19.12.1951
Sameinað þing: 26. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 586 í B-deild Alþingistíðinda. (662)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1952

Sigurður Ágústsson:

Herra forseti. Ég hef flutt hér nokkrar brtt. á þskj. 520.

Það er í fyrsta lagi till. nr. IV. á því þskj., sem er við 13. gr. fjárl., nýr liður, að til Hellissandsvegar verði veittar 200 þús. kr. Að ég flyt þessa brtt. hér, en hef ekki reynt að fá þessa veitingu hjá hv. fjvn., stafar af því, að ég tei, að hér standi sérstaklega á. Þessi vegarlagning undir Enninu mundi ekki aðeins koma Hellissandi og Ólafsvík til góða, heldur mundi hún og koma væntanlegri Rifshöfn til góða, og það er nauðsynlegt, að þarna verði komið á vegasamband um það leyti, sem Rifshöfn verður tekin til notkunar, sem menn vona nú að geti orðið á næsta ári. Það er því margra hluta vegna nauðsynlegt, að þessi vegur undir Enninu verði fullgerður sem allra fyrst. Það er þegar búið að leggja veg um Hellissand, utanvert við Ennið, en undir sjálfu Enninu er vegur enn ólagður. Það eru býsna mörg ár síðan gert var ráð fyrir, að vegur kæmi undir Ennið, og fyrir nokkrum árum var áætlað, að hann mundi kosta um 600 þús. kr. Að sjálfsögðu yrði kostnaðurinn allmiklu meiri nú en ég tel nauðsynlegt, að þegar á næsta ári verði byrjað á þessum vegi. Ég vona því, að hv. þm. geti verið sammála um að veita þessa upphæð, sem ég fer fram á í minni brtt.

Þá er það 2. liður þessarar brtt., sem er líka við 13. gr. fjárl. og er um það, að til brúargerðar á Kársstaðaá verði veittar 170 þús. kr. í stað 130 þús., eins og hv. fjvn. hefur lagt til. Það var till. vegamálastjóra, að lagt yrði til þessarar brúar 170 þús. kr., en það er sú upphæð, sem áætlað var að brúin mundi kosta. Það yrði illt til þess að vita, ef það þyrfti að fresta að taka þessa brú í notkun aðeins vegna þess eins, að það vantaði 40 þús. kr. til að ljúka framkvæmdinni, þegar líka er á það litið, að til hennar er fyrirhugað að veita 130 þús. kr. samkvæmt fjárlögum. Það eru því aðeins þessar 40 þús. kr., sem hafa úrslítaþýðingu um það, hvort þessi brú kemst á á næsta ári, og vona ég því, að hv. þm. taki þessari till. vel.

Þá flyt ég á sama þskj. brtt. við 13. gr. fjárl., það er brtt. VII á því þskj., þar sem ég fer þess á leit, að til hafnarinnar í Ólafsvík verði veittar 150 þús. kr. í stað 60 þús., eins og gert er ráð fyrir í fjárlfrv. Það hefur verið unnið töluvert mikið að hafnarframkvæmdum á yfirstandandi ári í Ólafsvík, eða fyrir um 600 þús. kr., og á næsta ári þyrfti að vinna þar fyrir allt að 1/2 millj. kr. Ólafsvíkurhöfn á 130 þús. kr. óborgaðar, sem ríkissjóði ber að leggja fram til hafnarinnar. Það hefur því komið fram einhuga ósk frá hreppsnefnd Ólafsvíkur um það, að framlag ríkisins til hafnarinnar verði hækkað úr 60 þús. kr. upp í 150 þús. kr.

