þessi dýrtíð er framleidd heima fyrir að langmestu leyti. Heimsmarkaðurinn er sá sami fyrir okkur og aðrar þjóðir. Aðeins tvö ríki, Burma og Íran, bjuggu við lækkandi verðlag á sama tíma.

Alþfl. mun af ýtrasta megni beita sér fyrir breyttri stjórnarstefnu í skattamálum og dýrtíðarmálum. Hefur núverandi stjórn vissulega fyllt mæli synda sinna svo, að út af flóir í þessum stórmálum báðum.

Afstaða Alþfl. til dýrtíðarmálanna er mörkuð skýrt og skorinort í svo hljóðandi ályktun, sem gerð var einróma á miðstjórnarfundi 27. fyrra mánaðar:

„Með tilvísun til upplýsinga þeirra, sem birtar hafa verið um gífurlega hækkun álagningar á vörur, sem ekki eru háðar verðlagseftirliti, telur miðstjórn Alþýðuflokksins komið ótvírætt í ljós, að skipulagslaus innflutningur og sú „frjálsa samkeppni“, sem ríkisstj. hefur stefnt að, tryggi ekki hóflega álagningu og sanngjarnt vöruverð.

Miðstjórnin mótmælir harðlega þeirri stefnu ríkisstj. að veita milliliðum frelsi til þess að okra á almenningi, samtímis því sem hann stynur undan byrðum sívaxandi dýrtíðar.

Hún krefst þess, að verðlagsákvæði verði þegar í stað sett aftur á allar vörutegundir og strangt eftirlit haft með því, að þeim sé hlýtt.“

Í framhaldi af þessari ályktun miðstjórnar lögðu þingmenn Alþfl. í neðri deild strax eftir þingsetningu, l. okt., fram frv. um að lögbjóða á ný verðlagseftirlit með öllum vörutegundum. Frv. felur í sér þá breytingu á verðlagslögunum, að fjárhagsráði sé skylt að ákveða hámarksverð á allar vörutegundir og hafa eftirlit með því, að ekki sé fram hjá því smogið. Sams konar ákvæði voru í lögum þar til rétt fyrir lok seinasta þings, er stjórnarflokkarnir, íhald og Framsókn, breyttu þeim á þá lund, að fjárhagsráði væri í sjálfsvald sett að ákveða, hvort verðlagseftirlitið væri haft áfram eða það fellt niður. Í skjóli þeirrar lagabreytingar var svo verðlagseftirlitið lagt niður í sumar með þeim afleiðingum, sem þjóðinni eru nú kunnar. Alþfl. hefur nú krafizt útvarpsumræðu um þessi þýðingarmiklu mál, og mun hún fara fram innun skamms.

Sjómönnum, verkamönnum og bændum og yfirleitt allri alþýðu manna er löngu orðið það ljóst, að spilling viðskiptamálanna verður aldrei upprætt með samstarfi við Sjálfstfl. um ríkisstjórn. Allra sízt með því að gefa honum kost á að láta heildsala stjórna málum heildsalanna úr ráðherrastóli, eins og nú er gert. En hvenær skyldu Hermann Jónasson og Eysteinn Jónsson öðlast þennan skilning?

Í þessum málum eru það verkalýðshreyfingin og samvinnuhreyfingin, sem verða að gera þá kröfu til allra þeirra flokka, sem nokkru láta sig varða hag almennings, að þeir sameinist um gagngera hreinsun í viðskiptamálunum, svo að Íslendingar þurfi ekki að verða að viðundri í hópi frjálsra þjóða fyrir prang og okur og hvers konar óheilbrigða verzlunarhætti, sem hvergi þekkjast aðrir eins, heimsendanna á milli.

Sumir hafa viljað færa núv. ríkisstj. til lofs, að henni hafi þó tekizt að ganga af svarta markaðnum dauðum. Og hvað er þá hæft í því?

Það var að vísu svo, að einstakar vörutegundir, sem ekki þóttu nauðsynlegri en svo, að verjandi þótti að takmarka mjög innflutning þeirra, voru samt fluttar inn með óleyfilegu móti og seldar með uppsprengdu verði. Þetta var leiðinlegt fyrirbæri og kom oft ónotalega við pyngju þeirra, sem gátu fengið sig til þess að verzla við svartamarkaðsbraskarana. En almenn áhrif á lífsafkomu fólks hafði svarti markaðurinn ekki að neinu ráði.

Og hvernig er það þá nú? Hvernig hefur svarti markaðurinn verið afnuminn? — Í stuttu máli sagt: Með því að selja bröskurunum sjálfdæmi um verðlag og álagningu. Með frjálsum bátagjaldeyri og afnámi verðlagseftirlitsins hefur verðið í fjöldamörgum tilfellum farið yfir það, sem nokkurn tíma þekktist áður á svörtum markaði, auk þess sem þetta okur nær nú til fjölda nauðsynjavara, sem almenningur getur með engu móti án verið. Það er því hárrétt, sem Alþýðublaðið hefur hvað eftir annað sagt: Svarti markaðurinn hefur fengið löggildingu af núverandi hæstv. ríkisstj. — Þetta er sannleikurinn í því máli og þess vegna af næsta litlu að státa hvað það snertir.

Fjárlagafrv., sem hér liggur fyrir, boðar enga nýja stjórnarstefnu. Það er alveg hárvíst, að skattpíningin heldur áfram og dýrtíðarmálið verður óleyst og sívaxandi vandamál, þar til alþýða landsins snýr baki við óheillastefnu íhaldsins án tillits til þess, hverjir gerast svo lítilþægir að lána aðstoð sína til að framkvæma hana. — Íhaldið eitt er þess ekki megnugt.