10.01.1952
Neðri deild: 55. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 719 í B-deild Alþingistíðinda. (945)

157. mál, byggingar íbúðarhúsa í kaupstöðum og kauptúnum

Forsrh. (Steingrímur Steinþórsson):

Herra forseti. Ég þarf ekki að hafa langa framsögu fyrir þessu frv. á þskj. 553 vegna þess, að frv. fylgir allítarleg grg., þar sem skýrt er frá því, hvernig þetta mál er fram komið, og nokkrar upplýsingar gefnar um ýmis atriði varðandi nauðsyn þess. Frv. þetta er fram borið í sambandi við frv. það, sem hér hefur verið til umr. fyrir fáum dögum, um ráðstöfun á nokkrum hluta tekjuafgangsins. Þar er svo ákveðið, að nokkur hluti hans gangi til byggingar íbúðarhúsa í kaupstöðum og kauptúnum. Er gert ráð fyrir, hvernig hann skiptist í þrjá staði: til byggingarsjóðs verkamanna, og verði féð lánað til byggingar verkamannabústaða, til byggingar íbúðarhúsa, sem bæjarfélögin standi að til að útrýma heilsuspillandi húsnæði, og loks til smáibúða. Var nauðsynlegt vegna þess samkomulags, sem var innan ríkisstj. um skiptingu þessa fjár og meðferð þess, að bera þetta frv. fram sem breytingu á lögum um opinbera aðstoð við byggingar íbúðarhúsa í kaupstöðum og kauptúnum. Eru það tvær aðalbreytingar, sem hér um ræðir. Í fyrsta lagi er bráðabirgðaákvæði frv., sem er um meðferð þess fjár, sem varið skal til íbúðarhúsa, sem bæjarfélagið byggir samkv. þessum lögum. Það hefur verið samkomulag um það innan ríkisstj. að leggja til við Alþ., að öll þau lán, sem verða veitt af tekjuafgangi ríkissjóðs frá fyrra ári, verði veitt með 51/2% ársvöxtum án tillits til þess, hvert þau ganga. Var þá nauðsynlegt að breyta þeim ákvæðum í l., sem fjalla um veati af lánum. Þess vegna eru borin fram þau bráðabirgðaákvæði, sem eru í þessu frv. En meginhluti frv. fjallar um það, að inn í þessi lög komi nýr kafli um lánagreiðslur til smáíbúðarhúsa, þar sem gert er ráð fyrir, að 4 millj. kr. af tekjuafgangi þessa árs verði lánaðar einstaklingum, sem leitast við að koma upp íbúðarhúsum fyrir sig, aðallega með eigin vinnu, og reyna þannig að koma sér upp húsnæði á sem ódýrastan hátt. Var óhjákvæmilegt að setja einhver ákvæði um meðferð þessa fjár, þar sem ekkert var í lögum áður um þau efni. Er því þessi kafli hér fram borinn.

Ég skal ekki fara langt út í einstök atriði frv., því að ég veit, að hv. þm. hafa gert sér grein fyrir því og áttað sig á því, hver megintilgangur þess er. En eitt, sem borið er fram, er algert nýmæli, — það, að hér skal ekki veita út á fyrsta veðrétt til slíkra íbúðarhúsa, heldur út á annan veðrétt. Er leyfilegt, að á fyrsta veðrétti hvíli allt að 60 þús. kr. Koma þau lán, sem veitt eru úr þessum smáibúðasjóði, til viðbótar því, sem menn geta fengið út á fyrsta veðrétt. Þetta fyrirkomulag er til þess að greiða fyrir því, að þeir, sem byggja hús sjálfir, fái fyrsta veðrétt og geti þá haft fyrsta veðrétt til þess að fá lán út á hann. Ríkissjóður tekur á sig þá áhættu, sem stafar af því. Það getur alltaf verið álitamál, hvernig eigi að koma þessu fyrir. Hér er farin sú leið, að leyft er, að allt að 60 þús. kr. hvíli á fyrsta veðrétti og 30 þús. kr. á öðrum veðrétti. Eru það þá alls 90 þús. kr., ef menn geta notað 1. veðrétt að fullu, Ætti það að vera mikil hjálp til þess að menn gætu komið sér upp íbúð með eigin vinnu.

Í lögum þessum eru ýmis ákvæði um það, hvað viðkamandi bæjarfélag skuli gera í sambandi við þetta, og hefur verið leitazt við að ná samkomulagi við borgarstjóra Reykjavíkur um þessa hluti. Samkv. 2. gr. er gert ráð fyrir því, að ríkisstj. geti falið Landsbanka Íslands eða annarri lánsstofnun að fara með stjórn, reikningshald og starfrækslu lánadeildarinnar. Þær reglur, sem verða settar um þetta, verða gerðar í samráði við ríkisstj. alla. Kemur þá til athugunar, hvernig þessum lánum skuli úthlutað, og fleira í sambandi við það.

Ég sé ekki ástæðu til að hafa fleiri orð um þetta frv., vegna þess að grg. þess upplýsir það nægilega að minni skoðun. Ég vil svo leyfa mér að leggja til, að að þessari umr. lokinni verði frv. vísað til 2. umr. og félmn