03.12.1951
Sameinað þing: 21. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 400 í B-deild Alþingistíðinda. (591)
1. mál, fjárlög fyrir árið 1952
Sigurður Bjarnason:
Herra forseti. Áður en ég kem að þeim fáu brtt., sem ég er við riðinn, vildi ég gera athugasemdir við tvær brtt. fjvn.
Hin fyrri er varðandi brú á Selá. Á síðasta þingi fengum við til þeirrar brúar 250 þús., ég og hv. 6. landsk., samkv. till. n. Við töldum okkur hafa örugga vissu fyrir því, að fé yrði veitt á fjárl. næsta árs úr brúasjóði til byggingar þessarar brúar. Brúin mun kosta um 1/2 millj. kr., en Selá er eitthvert versta fljót á Vestfjörðum. Nú virðist þetta að engu orðið. Ögurvegur verður að allverulegu leyti ónothæfur, meðan ekki er snúið sér að því að brúa þær ár, sem á honum eru. Ég verð að harma það, að vonir okkar um að fá fé úr brúasjóði hafa brugðizt. Ég vildi fá skýringu frá hv. n. á því, hvað þessu valdi. Ég hef haft samráð við vegamálastjóra um, að þessi háttur væri hafður á, að fá fé úr brúasjóði, en að öðru leyti fengin sérstök fjárveiting til að brúa ár á Ögurvegi. Ég skal ekki fjölyrða um þetta, en ég tel, að hér hafi verið gengið á gefin fyrirheit. Mér er ekki kunnugt um, að nokkur brú á Vestfjörðum sé byggð fyrir fé úr brúasjóði, og tel ég þetta því ómaklegra og líklegt til að tefja fyrir nauðsynlegum framkvæmdum í þessu héraði. Ég vil beina því til n., hvort ekki muni vera hægt að leiðrétta þetta fyrir 3. umr. Í trausti þess höfum við hv. 6. landsk. þm. ekki borið fram brtt. við þessa grein.
Í sambandi við þjóðvegina vil ég minnast á það, að ég sé ekki, að neitt fé sé veitt til Vesturlandsvegar, sem er þjóðvegurinn til Vestfjarða. Hann er oft svo að segja ófær meðfram Gilsfirði, og réttilega ber að leggja áherzlu á að gera aðalakbrautina sem greiðfærasta. Hv. þm., einkum þeir, sem farið hafa þennan veg til Vestfjarða, vita, að hann liggur um Dali, og er langur kafli hans alveg vegleysur. Á honum er á, sem er óbrúuð og er hinn versti farartálmi fyrir jafnvel stórar bifreiðar, þó að hún sé ekki í vexti. Ég hef ekki beint sérstökum tilmælum til hv. fjvn. um að fá fé til að gera þennan veg sæmilegan og farartálmalausan. En þegar ég sé, að það er látið við svo búið standa hvað eftir annað, þá fæ ég ekki orða bundizt. Ég vil beina því til hv. n., þó að erfitt sé að breyta þessu og skortur sé á vegafé, að hún láti það ekki henda sig einu sinni enn, að hún vanræki þennan veg, sem er aðalakvegurinn til Vestfjarða.
Þá kem ég að brtt., sem ég flyt ásamt hv. 6. landsk. þm. og varðar kjördæmi mitt. Við flytjum brtt. á þskj. 308 við 22. gr. frv. um, að við hana bætist nýr liður, sem heimili ríkisstj. að veita fé til viðgerðar á brimbrjótnum í Bolungavík. Um þessa brtt. skal ég ekki fjölyrða. Sú viðgerð, sem hafin var við brimbrjótinn, var ekki fullgerð, og til að fullbæta þær skemmdir, sem á honum urðu, þarf viðbótarfé. Ég gerði grein fyrir þessu máli í framsöguræðu fyrir sams konar brtt. í fyrra og þarf ekki í annað sinn að endurtaka þau rök. Það leiðir af sjálfu sér, að það verður að ljúka þessari viðgerð, til þess að hún komi athafnalífi staðarins að fullum notum, eins og nauðsyn ber til.
