19.12.1951
Sameinað þing: 26. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 588 í B-deild Alþingistíðinda. (667)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1952

Jón Pálmason:

Herra forseti. Við 2. umr. flutti ég brtt. um að verja til sjúkrahúsbyggingar á Blönduósi 500 þús. kr., en við nánari athugun tók ég hana aftur til 3. umr. í von um, að hún fengi ef til vill náð hjá hv. fjvn. Áð vísu hefur hún nú hækkað framlagið til sjúkrahúsa og læknisbústaða um 450 þús. kr. En vegna þess, að mér er kunnugt um, að margir spítalar eru, sem ekki veitir af styrk, þá er varla von, að mikið verði gert fyrir ekki hærri upphæð. Ég hef þess vegna leyft mér að flytja brtt. við þetta og legg til, að upphæðin verði hækkuð upp í 1 millj. 250 þús. kr.

Annars verð ég að ítreka það, sem ég sagði við 2. umr. fjárl., að mér þykir það undarlegt, hvað þessi liður hefur orðið útundan hjá fjvn. Fjárl. eru nú komin upp í 380 millj., og þó er ekki ætluð 1 millj. til allra sjúkrahúsa utan Akureyrar og Reykjavíkur, og þó vita allir, að það er ekki hægt að koma upp myndarlegu sjúkrahúsi fyrir minna en 2–3 millj., og af því á ríkið að greiða ýmist 2/3 eða 2/5. En það er um þetta nýja sjúkrahús á Blönduósi að segja, að ef ríkið ætti að standa við sínar skuldbindingar í þeim efnum, þá ætti það að greiða til þess 2 millj., og eftir þessu tæki það 4 ár að greiða þá upphæð og fullnægja sínum skyldum. Eða er það nokkurt samræmi að ætla til allra sjúkrahúsa 1 millj. eða samsvarandi því, sem ætlað er til eins skóla? Það verður að segjast eins og það er, að það er margt ósamræmið í þessu frv. Og ég vil leyfa mér að lýsa yfir óánægju minni yfir því, ef fjvn. ætlar að halda fast við þá ákvörðun að veita ekki meira fé til þessara framkvæmda. Hér er fé, sem er alveg sambærilegt við það fé, sem ætlað er til hafnar- og lendingarbóta, og þess vegna eðlilegt, að fjvn. veiti til þess fé í samræmi við það, en til allra sjúkrahúsa mundi 1 millj. lítið hrökkva.

Ég vil svo vænta þess, að þó að fjvn. hafi ekki fallizt á þessa till., þá fái hún góðar undirtektir.