17.01.1952
Efri deild: 60. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 706 í B-deild Alþingistíðinda. (921)
166. mál, samkomulag reglulegs Alþingis 1952
Forsrh. (Steingrímur Steinþórsson):
Herra forseti. Ég þakka meiri hl. allshn. fyrir afgreiðslu þessa frv. En út af því, sem fram hefur komið bæði hjá minni hl. allshn. og eins hjá öðrum hv. þingdeildarmönnum, vildi ég aðeins segja nokkur orð.
Hv. 7. landsk. skýrði sína afstöðu móti frv. með því að segja, að hið alvarlega ástand, sem nú væri í atvinnumálum Reykvíkinga, gerði það að verkum, að hann teldi ekki forsvaranlegt að fresta Alþ. því, sem á að koma saman 15. febr. næstkomandi.
Ég verð að segja, án þess að rökræða, að hve miklu leyti þetta er rétt, að hann taldi aðalástæðuna fyrir atvinnuleysinu vera stefnu núverandi ríkisstj. í fjárhagsmálum. Þetta var eina orsökin, sem hann nefndi, til þess atvinnuleysis, sem nú ríkir.
Þar sem Alþingi er nú búið að sitja síðan 1. okt. og mun sitja nokkra daga enn þá, er óhugsandi, að þeir menn, sem andvígir eru stefnu ríkisstj., hafi enn ekki komið með mál sín fram fyrir Alþ. og það sé séð, hvort þingfylgi er fyrir þeim málum eða ekki. Og ég hef ekki trú á því, að neitt þýði að kveðja saman nýtt þing 15. febr., fáum dögum eftir að þessu þingi lýkur. Vel getur hér verið um deilumál að ræða, sem ég mun ekki fara út í að rökræða við hv. 7. landsk. Það verður brátt úr því skorið, hvort nokkur þingvilji er fyrir því, að um stefnubreytingu verði þar að ræða.
Það er rétt, að erfiðleikar eru í atvinnumálum, og stafa þeir af ýmsu. En hv. 7. landsk. sagði, að þeir væru meiri fram undan en þeir eru nú. Mér finnst það vafasamt að mála fjandann á vegginn og gera útlitið verra en það er. Það atvinnuleysi, sem nú er talsvert, stafar að vissu leyti af tíðarfarinu. Veðurfarið hefur alltaf mikil áhrif á atvinnulífið og ekki sízt hér í Reykjavík. Og eftir þessa veðurhrinu, sem nú hefur gengið yfir landið, stöðvast um nokkurn tíma ýmis atvinnufyrirtæki, sem rekin eru í sambandi við sjávarútveginn, því að ekki hefur verið hægt að stunda sjóinn. Hv. 7. landsk. sagði, að þetta væri aðeins byrjun að atvinnuleysi, það mundi fara vaxandi. Ég álít þar of mikið sagt. Ég held, að það dragi úr því aftur, og hef að nokkru leyti bent á ástæðuna fyrir atvinnuleysinu.
Það er kominn nógu langur tími frá því Alþ. hófst, eins og hv. 4. þm. Reykv. sagði. Þótt hann hafi hér áður minnzt á atvinnuástandið og þinghaldið og borið fram fyrirspurn í Sþ. í gær, þá viðurkenndi hann, að það hefði ekki þýðingu að kalla Alþ. saman 15. febr. n.k. Ríkisstj. hefur það svo vitanlega í hendi sér að ákveða að kalla þingið saman hvenær sem er á þessum 7–8 mánaða tíma, þar til það í síðasta lagi má koma saman. Og án þess að ég viti nokkuð fyrir víst í þessu efni, þá er það svo, að þeir hlutir geta gerzt í atvinnulífinu hér hjá okkur á þessum mánuðum og í öðrum málum, að margt þykir mér ólíklegra en að þingið verði kallað saman vegna ráðstafana, sem e.t.v. verður að grípa til á þessum mánuðum. Það er ekki útilokað, að Alþ. komi saman fyrr en 1. okt., þó að það sé ekki lagaskylda að kalla það saman fyrr.
Af því, sem hv. 1. þm. Eyf. sagði, mátti ráða, að hann mundi kunna illa við þetta frv. Ég minnist þess, að hv. þm. vandaði um út af þessu, þegar frv. var fyrst borið fram, og skil ég það vel. Það er óviðkunnanlegt að koma með frv. á hverju ári um það, að samkomudegi Alþingis skuli frestað. Mig minnir, að hv. þm. hafi áður bent ríkisstj. á þetta og hún hafi ætlað að taka þetta til athugunar og setja ákvæði um annan samkomudag Alþ. Ég held, að allar þær ríkisstjórnir, sem hafa farið með framkvæmdavaldið síðustu 10–2 árin, hafi horfið að þessu ráði, af því að breytingar á þessu hafa verið settar að einhverju leyti í samband við endurskoðun stjórnarskrárinnar, að þegar hún fer fram, þá yrðu sett ákvæði um það, hver samkomudagur Alþ. yrði eftirleiðis. En hitt er rétt, að ef við sitjum við okkar gömlu stjórnarskrá næstu hundrað árin, þótt hún sé ekki nema átta ára, þá er það alltaf jafnóviðkunnanlegt fyrir því að hafa þennan hátt á. Og ég er kominn á þá skoðun, að við ættum að breyta reikningsárinu. Það gæti verið mikil lausn á því máli að láta það byrja með vorkomunni eða á miðju árinu. Og þá kæmi það af sjálfu sér, að samkomudagur Alþ. yrði upp úr áramótunum, fyrir 15. febr. Það er óþægilegt og slæmt að vera með jólaleyfið inni í þingtímanum, eins og nú er, og hlýtur það að valda truflun á störfum þingsins. — Það er ekki af því, að ég mótmæli þeim röksemdum, sem 1. þm. Eyf. bar fram, að ég treysti mér ekki til þess að beita mér fyrir því, að ríkisstj. fari að taka sig til og afhuga það að setja lög um þetta atriði. Þetta þarf að athuga betur og gera fleiri breytingar en á samkomudegi Alþ. og fjárlagaárinu. Ég skal þó lofa hv. þm. því, að þetta skal verða tekið til athugunar fram til næsta Alþ., hvort við ættum að setja nokkur ákvæði um það atriði, sem hér er nú til umræðu, er giltu meir en eitt ár í senn. En ég trúi því ekki, að hægt sé að fara neina framtíðarleið í þessu núna, og ég vil ekki lofa neinu ákveðnu í þessu efni.