12.12.1951
Sameinað þing: 23. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 459 í B-deild Alþingistíðinda. (629)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1952

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Góðir hlustendur. Ég mun aðallega gera fjárlagafrv. fyrir árið 1952 að umræðuefni þessar mínútur, sem ég hef til umráða hér í kvöld.

Samkvæmt 2. og 3. gr. fjárlagafrv. eru aðaltekjustofnar ríkissjóðs þessir:

Ég nefni fyrst tekju- og eignarskattinn ásamt tekjuskattsviðauka og hluta ríkissjóðs af stríðsgróðaskatti, sem alls er áætlaður 421/2 millj. kr., en mun aldrei verða undir 48–50 millj., þegar hann verður innheimtur af skattþegnunum.

Þá er næst að nefna vörumagnstollinn, sem áætlaður er 221/2 millj. kr. og mun aldrei verða undir 23–24 millj.

Þriðji skattstofn ríkissjóðs, sem ég nefni í þessu yfirliti, en réttast væri að nefna fyrst, þar sem hann er orðinn langhæsti tekjuliður fjárlaganna, er verðtollurinn. Hann er í frv. áætlaður 93 millj. kr. Lítur út fyrir, að hann verði á þessu ári a.m.k. 110–112 millj., og verður hann því á næsta ári með síhækkandi verðlagi varla undir 105–110 millj., jafnvel þó að eitthvað kunni að draga úr innflutningi.

Þessu næst tel ég söluskattinn, sem í frv. er áætlaður 77 millj. Virðist hann ætla að verða á þessu ári um eða yfir 100 millj. og verður með sífellt hækkandi verðlagi naumast lægri á næsta ári, — ef til vill til muna hærri. Höfum við Alþýðuflokksmenn lagt til, að hann verði felldur niður við næstu áramót, en sú till. okkar verið felld af stjórnarliðinu. Þó hafa nokkrir stjórnarsinnar nú viðurkennt í verki, að ríkissjóður geti verið án 1/4 hluta af þessum óvinsæla skatti og megi láta hann renna til aðstoðar bæjar- og sveitarfélögum. Stappaði nærri, að þessi viðurkenning leiddi til stjórnarfalls.

Seinasti hyrningarsteinninn, sem fjárlagafrv. gerir ráð fyrir að standa skuli undir útgjöldum ríkissjóðs á næsta ári, er svo Áfengisverzlun ríkisins og tóbakseinkasalan, sem ætlað er að leggja í ríkisfjárhirzluna 79 millj. kr. á árinu 1952. Á þessu ári virðast tekjur af ríkisstofnunum, en það eru að langmestu leyti brennivinsog tóhakstekjur, verða 95–96 millj. kr. Er það að minnsta kosti nýtt í sögunni, ef sá tekjustofn verður rýrari á næsta ári. Hann hefur sem sé velt utan á sig milljónum á hverju ári allt til þessa, því miður.

Þessir tekjustofnar eru sem sé hæstu tindarnir eða turnarnir upp úr tekjuhlið fjárlagafrv. árið 1952, og eru þá ónefndir ýmsir smærri bitar í ríkissjóðspottinum, svo sem innflutningsgjald af benzíni, áætlað 91/2 millj., gjald af innlendum tollvörutegundum, öli, gosdrykkjum, kókakóla, súkkulaði, karamellum, þ.e. af alls konar innlendu sælgæti, sem áætlað er 71/2 millj. kr., bifreiðaskattur áætlaður 3 millj., stimpilgjald 6 millj., veitingaskattur 21/2 millj. og enn fáeinir liðir, er nema nokkrum hundruðum þúsunda hver.

Samtals eru tekjur ríkissjóðs áætlaðar á næsta ári af hæstv. fjmrh. 357 millj. kr., og er það 59 millj. hærra en tekjur ríkissjóðs voru áætlaðar á yfirstandandi ári og skatttekjur þar með stórum hærri en nokkru sinni áður í sögu Íslands.

