03.12.1951
Sameinað þing: 21. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 445 í B-deild Alþingistíðinda. (612)
1. mál, fjárlög fyrir árið 1952
Frsm. meiri hl. (Gísli Jónsson):
Ég vildi fyrst, út af því sem hv. 4. landsk. sagði í sambandi við till. sína til hækkunar fyrir sjúkrahúsið á Akureyri og skólaheimavistina þar, benda á, að ég hefði ekki talið neina fjarstæðu, þó að hann hefði borið fram till. um að fella niður styrk til skólabyggingarinnar og flytja hann yfir á sjúkrahúsið, því að það er skoðun a.m.k. nokkurs hluta fjvn., sem fór til Akureyrar, að það væru ekki nein vandræði, þó að stöðvaður yrði sá hluti byggingarinnar við heimavistarskólann, sem rétt aðeins hefur verið byrjað á núna, og að meiri ástæða væri til að koma áfram sjúkrahúsinu. En ég skal ekki ræða frekar það atriði.
Út af ræðu hv. 5. landsk. vil ég aðeins segja það, að eftir að hafa hlustað á ný á ræðukafla, sem ég hef haldið í sambandi við fjárl. hér áður fyrr, sýnist mér sú ræða sanna, að ég er inni á sömu braut enn. Ég benti þá á veilur og hef bent á veilur enn og sýnt fram á nú, að ekki er hægt að laga þetta nema með samstarfi. Reynslan sýnir, að hversu örugglega sem fjvn. hefur tekið á þessu máli, er ekki hægt að laga það, vegna þess að ekki er hægt að skapa samstarf milli forstjóra stofnananna og ríkisstj. og fjvn., og það er einmitt þetta samstarf, sem hv. minni hl. fjvn. vill ekki skapa. Ástæðan til þess var engan veginn sprottin af siðleysi af minni hálfu í sambandi við meðferð þessa máls í n., eins og kom fram í hinum ósæmilegu ummælum minni hl., heldur var eina ástæðan sú, að þessi minni hl. beitti sér á fyrsta stigi fyrir því að koma í veg fyrir, að takast mætti samstarf um þetta mál. Og svo segir hv. þm., að ég hafi gleymt fjórða atriðinu, sem er dýrtíðarmálin. Af hverju skapaðist dýrtíðin á Íslandi? Eins og launin hafi ekki nokkur áhrif á dýrtíðina í landinu? Það er vitað, að laun almennt eru 60–70% af öllum rekstrarkostnaði hvar sem er og við hvaða starfsemi sem er, og þessir menn hafa sí og æ reynt að halda laununum sem hæstum, enda hefur það kostað marga tugi milljóna að uppfylla þær ályktanir og þau lagafyrirmæli, sem gerð hafa verið hér á Alþ. um hækkun launa til embættismanna frá því, sem hafði verið ákveðið áður, og fyrir því hafa þessir menn mikið barizt.
Ég sé ekki ástæðu til að ræða meira við hv. 5. landsk. þm., en vildi segja örfá orð við hv. 6. landsk. — Skjöl fjvn. eru að sjálfsögðu opin, ekki aðeins öllum hv. meðnm. mínum í fjvn., heldur hverjum einasta hv. þm., og hefur þeim aldrei verið neitað um aðgang að þeim. En engum þm. er heimilt að falsa skjölin, eins og hv. þm. hefur gert, og er fyrir neðan virðingu allra þm. að leyfa sér að gera það, Þessi þm. hefur viðurkennt í sinni ræðu, að hann hafi farið rangt með útreikninga, en sagði hins vegar, að hann gæti ekki lesið þetta öðruvísi eins og því væri stillt upp. Þessi hv. þm. er skólamenntaður maður og hefur kannske ofmetnazt í skólanum, en hvert barn, sem gengur undir fermingu, getur lesið tölurnar rétt, og kemur þá annað út. — Hann var m.a. með fullyrðingu í sambandi við útgáfu bóka í Búnaðarfélaginu og tók sömu tölur og ég benti á, en gleymdi að draga frá 130 þús. kr. tekjur, sem koma af sömu útgáfu. Ef þetta er ekki að falsa tölur og skjöl, veit ég ekki, hvað er fölsun á tölum og skjölum.
Og svo kom hann með hugleiðingar um utanríkisþjónustuna, þar sem hann fór með tölur á álíka hátt og hann gerði á sínum tíma í sambandi við forsetabrennivínið, en meðnm. hans höfðu í því trausti, að hann hagaði sér eins og góður drengur, falið honum að skrifa nál. en skömmuðust sín fyrir að hafa undirritað það, þegar hann bar það á forseta Sþ., að hann græddi tugi þúsunda á því að hafa frítt brennivín frá ríkissjóði, og aðrir embættismenn landsins áttu að hafa grætt tugi þúsunda á svipaðan hátt. Svona fór hann með þær tölur. Hann talaði hér um, að þessir menn hefðu mikinn tekjuafgang vegna þess, að þeir borguðu ekki skatta af launum sínum og fengju áfengi og tóbak ókeypis, en gleymdi því, að þessir menn eru umboðsmenn íslenzka ríkisins til þess að gera margvíslega samninga og hafa í þessu tilfelli gert samninga í sambandi við efnahagsmál, sem hafa gefið á þessu ári um 200 millj. til ríkisins, þannig að það veltur á miklu fyrir íslenzka ríkið, að slíkir samningar fari vel úr hendi. Sannleikurinn er sá, að þessir menn komast ekki hjá því að brúka miklu meiri risnu vegna þeirra sambanda, sem þeir verða að hafa vegna utanríkisþjónustunnar og ekkert kemur við þeirra heimaeyðslu. Þetta skilur ekki hv. þm. — eða vill ekki skilja, ef hann óskar, að þessi þjónusta fari á sama hátt og hans betri helmingur, kommúnistarnir, vill að hún fari, þ.e. að engin utanríkisþjónusta verði nema í Rússlandi. Þess vegna falsar hann svona tölur eins og hann hefur gert og hefur í því enga afsökun aðra en þá, að hann geti ekki lesið annað úr því en þetta, eins og því er stillt upp, þó að hvert fermingarbarn ætti að geta lesið það rétt.