Þá vildi ég leyfa mér að minnast á brtt., sem ég ber fram ásamt hv. 1. þm. Eyf. og er á þskj. 315. Hann hefur að vísu gert grein fyrir henni, en ég vil aðeins bæta við, að sú brtt. fjallar um eitt hið þýðingarmesta mál fyrir mörg byggðarlög landsins. Ég hef áður vakið athygli á því, að það er engin von til þess, að öll byggðarlög fyrir utan þau, sem fá raforku frá Sogi eða Laxá, bíði óendanlega eftir því, að einhver litur sé sýndur í því að fullnægja raforkuþörf þeirra. Ef þessari stefnu, sem nú ríkir, að ekki sé litið við kröfum heilla landshluta um lausn á raforkumálum þeirra, verður haldið áfram, hygg ég, að af henni hljótist stórkostlegt þjóðhagslegt tap og aukinn flótti fólksins frá framleiðslu í sveitum og sjávarþorpum til hinna stærri kaupstaða. Og veldur þetta fækkun á því fólki, sem vinnur að framleiðslunni. Ég og hv. l. þm. Eyf. viljum bæta um í þessum efnum með því að leggja til, að ríkisstj. sé heimilað að verja 10 millj. af tekjuafganginum 1951 til rafveitna ríkisins. Hæstv. samgmrh. upplýsti, að það væru engar líkur til, að hægt verði að hefja nýjar framkvæmdir í raforkumálum næstu tvö til þrjú árin, nema Alþ. veiti aukið fé til þeirra. Þessi brtt. er því bein afleiðing af þessari yfirlýsingu, og leggjum við áherzlu á, að einmitt nú á þessu þingi verði mörkuð önnur stefna í þessum málum en sú, sem ráðið hefur undanfarin ár, — sú stefna, að litið verði á þarfir fleiri en þeirra, sem í þéttbýlinu búa. Ég tel ekki þörf að fara fleiri orðum um þessa brtt., hún er almennt orðuð, og hygg ég, að allir þeir hv. þm., sem skilja þarfirnar í þessum efnum, ættu að geta sameinazt um að samþ. þessa heimild.
Ég vil þá minnast á brtt., sem ég flyt á þskj. 308 ásamt þremur öðrum hv. þm. Þar leggjum við til, að Bandalagi íslenzkra leikfélaga sé veittur 20 þús. kr. styrkur, til vara 15 þús. Þessi styrkur hefur það markmið að stuðla að og glæða leiklist víðs vegar um landið. Það er öllum ljóst, að fólk leggur mikið á sig til að geta haldið uppi leikstarfsemi og stuðlað að því að gera skemmtanalífið fjölbreyttara í sínum byggðarlögum. En til þess að þetta verði unnt, þarf það að fá aðstoð utan að frá. Þessi litlu leikfélög í strjálbýlinu þurfa að fá aðstoð til þess að koma upp leiksviðum, fá leikstjóra og ýmsa aðra aðstoð, til þess að þetta menningarstarf berí árangur. Ég hygg, að það sé ekki mjög frekt farið í sakirnar, þó að lagt sé til, að þessi félög fái 20 þús. kr. styrk. Það gleðjast allir yfir því að eiga þjóðleikhúsið, sem þjóðin á, og einkum þeir, sem við veggi þess búa, og þá einkum íbúar höfuðstaðarins. Hversu fjölþætt starf sem þjóðleikhúsið rekur, getur það aldrei komið í staðinn fyrir það starf, sem þessi litlu leikfélög hafa með höndum úti um sveitir landsins, í sjávarþorpum og kaupstöðum. Ég hygg, að það eigi að hlúa að listastarfi sem þessu, sem er borið uppi af fjölda fólks í landinu, sem leggur mikið erfiði á sig til að gera félagslíf samborgaranna auðugra og fjölbreyttara. Hv. Alþ. hefur oft sýnt skilning á slíku starfi, og vænti ég, að eins verði gagnvart þessari litlu brtt.