Nú er það komið í ljós, að tekjur ríkissjóðs á þessu ári fara hvorki meira né minna en 150– 160 millj. kr. fram úr áætlun og verða þannig um 450 millj. alls. Getur ekki hjá því farið, jafnvel þó að hæstv. fjmrh. leyfi sér að fara stórkostlega fram úr heimildum fjárlaga með gjöldin, sem ég vil þó ekki ætla honum að óreyndu, að tekjuafgangur ríkissjóðs á þessu ári verði fast að 100 millj. kr. — „Er það nú ekki óræk sönnun um glæsilega fjármálastjórn að skila slíkum tekjuafgangi í ekki betra árferði en nú er?“ mundi einhver spyrja. — Vissulega væri það svo, ef tekjuafgangurinn væri afleiðing af sparnaði og hagsýni í ríkisrekstrinum, en því fer víðs fjarri, að svo sé. Þessi tekjuafgangur er á engan hátt lofsverður, því að hann er fenginn þrátt fyrir mikla eyðslu og lítið aðhald til sparnaðar eða hagsýni um meðferð ríkisfjár, eins og síðar verður víkið að.

Lýsir það þá að minnsta kosti ekki loflegum búhyggindum hæstv. fjmrh. að áætla tekjur ríkissjóðs 150–160 millj. kr. lægri en þær reynast? — Athugum það nánar.

Hvert er hlutverk fjmrh., þegar hann undirbýr fjárlagafrv.? Tvímælalaust það að gera af samvizkusemi, skarpskyggni og þekkingu sem réttasta áætlun um væntanlegar tekjur og fyrirhuguð útgjöld ríkissjóðs á næsta ári.

Og hvernig hefur hæstv. fjmrh. tekizt að gera rétta áætlun um tekjur og gjöld ríkissjóðs fyrir árið 1951?

Það verður ekki annað sagt en að reynslan beri annað tveggja samvizkusemi hans eða þá skarpskyggni hans og þekkingu báglegt vitni.

Eða hvað segja menn, þegar áætlun ráðh. um tekju- og eignarskattinn geigar um ca. 10 millj. eða þegar skekkjan í áætlun verðtollsins nálgast 40 millj. og söluskatturinn verður a.m.k. 45 millj. hærri en hæstv. ráðh. vildi áætla hann? Já, hvað geta menn sagt um annað eins og þetta annað en það, sem er sannleikanum samkvæmt, að hæstv. ráðh. hafi tekizt að gera bandvitlausa áætlun? Og hvaða ástæður geta legið til þess, að slíkt hendir hæstv. fjmrh.? — Það er aðeins tvennt til. Annaðhvort er áætlunin gerð visvitandi röng í þeim tilgangi að blekkja Alþingi og þjóðina, og er það líklegra, þó að það sé á engan hátt lofsvert um hæstv. ráðh. Eða þá hitt, að hann hafi ekki vitað, hvað hann var að gera, hafi skort yfirsýn og skilning á verkunum þeirra stjórnaraðgerða, sem ákveðnar voru á síðasta þingi og hlutu að gerbreyta flestum tekjustofnum ríkissjóðs til stórfelldrar hækkunar. Ef þetta væri orsökin til hinnar röngu tekjuáætlunar, væri ástæðulaust, að menn bæru framvegis mikla virðingu fyrir glöggskyggni ráðh. í fjármálum; þá hefði áætlunum hans alveg eins getað geigað á hinn veginn, þannig að þær hefðu orðið 150–160 millj. neðan við gjaldaþörfina, og mundi það þá flestra mál, að ekki væri áhættulaust með öllu að hafa slíkan fjmrh.

