13.12.1951
Sameinað þing: 25. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 541 í B-deild Alþingistíðinda. (643)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1952

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Góðir hlustendur. Þegar ég var að hlusta á ræðu hæstv. viðskmrh. áðan, datt mér í hug, að mikið hlyti nú að vera gaman að vera viðskmrh. og sjá hugsjónir sínar í viðskiptamálum rætast jafnglæsilega og átt hefur sér stað hér á landi undanfarið. Verzlunin er frjáls! Það er nær ekkert verðlagseftirlit! Allir milliliðir mega ráða álagningu sinni, þeir geta haft hana eins mikla og markaðurinn þolir! Að vísu er 40–45% innflutningsins enn háð leyfisveitingum, og bátaútvegsmenn hafa í ár einkarétt á hér um bil 15% innflutningsins. Þar að auki er fjórðungur innflutningsins fluttur inn fyrir gjafafé, svo að meginhlutinn af nýju vörunum, sem hér sjást, er í rauninni gefinn. En þetta gerir allt saman ekkert til og veldur engum áhyggjum. Hugsjónin um frelsið, álagningarfrelsið, hefur rætzt! Sú stétt þjóðfélagsins, sem harðast hefur verið leikin af öllum á síðasta áratug, heildsalastéttin, hefur nú loks getað leyst sig úr viðjum og tryggt sér sómasamleg lífskjör!

Ekki minnist ég nokkurra eldhúsumr., þar sem ráðherrum hafa verið jafnherfilega mislagðar hendur í ræðum sínum eins og nú. Það er að vísu ekki undarlegt, því að engin ríkisstj. hefur á síðustu áratugum haft annan eins málstað að verja. Hvað segja gamlir og nýir kjósendur Framsfl. um það, að hér skuli standa hæstv. fjmrh., Eysteinn Jónsson, fjármálastjarnan frá 1934, með 370 millj. kr. fjárlög og endurtaka í sífellu: Það er ómögulegt að spara nokkurn skapaðan hlut. Það er hvergi nokkurs staðar hægt að lækka útgjöld ríkissjóðs um nokkurn eyri. — Í stjórnarandstöðu hefur enginn maður talað meira um nauðsyn sparnaðar en einmitt Eysteinn Jónsson. Enginn íslenzkur fjármálaráðherra hefur sýnt þjóðinni jafnhá fjárlög og Eysteinn Jónsson gerir nú. Og samt hefur enginn fjármálaráðherra lýst því átakanlegar, að bókstaflega ekkert sé nú hægt að spara.

Og þá var hún ekki beysin vörn hæstv. atvmrh., Ólafs Thors, í gærkvöld. Það helzta, sem menn muna úr þeirri ræðu, voru þau ummæli hans, að forsrh. Framsfl. væri haldinn framsóknarveiki ! Hæstv. atvmrh. hefur líklega orðið fyrir einhverjum vonbrigðum yfir því, að ræðumaður kommúnista í gærkvöld skyldi ekki hæla honum neitt, en kommúnistar hafa helzt vakið á sér athygli með því hér á þingi undanfarið að hæla hæstv. atvmrh. og þakka honum fyrir margvíslegar velgerðir í sinn garð. En hæstv. atvmrh. bætti það upp og hældi sér sjálfur í staðinn. Hann sagðist vera bezt til þess fallinn allra hómópata að lækna framsóknarveikina, og nú kvaðst hann ætla að vitja starfsbróður sins, hæstv. forsrh., daglega til þess að stunda hann við þessum sjúkdómi! Er það ekki dásamlegt fyrir þjóðina að fá aðrar eins upplýsingar um störf og áhugamál ráðherranna? Er þetta ekki skáldlegt og skemmtilegt? Ólafur Thors verður á næstunni önnum kafinn við að lækna Steingrím Steinþórsson af framsóknarveikinni! Þjóðin verður því að hafa hann afsakaðan, þótt hann hafi ekki mikinn tíma til þess að hugsa um atvinnuleysið og verzlunarokrið, sem nú þjakar almenning þessa lands.

Hitt er svo annað mál, að ég get vel trúað því, að þeir hittist oft elnslega á næstunni, hæstv. atvmrh. og hæstv. forsrh. Þrír þm. Framsfl. hafa nefnilega lagt fram frv. um, að Sölusamband íslenzkra fiskframleiðenda verði svipt einkaleyfi til þess að flytja út saltfisk og að S.Í.S. fái rétt til saltfisksútflutnings. Ætli það sé ekki þessi framsóknarveiki, sem hæstv. atvmrh. telur nauðsynlegt að reyna að lækna?

