03.12.1951
Sameinað þing: 21. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 409 í B-deild Alþingistíðinda. (596)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1952

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Þetta verða aðeins fáein orð út af því, sem hv. frsm. 2. minni hl. sagði hér fyrr í kvöld. Þessi hv. þm. var enn við sama heygarðshornið og hélt því fram, að tekjur þessa fjárlagafrv. væru rangt metnar og að óhætt væri að breyta því. Hann sagði, að ég hefði sneitt hjá því að ræða áætlunina 1951 og ætlaði að gera það sama nú. Hann sagði, að tekjurnar 1951 hefðu farið langt fram úr áætlun og að óhætt væri að treysta því, að þær mundu gera það aftur nú á næsta ári.

Þegar tekjuáætlunin var gerð fyrir 1951, var hún gerð eftir beztu vitund og þá miðað við árið 1950. En sú tekjuaukning, sem orðið hefur, stafar af auknum innflutningi, og hann gat enginn maður séð fyrir; það var því allt í óvissu um þetta þá og áætlunin því á fullum rökum reist. Hitt er svo að athuga, að þessar auknu tekjur stafa af auknum innflutningi, sem kemur fram í auknum söluskatti. Í fyrra, þegar verzlunin var gefin frjáls, þurfti að kaupa inn í landið birgðir, en nú, þegar þær eru til staðar, verður ekki meira flutt inn en það, sem neytt verður. Þessar till. hv. þm. eru þess vegna ekki á rökum reistar.

Þess er líka að geta, að útgjöldin hafa stórvaxið, og éta þau upp mest af þeim tekjuafgangi, sem annars hefði orðið, en það lætur hann sem vind um eyru þjóta. Þetta meðal annars sýnir, hvað það er ónákvæmt að miða við árið, sem er að líða. Árið 1950 reyndist vera lélegt tekjuár, og við það varð að miða, þegar fjárlögin fyrir árið 1951 voru samin, en hins vegar reyndist 1951 vera gott tekjuár, og við það er ekki hægt að miða tekjurnar fyrir árið 1952, vegna þess að það er ekki hægt að gera ráð fyrir því, að sami innflutningur haldist áfram. Inuflutningurinn í ár verður aðeins til neyzlu. Það geta því allir séð, hvað þessi hv. þm. er ólæknandi í sinni villu.

Þá minntist þessi hv. þm. á sparnað og útþenslu ríkisbáknsins. Annað dæmið, sem hann tók, var það, að það hefði verið bætt við hálfum manni í þrjú ráðuneyti. Ég held, að ríkisstj. megi vel við una, ef þetta er það alvarlegasta, þessir þrír mannshelmingar, sem þeir eru alltaf að stagast á stjórnarandstæðingar. Ég held, að það sé gleggsti votturinn um það, að þeir hafa ekki mikið að að finna eða bera fyrir sig, þegar þeir eru alltaf með þessa þrjá mannshelminga milli tannanna. Ég hefði haldið, að það væri heldur ástæða til hróss, að stj. hefur verið svo vel á verði í þessum sökum, að hún hefur aðeins bætt þar við hálfum manni, sem reyndar væri full ástæða til að hafa heilan. Ég hélt satt að segja, að þetta væri ekki til ámælis.

Ég hef ekki aðstöðu til að segja um það, hve margir menn eru í hinum ráðuneytunum, en það get ég sagt þessum hv. þm., að í fjmrn. eru ekki of margir. Þar eru svo fáir, að við höfum af þeirri ástæðu ekki getað fylgzt með og haft eftirlit með hinum ýmsu stofnunum eins og skyldi, og það er fyrir það, að ég hef persónulega verið of hörundssár fyrir ábyrgðarleysishjali manna, sem hafa hegðað sér svipað og þessi hv. þm. hefur gert í dag. Við höfðum t.d. ætlað okkur að innleiða þann sið að fá mánaðarlega skýrslur frá hinum ýmsu stofnunum til þess að geta fylgzt með rekstri þeirra. Þetta höfum við ekki getað gert, meðfram af því, að við höfum ekki haft menn til að vinna úr þeim skýrslum. Við urðum að vísu fyrir því óhappi, að einn af starfsmönnunum veiktist og lá veikur lengi, en við hefðum ekki heldur getað gert þetta. af því að við höfum ekki viljað leggja út í þann kostnað, sem því hefði verið samfara. Og það get ég sagt honum, að það hefði fremur þurft af bæta þar við heilum manni en hálfum, þó að það væri látið nægja.