En því er ekki til að dreifa. Eysteini Jónssyni fyrirgefst ekki skattpíning sú, sem hann beitir nú landslýðinn, út frá þeirri forsendu, að hann hafi ekki vitað, hvað hann var að gera. En þá er hann líka staðinn að því að hafa að yfirlögðu ráði pínt út úr landsmönnum á annað hundrað millj. kr. umfram þarfir ríkissjóðs. Slíkt og þvílíkt hefði e.t.v. getað talizt verjandi og afsakanlegt í veltiári, en hins vegar er því engin bót mælandi í hallærisárferði skorts og atvinnuleysis eins og nú ríkir.

Menn sætta sig í lengstu lög við þunga skatta, meðan þeir halda, að skattarnir séu krafðir inn til að standa undir óumflýjanlegum þörfum ríkissjóðs. En þegar skattarnir eru píndir út af lágtekjum manna langt niður fyrir brýnustu þurftarlaun og svimháir tollar að ógleymdum söluskattinum teknir af hverjum bita og sopa, er menn neyta, og hverri spjör, sem menn klæðast, með þeim árangri, að ríkissjóður lætur þannig greipar sópa um eignir manna og tekjur með miskunnarlausari innheimtuaðferðum en nokkru sinni hafa áður þekkzt, skattheimtu af skatti, lokun fyrirtækja o.s.frv., og allt þetta gerist í þeim tilgangi að raka saman á annað hundrað milljónum umfram þarfir ríkissjóðs, þá virðist komið út yfir öll velsæmistakmörk í skattheimtu, og þá er varla von til annars en að kurr komi upp í liði skattborgaranna og þeir láti sér jafnvel detta í hug að segja við ríkisvaldið: Hingað og ekki lengra.

Tekjuáætlun hæstv. fjmrh. í frv. fyrir árið 1952 er eins og í fyrra allt of lág, svo að tugum þúsunda nemur. Ég get í fyrsta lagi ekki ímyndað mér, að Alþingi láti það henda sig í annað sinn!að leggja blessun sína yfir áætlun, sem er fjarstæð öllum veruleika. Það væri smán fyrir Alþingi, sem þannig væri að samþykkja, að fjárveitingavaldið væri dregið úr höndum þess. Ég get í annan stað ekki ímyndað mér, að hæstv. ráðh. sjálfur kæri sig um, að reynslan sýni það einnig á næsta ári, að áætlanir hans sé bókstaflega ekkert að marka. Það mundi vægast sagt verða honum til mikils álitshnekkis, ganga mjög nærri sóma hans og tiltrú sem fjármálamanns.

Ég þykist þess því fullviss, að ráðh. beiti sér fyrir því sjálfur nú við 3. umr. ásamt stjórnarliðinu, að tekjuáætluninni verði breytt til hækkunar og hún þannig færð nær sanni. Hitt má þó vel vera, að honum endist íhaldssemi til að standa samt gegn auknum fjárveitingum til verklegra framkvæmda eða menningarmála eða þá til aðstoðar við aðþrengt atvinnulíf eða nauðstödd bæjar- og sveitarfélög, sem verða að fá öflugan stuðning af hendi ríkisstj., og að ráðh. krefjist þess heldur, að frv. verði afgr. með miklum tekjuafgangi.

Við Alþýðuflokksmenn lítum svo á, að hvorki ráðherra né ríkisstj. beri neinn réttur til að ráðstafa að eigin vild hinum stórfellda tekjuafgangi tveggja síðustu ára, þann rétt hefur Alþingi og enginn annar. Við bárum því fram við 2. umr. fjárl. till. um, hvernig tekjuafganginum skyldi varið.

Við töldum, að bygging íbúðarhúsnæðis kallaði fastast að, og lögðum því til, að ríkisstj. yrði heimilað að verja af tekjuafganginum allt að 40 millj. kr. til byggingar íbúðarhúsnæðis í kaupstöðum og sveitum, þar af allt að 15 millj. til bygginga í sveitum, allt að 15 millj. til verkamannabústaða og allt að 10 millj. kr. til smáibúða og íbúðarhúsnæðis, er bæjarfélög byggja. — Till. var felld af stjórnarliðinu, og þá er eftir að sjá, hvort hæstv. ríkisstj. með offylltan ríkiskassa milli handanna þorir að sinna húsnæðismálunum engu.

