19.12.1951
Sameinað þing: 26. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 582 í B-deild Alþingistíðinda. (660)
1. mál, fjárlög fyrir árið 1952
Sigurður Guðnason:
Herra forseti. Ég flyt hér eina brtt. ásamt hv. 1. landsk. á þskj. 520, XX. Sams konar till. var flutt við 2. umr. af hv. 5. landsk. og var þá um 10 millj. kr. til atvinnubóta, en hún var felld, og flytjum við nú þessa brtt. Það væri ef til vill, þótt ekki hafi liðið nema 1/2 mánuður síðan till. kom fram, ástæða til að hækka hana, því að síðan hefur atvinnuástandið og dýrtíðin stórversnað. Það er dálítið einkennilegt, að á fjárl. hefur staðið í nokkur ár 5 millj. kr. framlag til atvinnuaukningar, en er svo kippt burt, þegar veruleg þörf verður fyrir þetta fé. Það mun engum hv. þm. detta í hug, að ekki sé þörf fyrir stj. að hafa þessa heimild, því að það er öllum ljóst, eins og atvinnuástandið er í landinu, að óhæft er að ganga svo frá fjárl., að ekki sé neitt fé veitt til atvinnuaukningar. — Mér fannst eftir þeim umr., sem hér hafa farið fram, að menn væru komnir í jólaskap, þegar rætt var um söluskattinn. Það getur vel verið, að þm. séu komnir í jólaskap út af ríkiskassanum. En fólk yfirleitt er ekki í jólaskapi, þegar það hugsar um sinn kassa. Þar er vá fyrir dyrum, og það væri full þörf að taka þessa smáupphæð inn á fjárl., og vona ég, að hv. þm. sjái sér fært að muna eftir þessu fólki á þann hátt að taka till. vel og samþykkja hana.