Þá flyt ég brtt. á þskj. 315 ásamt hv. 6. landsk. um að verja 30 þús. kr. til kennslu við 1. bekk menntaskóla við gagnfræðaskólann á Ísafirði. Hv. 6. landsk. þm. mun mæla fyrir þessari brtt., enda er hann kunnugri málunum en ég, þar sem hann er stjórnandi þess skóla, sem þessari kennslu er haldið uppi í. Ég vil aðeins segja, að enda þótt ég hafi ekki verið öflugur stuðningsmaður menntaskóla á Ísafirði, tel ég það vera sanngjarnt, að gagnfræðaskólinn þar fái að hafa á hendi kennslu í 1. bekk menntaskóla. Ég hygg, að það geti greitt götu margra að eiga þess kost að vera einum vetri lengur heima áður en lagt er út í heiminn. Ég vildi því mælast til, að þessi brtt. verði samþ.
Að lokum flyt ég svo brtt. á þskj. 315, rómv. XV, ásamt nokkrum öðrum hv. þm. Brtt. þessi er um að heimila ríkisstj. að verja 180 þús. kr. til að bæta tjón vegna slysfara á Bolungavíkurvegi. Eins og flestum mun kunnugt, varð það hrapallega slys á þessum vegi síðastl. sumar, að tveir menn fórust og tveir særðust eða limlestust mjög hættulega. Bifreiðin gerónýttist, eða a.m.k. er kostnaðurinn gífurlegur, ef á að gera við hana. Það er tillaga okkar, sem flytjum þessa brtt., að 180 þús. kr. verði varið í senn í dánarog slysabætur og til að bæta eiganda bifreiðarinnar að nokkru leyti það tjón, sem hann varð fyrir. Þetta slys var svo sérstætt, að það fólk, sem slasaðist eða lét lífið, fær engar bætur. Aðstandendur þeirra, sem létu lífið, fá engar dánarbætur, og þeir, sem slösuðust, fá engar slysabætur. Enn fremur fær eigandi bifreiðarinnar ekki bætur fyrir það tjón, sem varð á bifreiðinni. Ég hygg, að þetta slys sé svo sérstætt, að það sé fyllilega réttlætanlegt, að fjárveitingavaldið hlaupi undir bagga.
Mér er kunnugt um, að aðstandendur þeirra manna, sem þarna létu lífið, eru gamlir og fátækir, og er því mjög aðkallandi, að þeir fái einhverjar bætur. Annar þeirra, sem slösuðust, mun verða örkumla alla ævi, en hinn hefur ekki orðið eins illa úti. Þessum mönnum er því nauðsynlegt að fá bætur, þó að líftjónið fáist ekki bætt. Um bilstjórann, sem átti bílinn, er það að segja, að hann er mjög félítill maður. Hann hafði lagt mikið fé í að gera bifreið þessa vel úr garði, og verður það stór hnekkir fyrir hann, ef hann fær tjónið ekki bætt. Hv. fjvn. hefur fjallað um þetta mál, og mun hafa verið vilji í n. að koma að einhverju leyti til móts við óskir um bætur fyrir þetta hörmulega slys. Hins vegar mun nokkurs uggs hafa gætt um, að hér væri skapað fordæmi, sem kynni að opna leið til aukins ágangs. Ég geri mér þetta fyllilega ljóst, en hygg þó, að þetta sé svo sérstakt atvik, að hjá því verði ekki komizt að láta það ráðast að veita nokkurt fé vegna þessa slyss.
Ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þær brtt., sem ég flyt. Ég er meðflm. að örfáum öðrum brtt., sem hv. 1. flm. munu mæla með. Í sambandi við vegamálin í minu kjördæmi vil ég segja, að þótt verulegt fé sé veitt til framkvæmda í N-Ísafjarðarsýslu, virðist mér ekki gæta samræmis í úthlutun fjár til þessara framkvæmda. Það vita allir, að N-Ísafjarðarsýsla er eitt veglausasta hérað landsins. Það hlýtur að verða að leggja áherzlu á að vinna að vegaframkvæmdum í þeim sýslum, þar sem ástandið er þannig. Ef sýnd væri fyllileg sanngirni, ættu slík héruð að ganga fyrir. Ég fæ ekki séð, að hv. n. hafi haft þetta sjónarmíð hér. Ég skal ekki gera eldhús að hv. n., en læt aðeins þann skilning minn koma fram, að ég tel, að mikið bresti á, að fjárveitingum til vegalagninga sé hagað í samræmi í þeim efnum. — Ég skal svo ekki fjölyrða frekar um þetta, en vænti þess, að þessum brtt. verði vel tekið.