En hvernig svo sem fer um þær lækningartilraunir, er það víst, að eitthvað — og það meira en lítið — gengur að ríkisstj. allri. Það hafa verið pólitísk sjúkdómseinkenni á ræðum allra ráðherranna og ekki sízt á ræðu hæstv. atvmrh. í gærkvöld.

Þótt ferill ríkisstj. sé á engu sviði fagur, er hann þó ljótastur á sviði viðskiptamálanna. Kjarninn í stefnu ríkisstj. á þessu sviði hefur verið sá að afnema nær allt verðlagseftirlit. Hver hefur verið tilgangurinn? Getur hann hafa verið sá að spara útgjöld? Það er sáralítið fé, sem ríkissjóður hefur sparað við afnám verðlagsákvæðanna. Mér er tjáð, að það sé um 150 þús. kr. Og sá sparnaður er hlægilegur hégómi í samanburði við það, sem afnám ákvæðanna hefur kostað almenning í hækkandi verðlagi. En hver hefur þá verið tilgangurinn? Hann getur ekki hafa verið annar en sá að veita milliliðum skilyrði til þess að skara eld að sinni köku. Ríkisstj. hlaut að gera sér grein fyrir því, að afnám ákvæðanna mundi leiða til gífurlegs okurs, eins og líka kom á daginn. Samt afnam hún þau. Meiri hluti fjárhagsráðs, sem farið hafði með þessi mál og mesta þekkingu hafði á þeim, lagði á móti afnámi verðlagsákvæðanna. Samt knúði ríkisstj. það fram. Hæstv. viðskmrh. ræddi um það áðan, að álagningin hafi verið orðin of lág, þegar gengið var lækkað. En hann þagði um það, að álagning var tvíhækkuð eftir gengislækkunina. En milliliðunum þótti þetta ekki nóg.

Og hver varð svo afleiðing afnáms verðlagsákvæðanna? Skýrsla sú, sem verðgæzlustjóri samdi um verðlagningu vöru, sem tollafgreidd var í ágúst, sýndi svo síðlaust okur, að slíks munu ekki dæmi í nálægum löndum á síðustu tímum.

Þess voru dæmi, að innflytjendur sex- til tífölduðu álagningu sína frá því, sem leyft hafði verið. Menn leyfðu sér að leggja í heildsölu um 100 þús. kr. á vörusendingar, sem kostuðu 100 þús. kr. í innkaupi. Meðalálagning heildsala á vefnaðarvöru á frílista hækkaði um 180%, eða nær þrefaldaðist. Meðalálagning í heildsölu og smásölu á bátagjaldeyrisvörur hækkaði um 128%, og söluverð þeirra til neytenda hækkaði um 23%, eða næstum fjórðung, eingöngu vegna álagningarhækkunar milliliðanna. Ég legg sérstaka áherzlu á, að þetta eru ekki dæmi um einstakt okur einstakra manna, eins og alltaf er verið að klífa á, heldur meðaltal af þeim dæmum, sem skýrsla verðgæzlustjóra náði yfir. Og hverjum dettur í hug, að verðgæzlustjóri undir yfirstjórn hæstv. viðskmrh. hafi verið á sérstökum hnotskóg eftir okurdæmum?

Á það hefur verið lögð mikil áherzla af málsvörum ríkisstj., að þessa fyrstu skýrslu hafi í rauninni ekkert verið að marka, því að hún hafi sýnt barnasjúkdóma hinnar frjálsu verzlunar og var hæstv. atvmrh. að tala um þetta í gærkvöld og hæstv. viðskmrh. nú rétt áðan. Auk þess bættu þeir við, að ekkert væri að marka skýrsluna vegna þess, að hún hafi aðeins tekið til 2% af öllum bátagjaldeyrinum, sem verði um 90 millj. En það hlutfall er auðvitað alveg út í bláinn, því að engum hefur dottið í hug að bera skýrsluna saman við annað en innflutninginn, eins og hann er orðinn á hverjum tíma og er auðvitað miklu minni, svo að hlutfallið milli magnsins í skýrslunni og innflutningsins er miklu hærra. Ríkisstj. fullvissaði almenning um, að þetta ástand mundi lagast, eftir nokkra mánuði mundi hin frjálsa samkeppni verða búin að takmarka álagningu og lækka verðið. Hæstv. viðskmrh. talaði í útvarp og bað menn að hafa þolinmæði í svolitinn tíma. Þá mundu hinir sætu ávextir samkeppninnar koma í ljós.

Nú er hinn nauðsynlegi reynslutími liðinn. Verðgæzlustjóri hefur gert nýja athugun á verðlagningu vöru, sem tollafgreidd var í október og nóvember, og hef ég einmitt í dag fengið aðstöðu til að kynna mér þær skýrslur. Það ástand, sem þar kemur fram, er væntanlega það, sem hæstv. ríkisstj. telur eðlilegt. Og hvernig er þetta ástand?

