03.12.1951
Sameinað þing: 21. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 418 í B-deild Alþingistíðinda. (602)
1. mál, fjárlög fyrir árið 1952
Jón Pálmason:
Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja eina brtt. við þessa umr., og er hún prentuð á þskj. 321. Þessi till. fjallar um það að hækka styrkinn til sjúkrahúsbygginga um 500 þús. kr. og verði því fé varið til sjúkrahússins á Blönduósi. — Ég skil vel, að fjvn. hefur átt allerfitt með að taka ákvarðanir um sjúkrahúsmálin, eins og frá þeim var gengið á fjárlagafrv., er það barst henni í hendur. Ég hef tvisvar áður flutt slíka till. sem þessa hér á þinginu, en þær hafa ekki náð fram að ganga. Nú er búið að samþykkja teikningu fyrir sjúkrahúsbyggingu á Blönduósi, og áætlað er, að byggingin muni fara upp í 3 millj. kr., en af þeirri upphæð ber ríkinu að greiða 2/3 hluta, en sveitarfélagið á að greiða 1/3 hlutann, og ef þessi till. mín yrði samþ. og svipað yrði greitt til byggingarinnar næstu ár, mundi það taka ríkið fjögur ár að greiða sinn hluta, ef kostnaðurinn stenzt áætlun.
Ég vil aðeins vekja athygli á því, að mér virðist kenna nokkurs ósamræmis í því, að í fjárlagafrv. eru ætlaðar 2 millj. og 50 þús. kr. til byggingar allra sjúkrahúsa í landinu, þar af utan Reykjavíkur og Akureyrar 550 þús. kr., en hins vegar eru ætlaðar yfir 4 millj. kr. til skólabygginga. Mér virðist nokkurt ósamræmi í því, að það skuli vera svo mikill munur á þessum fjárveitingum; það er eins og allt eigi að lækna með því að byggja sem flesta skóla, en láta sjúkrahúsin sitja á hakanum.
Ég tók eftir því í ræðu hv. form. fjvn., er hann flutti við þessa umr., að nefndin hyggst taka heilbrigðismálin til nánari athugunar fyrir 3. umr., og vænti ég þess, að hún taki þá til athugunar, hvort ekki sé unnt að hækka framlag til sjúkrahúsa úti um land, og vonast ég þá til, að mín till. geti komið til greina og henni verði veitt athygli. Ef n. tekur þessi mál til athugunar fyrir 3. umr. og ef ég fæ loforð um, að mín till. fái þá einhverja afgreiðslu hjá henni, gæti ég samþ., að atkvgr. um hana yrði frestað. Ég vona, að hv. þm. sjái, að þetta slæma ástand í sjúkrahúsmálunum getur ekki gengið öllu lengur, að það sé látið sitja á hakanum að byggja nauðsynlegustu sjúkrahús og sjúkraskýli úti um land. — Að öðru leyti skal ég ekki fara að ræða um fjárlagafrv. eða afgreiðslu þess, til þess er hvorki tími né ástæður eins og sakir standa.