04.10.1951
Efri deild: 3. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 641 í B-deild Alþingistíðinda. (783)
19. mál, áfengislög
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Eins og hv. þm. muna, þá var á stríðsárunum heimild í l. til þess að brugga og selja öl til brezka setuliðsins, sem þá dvaldist hér. Nú, þegar erlent varnarlið er komið til landsins, þótti eðlilegt, að sams konar heimild yrði veitt. Við athugun kom í ljós, að gamla heimildin nægði ekki, og því þótti rétt að veita þessa heimild með þeim hætti, sem gert er í þeim brbl., sem hér er leitað staðfestingar á. Hins vegar hygg ég, að enn þá hafi ekki orðið úr þessari framleiðslu eða framkvæmdum.
Þar sem þetta mál varðar aðeins tiltekinn hluta áfengislaganna, en ekki áfengislögin öll, og hér er nánast um iðnaðarframleiðslu að ræða innanlands, sem þó ekki kemur borgurum landsins beinlínis til nota, þá þykir mér eðlilegast að vísa málinu til hv. iðnaðarnefndar.