04.01.1952
Efri deild: 54. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 653 í B-deild Alþingistíðinda. (799)

19. mál, áfengislög

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Ég vil aðeins skýra frá því, að eftir því sem mér var þá sagt frá, virtist vera öruggur grundvöllur fyrir því, að þessi framleiðsla gæti átt sér stað, með því samkomulagi, sem fengið var, þannig að ef það stóðst ekki á, er það ekki á neinn hátt sök n. Og eins og ég sagði, verður heimildin ekki notuð, nema því aðeins að þau skilyrði verði fyrir hendi, sem n. hefur byggt á, svo að allar ásakanir á hana eru ástæðulausar.