12.11.1951
Neðri deild: 26. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 624 í B-deild Alþingistíðinda. (706)

33. mál, fólksflutningar með bifreiðum

Jón Pálmason:

Herra forseti. Ég verð að segja það, að það kom illa við marga úti um land, þegar tekinn var upp sá háttur samkv. reglugerð að heimta leyfi af öllum, sem slógu sér saman í hópferð innan héraðs. Ég held, að þetta hafi komið mönnum á óvart, a.m.k. bilstjórum, sem höfðu haft slíkar ferðir á hendi án þess að þurfa til þess sérstakt leyfi og án þess að borga fyrir það nokkurt sérstakt gjald.

Mér finnst þó fulllangt gengið í till. hv. 2. þm. Reykv. um, að einnig skuli undanþegnar hópferðir milli héraða, en ég tel, að hópferðir á héraðsmót og innan héraða eigi að vera undanþegnar. Vil ég því leyfa mér að leggja fram skriflega brtt., svo hljóðandi: „Síðari hluti till. frá orðinn „fólksflutningsferðir“ orðist svo: á héraðsmót og fjölsóttar skemmtanir innan héraðanna.“ Þarna eru ekki undanskildar hópferðir farnar á lengri leiðum. — Ef hæstv. forseti vill leita afbrigða fyrir þessari till., getur málið komið strax til afgreiðslu. Annars mætti málið bíða, ef hv. nefnd vill athuga það nánar.