Þá segir hv. þm., að hann hafi ekki borið fram till. sínar til sparnaðar, af því að það hafi verið búið að fella þær í nefnd og hann hafi ekki kunnað við að láta fara að tvífella þær. Ég hélt nú, að áhugi hans fyrir svo góðu máli væri svo mikill, að hann vildi ræða þær hér frammi fyrir alþjóð og opinbera henni það, sem hann hefur fram að færa, heldur en að vera að pukrast með þær í lokuðu nefndarherbergi. Eða hvaða sönnun hefur hann fyrir því, að þær hefðu verið felldar á Alþingi, þó að búið væri að fella þær í nefnd? Og ef hann meinar eitthvað með þessu sparnaðarskrafi sínu, þá skora ég á hann að koma fram með þessar till. sínar og láta ræða þær hér á þingi. (HV: Ætlar hæstv. ráðh. að mæla með þeim?) Það mætti vera, að menn opnuðu augun fyrir því, að þarna væri spámaður risinn upp í sparnaðarmálum þjóðarinnar.

Þá segir hv. þm., að hann hafi borið fram till. um það, að menn skyldu komast af með sömu fjárhæðir og í fyrra. Það væri ekki ófróðlegt fyrir þennan hv. þm. að athuga það, að í fyrsta lagi hafa öll laun hækkað um 25%. Hvað átti þá þessi till. hans að þýða? Átti hún að þýða það, að ekki skyldi greiða þessa hækkun á laun manna? Eða hvernig átti að framkvæma þetta? Það virðist þó sem flokkur hv. þm. sé því fylgjandi, að uppbætur séu greiddar á laun, en samt átti að komast af með sömu upphæðir. Svona till. eru ekkert annað en markleysa.

Eða hvað vill þessi hv. þm. láta gera? Þegar hann er spurður, þá vefst honum tunga um tönn. Hann var að minnast á mæðiveikivarnirnar, og þegar hann var svo spurður, hvernig hann vildi láta framkvæma þær, þá bara segir hann: „Ja, mér þykir þetta hátt.“ Hvaða rök eru annað eins og þetta?

Hv. þm. sagði, að ég hefði spurt sig, hvað hefði átt að lækka. Átti að lækka framlög til sjúkrahúsa, átti að lækka framlög til fræðslumála, átti að fækka kennurum, átti að spara að kaupa lyf, átti að fækka læknunum eða hjúkrunarliðinu? Þeir liðir, sem ég spurði hann um, nema 330 millj. Það mátti ekkert lækka af því. Hvar á þá að taka alla þessa lækkun, sem hv. þm. er að tala um, þegar ekki má koma nálægt neinu? Enda kom það fram hjá hv. þm., að það mætti helzt ekki spara neitt nema þessa þrjá mannshelminga. Það nær nú skammt á móti öllum söluskattinum. Allur kostnaður á 10. gr. fjárl. mun ekki vera nema 1/9 af honum. Hvað er það þá, sem á að spara? Maður fer svona að skilja, hvers vegna hv. þm. telur það heppilegra að ræða sparnaðartill. sínar í lokuðu nefndarherbergi til þess að geta svo gasprað um þær hér á þingi. Þá er þægilegra fyrir hann að fjasa um þær, ef enginn fær að vita neitt um það, hvað þær fjalla um. Ég vil segja það við hv. þm., að ef hann vill sýna einhvern manndóm, þá er bezt fyrir hann að koma fram með þessar till. hér á Alþingi.

Svo talaði hv. þm. um það, hvort ég væri svo ósvífinn að ætlast til þess, að stjórnarandstaðan færi að koma fram með leiðir til úrbóta. Já, það er það, sem ég krefst. Eigi að fara einhverjar aðrar leiðir, þá verður að benda á þær. Og það er ekki nóg að segja sem svo: Ja, þarna á að spara. — Það verður að segja, hvernig eigi að fara að því. Ef ekki á að fara þær leiðir, sem farnar eru, þá á að benda á aðrar, annars eru þessar till. ekki annað en eitthvert fálm út í loftið. Og það er hlutverk stjórnarandstöðunnar að halda uppi vakandi gagnrýni á gerðir stj. og sýna fram á það, að um aðra heppilegri leið sé að ræða. Þessari skyldu hefur þessi stjórnarandstaða, sem nú er, brugðizt. Það sést bezt á þeim málflutningi hv. þm., að hann þorir ekki einu sinni að láta ræða till. sínar á þingi.