03.12.1951
Sameinað þing: 21. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 417 í B-deild Alþingistíðinda. (601)
1. mál, fjárlög fyrir árið 1952
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Ég flyt hér tvær till. ásamt tveim öðrum þm. sósíalista á þskj. 315, og vil ég leyfa mér að mæla með þeim nokkrum orðum. Það er 10. brtt. á þessu þingskjali, sem er um einnar millj. kr. framlag til útrýmingar heilsuspillandi húsnæði samkv. III. kafla laga nr. 44 frá 7. maí 1946, og enn fremur á sama þskj. brtt. nr. 17, við 22. gr., sem er um það, að ríkisstj. sé heimilt að taka fé að láni til þess að lána bæjar- og sveitarfélögum til útrýmingar heilsuspillandi húsnæði samkv. III. kafla laga nr. 44 frá 7. maí 1946, og sé lánsupphæðin í hlutfalli við framlög ríkissjóðs samkv. lögum.
Eins og hv. þm. er kunnugt, var gerð sú breyting á l. frá 7. maí 1946, um útrýmingu heilsuspillandi húsnæðis, þar sem ríkissjóður var skuldbundinn til að lána sveitarfélögum fé samkvæmt nánari fyrirmælum, að framvegis skyldi lánsupphæðin ákveðin í fjárl. hverju sinni. En upphaflega, með setningu laganna, var meiningin sú, að sveitarfélögin skyldu sjálf athuga þörfina fyrir nauðsynlegar byggingar til útrýmingar heilsuspillandi húsnæði og síðan væri ríkinu skylt að lána til slíkra framkvæmda 75% af kostnaðinum og auk þess 10% framlag, sem gefa skyldi eftir, ef viðkomandi sveitarfélög ákvæðu að gefa sjálf eftir sitt framlag, sem átti að nema 15% af byggingarkostnaðinum. Lög þessi miðuðu að því að losa sveitarfélögin við húsnæði, sem heilsunnar vegna væri stórvarhugavert að búa i, svo sem hermannabraggana hér í Reykjavík, og var meiningin að útrýma slíku húsnæði á 4–5 árum. Því miður fór þó svo, að það leið ekki nema á annað ár þar til ný lög voru sett um þetta efni, þar sem framlagsskylda ríkissjóðs til sveitarfélaganna í þessu skyni var felld niður úr lögunum, og skyldi ákveða þetta framlag á fjárl. hverju sinni. Nú hef ég ásamt öðrum flutt í Nd. frv. um breyt. þessara mála, en ég sé nú, að það frv. mun að öllum líkindum ekki ná fram að ganga að þessu sinni. Ég hef því ásamt tveim öðrum þingmönnum flutt þessar till. til þess að freista þess að koma þessum málum í betra horf. Slíkar till. hafa einnig verið fluttar á tveim undanförnum þingum, en voru felldar í bæði skiptin á þeim forsendum, að fé væri ekki til í þessar fjárveitingar. Ég býst nú við, að fæstir hv. þm. treysti sér til að bera það fyrir núna, að ekki sé til neitt fé til að verja til útrýmingar heilsuspillandi húsnæði. Ég held, að flestir verði að viðurkenna, að nú sé fé til, og því ekki lengur fyrir hendi þær forsendur, sem komu fram 1948. Hins vegar höfum við farið ákaflega gætilega í sakirnar í till. okkar. Ef ríkið legði fram þessa einu millj. kr. og það yrði látið samsvara þeim 10% af byggingarkostnaðinum, sem ríkið mátti samkvæmt lögunum frá 1946 gefa eftir, mundi ríkislánið til sveitarfélaganna nema 71/2 millj. kr., og fyrir þessar fjárupphæðir er varla hægt að byggja nema 60–70 íbúðir; og sjá allir, að það eru engin ósköp. Ég skal taka fram, að auðvitað yrði slíkt fé ekki nema lítill hluti þess fjár, sem þyrfti að verja til þess að bæta úr húsnæðisvandræðunum í bæjum og sveitum, og má minna á það, að fyrir Alþ. liggja nú lagafrv. frá tveimur þm. sósíalista, þar sem lagt er til, að varið verði fé úr mótvirðissjóði til þess að lána til íbúðabygginga, til að byggja smáíbúðarhús og önnur íbúðarhús, hvort sem það yrðu nú verkamannabústaðir, samvinnubyggingar eða með öðru fyrirkomulagi. Við flm. þessara till. vildum hins vegar prófa, hvort ekki yrði nokkur breyting á afstöðu hv. þm. frá fyrra ári, þegar þeir hafa séð, hve mikið fé á að taka af fólkinu með sköttum. Það verður ekki sagt, að þetta sé eyðslutill., því að fénu verður varið til uppbyggingar í landinu, og ekki vantar það, að þetta er eitt af því nauðsynlegasta, sem Alþ. getur varið fé til. Ég vil minna á, að nú eru liðin meira en 20 ár síðan samþ. voru lög, sem bönnuðu kjallaraíbúðir í Reykjavík, en aldrei hafa fleiri búið í kjallara en einmitt nú. Þá var ætlunin að ganga að því að þurrka burt úr okkar landi það, sem Enskurinn kallar „slum“, þ.e. fátækrahverfi, sem skæru sig úr öðrum hlutum bæjarins. Það var stefnt að því að þurrka út slík hverfi, þar sem búið væri aðeins í neyð, og fólk byggi þar ekki nema það væri hrakið þangað af skorti á viðunandi húsnæði. Ég held því, að nú, þegar tekjuafgangur ríkisins er fyrirhugaður svo mikill og ekki á að lina neitt á skattpíningunni og ríkisstj. ætlar að leggja söluskattinn á áfram, þá sé þetta það minnsta, sem hægt er að gera á þessu sviði, að samþ. þessar till. okkar. Og ég vona, að hv. þm. sjái sér fært að samþ. þessar till., bæði 10. brtt. á þskj. 315, um beint framlag til útrýmingar heilsuspillandi húsnæði, og 17. brtt. á sama þskj., um helmild fyrir ríkisstj. til að lána bæjar- og sveitarfélögum fé í hlutfalli við þetta framlag samkv. l. um þetta efni frá 7. maí 1946.
Ég hef ekki flutt aðrar brtt. við þessa umr., en mundi kannske við 3. umr., sem er sú umr., er mest reynir á hv. þm., flytja fleiri. Ég vildi leyfa mér að vona, að hv. þingmenn geti fallizt á þessar till. okkar, því að nú er ekki hægt að bera það fyrir, að fé vanti til þess, að hægt sé að bæta úr þessum málum, og því minni líkur eru til þess, að menn komi fram með slíkar mótbárur, sem kosningar eru óðum að nálgast, en þetta hið mesta hagsmunamál fyrir alla þjóðina.