20.12.1951
Sameinað þing: 27. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 620 í B-deild Alþingistíðinda. (689)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1952

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Það er nú vitað, að þessi menningarstofnun hefur verið vanrækt undanfarið, og geta þó forsvarsmenn stofnunarinnar ekki borið neina ábyrgð þar á. Nú hafði ég hugsað mér, að þetta yrði ekki hægt á þessu ári, en þar sem nýlega hefur verið samþ. að veita fé til nýs menntaskóla, þá segi ég já.