07.01.1952
Neðri deild: 54. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 666 í B-deild Alþingistíðinda. (843)
155. mál, greiðsluafgangur ríkissjóðs
Stefán Jóh. Stefánsson:
Herra forseti. Ég vil aðeins segja nokkur orð um þetta mál við 1. umr. þess og ætla aðeins að vekja athygli á tveimur atriðum varðandi frv. Ég hafði búizt við, að meira yrði veitt til þess að bæta úr þeirri þörf, sem byggingarsjóður verkamanna er í. Ég veit, að hæstv. ráðh. er hún vel kunnug, þar sem hann á sæti í stjórn sjóðsins, og ég hafði vonað, að til hans yrði meira lagt en gert er í þessu frv. Ég hafði líka vonað, að hv. 8. þm. Reykv. yrði áhrifameiri á þessa stj., sem hann styður, heldur en kemur í ljós í þessu frv. Hann hafði áður lagt til, að í þessu skyni yrðu veittar 10 millj., en hér koma ekki nema 4 millj., og má segja, að smátt er smjörið skammtað. Alþfl. mun athuga, hvort ekki er ástæða til að reyna að koma fram með brtt. um þetta ákvæði.
Hitt atriðið, sem ég vildi vekja athygli á, er í niðurlagi 1. gr., en þar er gert ráð fyrir, að vextir af þessum lánum verði 51/2% óg lánstíminn 20 ár. Mér finnst þessi vaxtafótur vera nokkuð hár, þegar á það er litið, til hvers á að verja fénu. Og um byggingarsjóð verkamanna er það að segja, að hann lánar fé út með 3% vöxtum, svo að með þessu vaxtafyrirkomulagi er beinlínis gengið á höfuðstól sjóðsins sjálfs til þess að greiða þann mismun, sem er á þessum vöxtum, og með tilliti til þess, að ríkissjóður ráðstafar fé sinn á þennan hátt, þá finnst mér sanngjarnt, að vextirnir væru lægri en hér er gert ráð fyrir. Ég veit ekki, hvað ríkissjóður þarf að greiða Landsbankanum í vexti af yfirdráttarlánum sínum, en ég geri ráð fyrir, að þeir vextir séu ekki mjög háir, þar sem jafnvirðissjóður liggur í Landsbankanum, þ.e.a.s. annarri deild hans, og vextir hans hljóta að koma þar til greina. — Ég vil aðeins nefna þetta atriði og taka það fram, að Alþfl. mun freista þess að bera þarna fram brtt.
Að öðru leyti þykir mér vænt um, að ríkisstj. hefur borið þetta frv. fram og með því sýnt lit á að greiða nokkuð úr þeirri miklu lánsfjárþörf, sem um er að ræða nú, og verja til þessara framkvæmda hluta af tekjum sínum, þó að það sé raunalega lítið og um það megi deila, hvort hlutfallið milli hinna einstöku liða sé rétt. En það atriði má athuga nánar seinna, og 1æt ég þetta nægja nú við þessa 1. umr. málsins.