07.01.1952
Neðri deild: 54. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 667 í B-deild Alþingistíðinda. (844)

155. mál, greiðsluafgangur ríkissjóðs

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Það er ekki ástæða til að halda langa ræðu um þetta mál nú við 1. umr., en eins og hv. 8. landsk. þm. tel ég rétt að vekja athygli á einu atriði, sem ég held að þurfi að athuga nánar. Þessu máli verður annars væntanlega vísað til nefndar. sem ég á sæti í, og gefst þá tækifæri til að ræða það þar nánar og bera fram við það brtt. og eins við 2. umr. þess. Ég hef því hugsað mér að geyma að ræða það nú og flytja við það brtt. og ræða það nánar síðar.

En það er eitt atriði, sem ég held, að hljóti að koma sérstaklega til athugunar, en það eru vaxtagreiðslurnar. Mig minnir, að þegar fyrstu lánin úr mótvirðissjóði voru veitt, þá hafi vaxtafóturinn verið 51/2% og stjórnir Sogs- og Laxárvirkjananna gengið inn á þau lánakjör, og nú er það komið til kasta Alþ. að ákveða, hvað þessir vextir skuli vera háir. Eins og menn vita, eru vextir af lánum, sem margar af þeim stofnunum, sem þessi lán eiga að fá, veita, miklu lægri en hér er lagt til, og hingað til hefur ekki þótt rétt að setja svo háa vexti á þau lán, sem ríkið hefur veitt, m.a. til landbúnaðarins og sjávarútvegsins. Ég geng út frá því, að auk þess sem það muni koma fram brtt. við vaxtakjör þessara lána, þá muni einnig koma til athugunar nú, hvað háir skuli vera vextir af þeim lánum, sem veitt eru til Sogs- og Laxárvirkjananna.

Af því að hér er gert ráð fyrir, að vextir verði 51/2%, langar mig til að spyrja ríkisstj., hvort hún hafi hugsað sér að fara að hækka vexti í landinu og hvort þessir háu vextir standi nokkuð í sambandi við breytta pólitík á því sviði. Hingað til hefur annað sjónarmið verið látið ráða í lánum sem þessum en hreint bankasjónarmið. Og mér finnst það vera óviðkunnanlegt, að ríkið fari að ganga á undan í því að setja háa vexti á þau lán, sem það veitir. Það hefur verið svo, þegar ríkið hefur lánað fé til ýmissa framkvæmda, að ekki hafa verið látnir vera uppsprengdir vextir af þeim lánum, og margar af þeim stofnunum, sem hér er um að ræða, lána út til sinna félagsmanna með allt niður í 2% vexti, svo að með þetta háum vöxtum er ríkið beinlínis að neyða þessar stofnanir til að ganga ú stofnfé sitt, og það er mitt álit, að það sé ekki rétt pólitík.

Að öðru leyti mun ég ekki ræða þetta mál frekar við þessa umr.