Ég sný mér fyrst að vefnaðarvörunni, sem flutt er inn samkvæmt frílista. Athugunin tekur til innflutnings, sem er 1.3 milljónir að kostnaðarverði (920 þús. að innkaupsverði). Samkvæmt þeim verðlagsákvæðum, sem giltu eftir að tvívegis var búið að hækka þau eftir gengislækkunina, áttu heildsalar að fá 85 þús. kr. fyrir að dreifa þessari vöru, en þeir tóku 1l6 þús. kr. Þeir hækkuðu álagningu sína m.ö.o. um 108% að meðaltali, eða meira en tvöfölduðu hana. Þetta finnst hæstv. viðskmrh. hóflegt og sjálfsagt. Smásalar áttu að fá 343 þús., en tóku 459 þús. Þeir hækkuðu álagningu sína m.ö.o. um 34%, og er það miklu hóflegra. Vegna þessarar álagningarhækkunar er söluverð vörunnar til neytenda 11% hærra en það var, meðan verðlagsákvæði voru í gildi. Kaupmáttur launanna er m.ö.o. rýrður um 10% gagnvart þessum vörum, einvörðungu vegna álagningarhækkunar milliliðanna. Og þetta virðist hæstv. ríkisstj. telja hæfilegt.

Það mun varlega áætlað, að á næsta ári verði innflutningur vefnaðarvöru samkvæmt frílista 50 milljónir. Ef álagningin verður á næsta ári eins og hún reyndist í október s.l. samkvæmt skýrslu verðgæzlustjóra, verður hún 34 milljónir á þennan innflutning. Milliliðirnir fá þá 11 milljónum meira en þeir hefðu fengið, ef verðlagsákvæðin hefðu verið í gildi.

Það er tilgangslaust að hrópa, að þetta séu rangar eða villandi tölur, eins og hæstv. atvmrh. gerði í gærkvöld. Ég sé ekki, hvers vegna verið er að láta verðgæzlustjóra safna skýrslum og birta þær, ef ekkert mark má á þeim taka. Þetta er sannleikurinn, sem skýrslusöfnun verðgæzlustjóra leiðir í ljós um ástandið, eftir að hin fyrri skýrsla hafði verið birt og eftír að viðskmrh. var búinn að halda sína margumtöluðu útvarpsræðu, svo að nú verður barnasjúkdómum hinnar frjálsu verzlunar varla lengur um kennt.

Og ekki verður sannleikurinn fallegri, þegar komið er að bátagjaldeyrisvörunum.

Hin nýja skýrsla verðgæzlustjóra tekur til bátavöru að innkaupsverði 2.3 millj. kr., og er varan tollafgreidd í október og nóvember. Söluverð þessarar vöru til neytenda er 7.2 millj., eða næstum 5 millj. kr. hærri. Af þessum mismun nemur verzlunarálagning 2.2 milljónum. Samkv. verðlagsákvæðum hefði álagningin átt að nema 1.2 milljónum, svo að álagningarhækkunin vegna afnáms verðlagsákvæðanna nemur tæpri milljón á þessar 60 vörusendingar, sem tollafgreiddar voru í október og nóvember.

Bátagjaldeyrisskipulagið var, svo sem öllum er kunnugt, tekið upp til þess að aðstoða bátaútveginn í erfiðleikum hans. En hvað skyldi bátaútvegurinn hafa fengið í sinn hlut af þessum 60 vörusendingum? 941 þús. kr. Álagningarhækkun milliliðanna nam hins vegar 990 þúsundum, eða tæpri milljón.

Hvað segja útvegsmenn um þetta? Eru þeir ánægðir með, að milliliðir skuli fá meira í viðbótarálagningu á þessar vörur en þeir fá sjálfir alls? Og hvað segir almenningur? Honum var sagt að sætta sig við bátagjaldeyrisskipulagið og þá óbeinu gengislækkun, sem í því fólst, vegna þess að það væri nauðsynlegt vegna bátaútvegsins. En svo sýna athuganir verðgæzlustjóra, að milliliðir stinga í sinn vasa viðbótarálagningu, sem nemur meira en öllu því, sem bátaútvegurinn fær! Á móti hverri krónu, sem útvegsmaðurinn fær, tekur milliliðurinn aðra krónu í hækkaðri álagningu. Útvegsmönnum mun hafa verið lofað 90 milljónum í sambandi við þetta skipulag. Ef milliliðirnir halda áfram að fá jafnmikið og þeir fengu í október og nóvember, þá fá þeir aðrar 90 milljónir í viðbótarálagningu! Slíkt getur varla gerzt og má auðvitað heldur ekki gerast. En gagnráðstafanir þarf að gera í tíma.