Þar næst töldum við, að ríkisvaldið ætti mest ógert í heilbrigðismálunum, og lögðum því til, að varið yrði rúmum 30 millj. kr. til byggingar heilsuverndarstöðva, héraðssjúkrahúsa og heilsuhæla. Hefur hv. 4. þm. Reykv., Haraldur Guðmundsson, gert þá till. okkar að umræðuefni, og skal ég því ekki fara um hana fleiri orðum.

Í þriðja lagi töldum við, að hinum illa fengna skattránsfeng mætti með engu móti ráðstafa svo, að ríkið sæi ekki sóma sinn í að greiða nú að mestu upp það, sem það á vangreitt af lögboðnum framlögum sínum móti bæjar- og sveitarfélögum til hafnarmannvirkja, sjúkrahúsa og skóla. — Þess vegna bárum við fram till. um, að ríkisstj. væri heimilað að verja allt að 20 millj. kr. til greiðslu á vangreiddum framlögum ríkisins lögum samkvæmt vegna hafna, skóla og sjúkrahúsa, miðað við árslok 1951.

Upplýst er, að vangreiðslur ríkissjóðs nema a.m.k. 51/2 millj. til hafnarmannvirkja og 13 millj. til skóla. Væri það til ómetanlegs hagræðis fyrir fjölda bæjar- og sveitarfélaga, sem brotizt hafa í því að undanförnu að bæta hafnarskilyrði sín eða koma upp sjúkrahúsum og skólum, en hafa brugðizt mótframlög ríkisins, ef þessi vanskil yrðu nú gerð upp og greidd að fullu, og annað er alls ekki sæmandi. Þessi till. okkar Alþýðuflokksmanna var að vísu felld eins og allar aðrar, en þó mátti sjá, að það var gert með samvizkunnar mótmælum ýmissa í liði stj. Kemur mér það mjög á óvart, ef stj. verður ekki sjálf tilneydd að taka upp þessa till. okkar í einhverri mynd.

Fjórða till. okkar út af tekjuafganginum var á þá lund að heimila ríkisstj. að verja allt að 10 millj. kr. til kaupa á 4 nýjum dieseltogurum til atvinnujöfnunar í landinu. — Þá hugmynd, að ríkið eigi og geri sjálft út nokkra togara, er hafi það hlutverk að herja á atvinnuleysið, hvar sem það gerir vart við sig, höfum við hv. 4. þm. Reykv., Haraldur Guðmundsson, tvivegis borið fram í frumvarpsformi hér á Alþingi. Fyrir okkur vakir það, að ríkinu beri að gera markvissar ráðstafanir til hagnýtingar vinnuafls og verkstöðva, og verður það að okkar áliti naumast gert á hagkvæmari hátt en þann að láta slíka ríkistogara leggja þar afla á land til vinnslu, sem atvinnuleysi gerir tilfinnanlegast vart við sig og ónotuð fiskiðjuver vantar hráefni. Reynt hefur verið að þegja þessa hugmynd í hel, en slíkt mun aldrei takast til lengdar. Þessum væntanlega „herskipaflota“ gegn atvinnuleysinu og þeim skorti, sem alltaf flýtur í kjölfar þess, verður komið upp. Til þess mun almenningsálitið neyða forráðamenn þjóðarinnar fyrr eða síðar. — Í þetta sinn var till. um lausn málsins að vísu drepin af íhaldi og Framsókn, enda virðist hugsun og hjarta þessarar ríkisstj. fremur helguð verzlunarokri, fjárplógsstarfsemi og skattpíningu en eflingu atvinnulífsins í landinu. Ber atvinnuástandið, eins og þáð nú er orðið, stjórnarstefnu hæstv. ríkisstj. næsta ófagurt vitni, hvort sem litið er til iðnaðarins eða sjávarútvegsins a.m.k.