Þá er enn á sama þskj. brtt. frá mér við 15. gr., till. nr. XIII á því þskj., þar sem ég leyfi mér að leggja til, að til amtsbókasafnsins í Stykkishólmi verði veittar 10 þús. kr. í stað 4500 kr. eins og hv. fjvn. hefur lagt til. Ég hef nokkrum sinnum áður mælt með þessari till. hér á Alþ., en hún hefur þó ekki fengið hljómgrunn hjá hv. alþm., og ég fæ ekki skilið, að nokkur sanngirni geti verið í því að vinna gegn samþykkt hennar. Það eru til þrjú önnur amtsbókasöfn á landinu, á Akureyri, Seyðisfirði og í Reykjavík, eða var þar að minnsta kosti. Til hinna bókasafnanna eru veittar 13 þús. kr., nema til bókasafnsins á Seyðisfirði, þar sem gert er ráð fyrir 6250 kr. Hins vegar hafa þeir nú, hv. þm. Seyðf. og hv. 10. landsk. þm., flutt till. um, að framlagið til amtsbókasafnsins á Seyðisfirði verði hækkað upp í 10 þús. kr. Við væntum þess allir, að hv. alþm. geli fallizt á að sýna þessum bókasöfnum þann skilning, að til þeirra verði veittar þessar fjárupphæðir, þ.e. 10 þús. kr. á hvorn stað. Ég vil taka það fram, að það er allmikið fé, sem Stykkishólmskaupstaður og sýslan veita til amtsbókasafnsins árlega.

Þá er ég flm. að till. nr. XXIV á þessu sama þskj., þskj. 520, ásamt þeim hv. þm. Vestm. og hv. 6. landsk. þm., sem er um það, að ríkið leggi fram 100 þús. kr. aukastyrk til að örva leiklistarstarfsemi leikfélaga utan Reykjavíkur. Við flm. þessarar till. erum þeirrar skoðunar, að nauðsynlegt sé að auka áhuga fólks í kaupstöðum og kauptúnum og sveitum landsins fyrir leiklistinni, og við erum sannfærðir um, að slíkir styrkir sem þessi mundu valda straumhvörfum í þessu efni.

Þá er það að lokum till. nr. XXVIII á þessu sama þskj., sem ég flyt ásamt þeim hv. þm. V-Ísf., hv. 1. þm. Árn. og hv. 6. þm. Reykv. og fjallar um það, að Sigurði Birkis verði veittar 20 þús. kr. í byggingarstyrk og til vara 15 þús. kr. Við flm. þessarar till. teljum, að Sigurður Birkis hafi unnið mikið og þarft verk í okkar þjóðfélagi. Hann hefur ferðazt um landið og komið upp kirkjukórum og eflt kirkjusöng við fjölmargar kirkjur landsins og með því valdið straumhvörfum í kirkjusókn, og því teljum við, að hann sé þess fyllilega maklegur, að honum verði veittur þessi byggingarstyrkur. Hann hefur undanfarin tvö ár verið að reyna að koma sér upp húsi í Reykjavík, og mun hann hafa í hyggju að annast söngkennslu fyrir kirkjukóra í því húsi. Við flm. væntum þess því, að hv. þm. verði sammála um að veita Sigurði Birkis þennan byggingarstyrk.

Þá vil ég aðeins í sambandi við eina brtt. hv. meiri hl. fjvn. geta þess, að ég hjó eftir því, að það ætti að greiða Húsavíkurhöfn 240 þús. kr. vegna samninga við síldarverksmiðjur ríkisins. Ég hef átt tal við formann síldarverksmiðjanna um þetta, því að mér kom þetta dálítið einkennilega fyrir sjónir, þar sem ég hef setið tvö ár í stjórn verksmiðjanna og hef aldrei heyrt þessarar kröfu getið. Ég vil taka það fram, að stjórn síldarverksmiðja ríkisins hefur raunar ekkert við það að athuga, þótt ríkið greiði Húsavíkurhöfn þessar 240 þús. kr., en hún telur það bara ekki gert vegna síldarverksmiðja ríkisins, eins og stendur í till. hv. meiri hl. fjvn. Þetta vildi ég aðeins láta koma fram, því að stjórn síldarverksmiðjanna telur sig ekki hafa gert neina þá samninga við Húsavíkurhöfn, þar sem í felist ósk um, að þessi upphæð verði greidd í nafni síldarverksmiðja ríkisins.