10.12.1951
Neðri deild: 39. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 630 í B-deild Alþingistíðinda. (722)
33. mál, fólksflutningar með bifreiðum
Einar Olgeirsson:
Brtt. hæstv. viðskmrh. fer fram á, eins og sagt er á þskj. 364, að það þurfi ekki sérleyfi, þegar um hópferðir er að ræða innan hvers lögsagnarumdæmis. Í þessu sambandi skulu bæjarfélögin teljast til þess lögsagnarumdæmis, sem næst þeim er. Ég verð að segja, að þó að þessi till. sé til orðin sem samkomulag út frá brtt., sem ég hef borið fram við 2. umr. þessa máls, þá er ég hræddur um, að hún sé ófullnægjandi. T.d. geta Reykvíkingar farið án þess að spyrja um leyfi upp í Kjós í smáferðalag, en ef þeir nálgast Þingvelli, þurfa þeir sérleyfi. Hins vegar vil ég segja, að með tilliti til þess, að þessi brtt. bætir nokkuð fyrir þessum hópferðum, finnst mér von um, að hún fáist betur liðkuð til síðar, og lýsi því yfir, að ég er henni fylgjandi.