Fimmta og síðasta till. okkar Alþýðuflokksmanna við 2. umr. fjárl. var um það að heimila ríkisstj. að lána af tekjuafganginum allt að 9 millj. kr. til byggingar fiskiðjuvera á þremur mikilsverðum útgerðarstöðum, nefnilega Ísafirði, Siglufirði og Hornafirði. — Einnig þessi till. var felld, og er þó hæstv. ríkisstj. a.m.k. fullvel kunnugt um atvinnuástandið á Siglufirði, þar sem nefnd frá bæjarstjórninni þar hefur verið hér víkum saman í haust til þess að knýja á ríkisvaldið um aðstoð gegn atvinnuleysisbölinu, sem þjáir bæjarfélagið. Svipað er ástandið á Ísafirði, enda höfuðnauðsyn' þar að byggja upp nýtízku fiskiðjuver, er annist hraðfrystingu á fiski, fiskimjölsframleiðslu, lýsisbræðslu, saltfisksverkun, niðursuðu á fiski svo og ísframleiðslu. Um það eru allir Ísfirðingar sammála, hvar í flokki sem þeir standa, að þetta sé mál málanna í atvinnulífi bæjarins í næstu framtíð, og að lausn þessa máls munu Ísfirðingar einbeita kröftum sínum á næstu árum. Slíkt mannvirki kostar milljónatugi og kemst því ekki upp, nema lánsfé fáist, en það hlýtur að fást, til þess að unnt verði að leysa málið í áföngum, þó að tvívegis á þessu ári hafi verið leitað til ríkisstj. um aðstoð við málið og í bæði skiptin án árangurs.

Ég hef nú gert grein fyrir till. Alþfl. um það, hvernig verja bæri tekjuafgangi seinasta og yfirstandandi árs. Þær voru allar beittar ofbeldi meirihlutavalds og kolfelldar þrátt fyrir fyllsta réttmæti sitt.

En eitt hefur þó áunnizt við þetta. Það er það, að fjmrh. hefur lýst yfir, að stj. muni ekki ráðstafa tekjuafganginum án heimilda frá Alþingi, hún muni leggja sínar eigin till. fyrir þingið um það, hvernig tekjuafganginum skuli varið. En hvað dvelur Orminn langa? Hví koma ekki þessar till. stj.? Það er komið fast að þingslitum, og ekkert bólar á þessum till. Ástæðan er sennilega sú, að samkomulagið á stjórnarheimilinu er orðið líkt og hjá köttunum, sem stálu ostbitanum forðum og komu sér svo ekki með neinu móti saman um, hvernig skipta skyldi ránsfengnum. Ber því nauðsyn til, að Alþingi taki í taumana og geri sinn ótvíræða skiptarétt gildandi.

Ég leit í gær á tekjuhlið fjárlaganna 1946 –fyrir 5 árum. Og hvílík umbreyting hefur orðið á tekjustofnum ríkissjóðs og talnahæð á ekki lengri tíma. Þá var vörumagnstollurinn 11 millj. Nú er hann áætlaður 21/2 millj. Þá var verðtollurinn áætlaður 35 millj. Nú er hann áætlaður 93 millj. Innflutningsgjald af benzíni var þá áætlað 1 millj. Nú er það áætlað 91/2 millj. Gjald af innlendum tollvörutegundum var þá áætlað 1.8 millj., en nú 71/2 millj. Aukatekjur hafa þrefaldazt, stimpilgjald tvöfaldazt og veitingaskatturinn þrefaldazt. Fyrir 5 árum voru tekjur af áfengi og tóbaki áætlaðar 311/2 millj., nú 79 millj. Þá var söluskatturinn enginn til, en er nú áætlaður 77 millj., og er þó vitað, að hann verður mörgum millj. hærri.