12.12.1951
Sameinað þing: 23. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 451 í B-deild Alþingistíðinda. (627)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1952

Forseti (JPálm):

Umr. hefst að þessu sinni með almennum stjórnmálaumr., og verður þeim hagað þannig í kvöld, að hver flokkur hefur til umráða 45 mínútur.

Röð flokkanna er þannig, að fyrst eru fulltrúar Alþfl., þá fulltrúi Sameiningarflokks alþýðu — Sósialistafl., í þriðja lagi fulltrúar Framsfl. og síðast fulltrúar Sjálfstfl. — Í kvöld verða ræðumenn flokkanna þessir: Fyrir Alþfl. hv. 4. þm. Reykv., Haraldur Guðmundsson, og hv. 6. landsk. þm., Hannibal Valdimarsson. Frá Sameiningarfl. alþýðu — Sósialistafl. talar hv. 5. landsk. þm., Ásmundur Sigurðsson. Frá Framsfl. hæstv. forsrh., Steingrímur Steinþórsson, og hæstv. fjmrh., Eysteinn Jónsson. Og frá Sjálfstfl. hæstv. atvmrh., Ólafur Thors, og hv. 2. þm. Skagf., Jón Sigurðsson.

Nú hefst umræðan, og tekur til máls hv. 4. þm. Reykv., Haraldur Guðmundsson.