Ýmsir ráðherrar sögðu á sínum tíma, að ef okrið, sem kom í ljós við fyrstu skýrslu verðgæzlustjóra, héldi áfram, mundi verða gripið í taumana. Það er rétt, að þessi seinni skýrsla sýnir ekki eins taumlaust okur og hin fyrsta, og er það vafalaust að mestu leyti að þakka því aðhaldi, sem slík skýrslusöfnun veitir. En samt er ástandið eins dæmalaust og ég hef verið að lýsa. Hvenær finnst hæstv. ríkisstj. nóg komið? Og hversu lengi ætlar almenningur að sætta sig við slíka viðskiptahætti?

Það er rétt að gera almenningi nokkra grein fyrir því, hvað hann eiginlega er að greiða, þegar hann kaupir bátagjaldeyrisvöru, og er þetta sérstaklega athyglisvert núna í jólakauptíðinni.

Þegar þú, hlustandi góður, kaupir einhverja útlenda flík, sem flutt er inn fyrir bátagjaldeyri og kostar 100 kr. í búðinni, þá ertu að greiða kr. 33 í erlent innkaupsverð, þú ert að greiða ríkinu 25 kr. í tolla og söluskatt, útgerðarmanni 9 kr. í bátagjald, smásalanum 21 kr. í álagningu og heildsalanum 10 kr. í álagningu. Sú álagningarhækkun, sem þú greiðir smásalanum vegna afnáms verðlagsákvæða, nemur 7 kr., og sú hækkun, sem þú greiðir heildsalanum, nemur 6 kr. Álagningarhækkunin, sem þú greiðir, nemur því 13 krónum af þessum 100 kr. kaupum.

Við skulum athuga aðra vöru.

Þú kaupir ávexti fyrir 100 kr. til jólanna. Af þeim eru 28 kr. erlent innkaupsverð, ríkið tekur 26 kr. í tolla og söluskatt, útgerðarmaðurinn aðrar 16 kr., smásalinn fær 23 kr. og heildsalinn 9 kr. Álagningarhækkun milliliðanna nemur 15 kr., eða meira en helmingi þess, sem varan kostar í innkaupi. Þú greiðir 15 kr. meira en ella vegna þess, að verðlagsákvæðin voru afnumin. — Hvernig lízt þér á þessa verzlunarhætti ?

Að síðustu þetta. Þessar eldhúsdagsumr. eiga að hjálpa þjóðinni til þess að gera sér grein fyrir kostum og göllum ríkisstj. og stefnu hennar. Hvað er þá eðlilegra en hver stétt um sig hugleiði, hvað ríkisstj. hefur fyrir hana gert? Mig langar til að spyrja þá verkamenn, sem mál mitt heyra, hvað þeim finnist ríkisstj. hafa gert fyrir sig. Eiga þeir að þakka henni fyrir, að nú eru 1200–1500 manns atvinnulausir hér í Reykjavík og vafalaust 2000–3000 á öllu landinu? Geta sjómenn þakkað henni fyrir góðar undirtektir í kjarabaráttu þeirra? Eiga iðnaðarmenn að þakka henni fyrir ástandið í byggingariðnaðinum? Og eiga þeir 400–500 iðnverkamenn, sem hefur verið sagt upp vinnu í verksmiðjum á þessu ári, að syngja henni sérstakan lofsöng? Mig langar til að spyrja bændur, hvort þeir séu ánægðir með áhrif gengislækkunarinnar á framleiðslukostnað sinn og skilyrðin til áframhaldandi aukningar á vélanotkun. Mig langar til að spyrja opinbera starfsmenn, hvort þeim finnist það hafa gengið vel að fá sjálfsögðum óskum sínum í launamálunum framgengt. Og mig langar til að spyrja sparifjáreigendur, hvort þeim finnist ríkisstj. hafa staðið traustan vörð um verðgildi peninganna.

Ég veit, hverju allir þessir aðilar svara. Engin þessara stétta á ríkisstj. nokkuð gott upp að unna. En sú stétt er þó til, sem ríkisstj. hefur verið blíð og eftirlát og sannarlega má vera henni þakklát. Það eru heildsalarnir hér í Reykjavík. En þeir eru eina stéttin, sem hefur stórhagnazt á stefnu núverandi ríkisstj. Þeir voru ríkastir fyrir. Líklega er það þess vegna, sem ríkisstj. hefur talið það sjálfsagt að gera þá eina ríkari, um leið og allir aðrir verða fátækari.

Heildsalar stórauka gróða sinn. Almenningur býr við atvinnuleysi og okur. Það er meginafleiðingin af stefnu hæstv. ríkisstj.