18.10.1951
Neðri deild: 14. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í B-deild Alþingistíðinda. (79)
61. mál, gjaldaviðauki
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Herra forseti. Frv. þetta fjallar um framlengingu á ýmsum gjaldahækkunum, sem gilda í ár, og sömu ástæður eru nú sem áður fyrir þeim. Þarf ég ekki að hafa fleiri orð um það, en legg til, að því verði vísað til 2. umr. að lokinni þessari umr. og til fjhn.