04.01.1952
Efri deild: 54. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 636 í B-deild Alþingistíðinda. (752)

18. mál, bifreiðalög

Frsm. (Rannveig Þorsteinsdóttir):

Herra forseti. Þetta er alveg ljóst, sem hæstv. dómsmrh. benti á, enda var það skoðun okkar í n., og vil ég fyrir hönd n. fallast á skoðun hæstv. dómsmrh. Greinin yrði hins vegar of þunglamaleg og fyrirferðarmikil um svo lítið efni, ef þessi tilfelli hefðu bæði verið tekin með, og var ágætt að fá skýringu hæstv. dómsmrh. einmitt hér núna.