19.12.1951
Sameinað þing: 26. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 588 í B-deild Alþingistíðinda. (666)
1. mál, fjárlög fyrir árið 1952
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Ég á hér ásamt öðrum tvær till. um sama efni á þskj. 520. Eru þær nr. XIX og XXVII, og flyt ég þær ásamt 6. þm. Reykv. og 4. landsk. þm.
Till. nr. XIX fjallar um það að veita 2 millj. til útrýmingar heilsuspillandi húsnæði skv. III. kafla laga nr. 44 7. maí 1946, og enn fremur flytjum við varatill. um, að veittar verði 800 þús. kr. Við fluttum við 2. umr. till. um, að veitt yrði í þessu skyni 1 millj. kr., en þar sem þá virtist svo sem þm. stjórnarflokkanna teldu það vera of lítið, berum við fram till. nú um, að þarna verði veittar 2 millj., en ef svo skyldi fara, að þeir verði fleiri, sem álíta, að það sé of mikið, þá höfum við flutt varatill. um 800 þús., og ættu þeir þá að geta samþ. hana, þar sem hún er lægri.
Till. nr. XXVII er um það að taka fé að láni eða verja fé af tekjuafgangi ríkissjóðs til þess að lána bæjar- og sveitarfélögum til útrýmingar heilsuspillandi húsnæði skv. III. kafla laga nr. 44 7. maí 1946, og sé lánsupphæðin í hlutfalli við framlög ríkissjóðs samkvæmt lögum. Hv. þm. vita, hvert hlutfallið var þarna á milli, en það var það, að lána átti 75%.
Ég þarf ekki að fjölyrða um nauðsyn þessa máls, hún er öllum mönnum kunn, og vænti ég þess, að hv. þm. geti léð brtt. atkv. sitt.