10.10.1951
Neðri deild: 6. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 26 í B-deild Alþingistíðinda. (8)
39. mál, lántaka vegna landbúnaðarframkvæmda
Atvmrh. (Ólafur Thors):
Hæstv. fjmrh. hefur sagt það, sem máli skiptir, til að upplýsa fyrirspurn hv. þm. Hafnf. Ég leiði aðeins athygli að því, að þó að þessi lántaka hefði ekki rýrt möguleika fyrir lántöku hjá Alþjóðabankanum í þágu sementsverksmiðjunnar, þá mundi vafalítið hafa orðið dráttur á framkvæmdum, því að ég held það sé nokkuð samhuga álit flestra þeirra, sem eru kunnugir þessu máli, að okkur er tæplega fært að ráðast í það fyrirtæki fyrr en lokið er virkjununum og áburðarverksmiðjunni. Og mér finnst ástæða til að ætla, að nokkur dráttur — svo að ég orði það ekki sterkar — verði á því, að þessum stóru mannvirkjum verði lokið, umfram þann tíma, sem ætlaður var í öndverðu. Af þeim ástæðum mundi sementsverksmiðjan eitthvað hafa dregizt. En ég er ekki alveg sannfærður um, að af þessari lántöku þurfi að leiða verulegan drátt umfram það, sem stafar af þeim ástæðum, sem ég áðan gat um. Að vísu er rétt, sem hæstvirtur fjmrh. sagði, að afgreiðslufrestur véla og verkfæra til verksmiðjunnar er mjög langur og þess vegna æskilegt að hafa ákveðið fyrirheit um fé til sementsverksmiðjunnar nægilega snemma, til þess að hægt sé að hefjast handa þegar sýnt þykir, að hinum framkvæmdunum muni verða lokið. En ég skal aðeins bæta þessu tvennu við: Fyrst, að ég tel nokkuð sterkt að orði komizt, að þetta lán þurfi að loka fyrir lántökumöguleika í Alþjóðabankanum á næstu missirum, en við kunnum að hafa þrengri dyr inn um að komast. Í öðru lagi, að það er samhuga vilji allrar stj. að neyta allra eðlilegra og skynsamlegra úrræða til lántöku með það fyrir augum, að framkvæmd verksmiðjubyggingarinnar tefjist ekki af þeim ástæðum. Og þá á ég við, að hægt verði að hefjast handa með fullri athafnasemi þegar hinum stóru virkjunum er lokið eða er um það bil að ljúka.
Annarri fyrirspurn hv. þm. Hafnf. hefur verið svarað. En mér þykir rétt að taka fram, þar sem ég hef fram á þetta þing farið með iðnaðarmálin, sem ég geri ekki lengur, að ég lagði nokkra áherzlu á, að þau yrðu ekki útundan, og var engin fyrirstaða hjá ríkisstjórninni um það.