18.01.1952
Neðri deild: 61. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 731 í B-deild Alþingistíðinda. (976)
168. mál, ríkisreikningar
Jón Pálmason:
Herra forseti. Út af þeim aths., sem fram hafa komið, sé ég ástæðu til að bæta nokkrum orðum við það, sem ég sagði hér áðan. Viðvíkjandi því, sem hæstv. fjmrh. tók fram varðandi það ástand, sem orðið er um endurskoðun ríkisins, vil ég segja það, að það er náttúrlega allrar virðingar vert að reyna eftir föngum að koma á þeirri lögun, sem hann var að gera ráð fyrir. En ég er hræddur um, að það verði dýr aðferð að fjölga alltaf í endurskoðunardeild fjmrn., þannig að það gæti komið lögun á þá óreiðu, sem hér er um að ræða.
Varðandi það, sem hv. frsm. fjhn., hv. þm. V-Húnv., tók hér fram, þá lítur hann mjög einkennilega á það, hvernig okkar starf, yfirskoðunarmanna, á að vera. Eins og tekið er fram í stjskr. og eins og allir vita, þá er ekki ætlazt til þess, eins og hv. þm. tók fram, að endurskoðendurnir, hverjir sem það eru, fari að endurskoða tölulega í stofnunum ríkisins. Það hefur okkur heldur aldrei dottið í hug, nema þegar um er að ræða einhverja sérstaka reikninga, sem okkur hefur þótt sérstaklega athugaverð útkoman á. Eigi að síður er það talsverð töluleg endurskoðun, sem við framkvæmum, sem er samanburður á spjaldskrárreikningum og fylgiskjölum öllum við spjaldskrá, sem fylgir reikningunum hverju sinni. En svo er það ætlunin, að jafnvel okkar aðalstarf sé að fara í gegnum allar endurskoðunarskýrslur frá þeim aðilum, sem endurskoða hjá stofnunum og starfsmönnum ríkisins, og það er þetta, sem deilan stendur um, hvort það sé hæfilegt eða eðlilegt, að við afgr. frá okkur reikninga, áður en þessar endurskoðunarskýrslur liggja fyrir, og okkar fyrsta aths., sem er það aðaldeilumál, sem hér liggur fyrir, hún sýnir glöggt, hve ástandið er hörmulegt á þessu sviði. Ég tel, að það sé hrein fjarstæða að kenna okkur um það, að ríkisreikningurinn er svo seint á ferð sem nú er og verið hefur, því að það má miklu frekar ásaka okkur fyrir það, að við höfum þó þrátt fyrir allt látið undan í því að skila aths. fyrr en við værum búnir að fá skýringar, og það er þetta atriði, sem ég teldi eðlilegast að Alþ, skæri úr, en það hefur ekki fengizt til þess undanfarin ár, og það er auðséð eftir starfsemi fjhn., að hún gerir ekki ráð fyrir að gera neinar till. í því efni.
Hv. þm. V-Húnv. sagði: Það, sem við fáum í hendur, það er frv. um samþykkt á ríkisreikningnum. — Þetta er rétt, það er lagt fram frv., sem er útdráttur úr einstökum greinum reikningsins, en aðalatriðið er það, sem vísað er til, þ.e. reikningurinn sjálfur og þær aths., sem honum fylgja, og þær úrskurðartill., sem þarna er um að ræða, og það er sérstaklega til þess ætlazt, ef yfirskoðunarmenn vísa einhverju deiluatriði til úrskurðar og aðgerða Alþ., þá sé það verksvið þeirrar n., sem fær þetta mál til athugunar, að gera till. út af því. Það hefur gengið svo undanfarin ár, eins og ég vék að áðan, að fjhn. virðist ekki telja, að það sé um neina athugaverða hluti að ræða eða sé þörf á því að gera neinar till. frá hálfu Alþ. í því sambandi.
Snertandi það, að það sé eðlilegt að afgr. svona reikning ár eftir ár frá Alþ., þá tel ég það mjög vafasamt, eins og ég sagði áðan, og eins og sakir standa, þá mun ég hafa það þannig sem yfirskoðunarmaður, að ég get ekki greitt atkv. með því að afgr. þennan reikning; ég býst ekki við, að ég greiði atkv. á móti því, en það mundi hvergi vera talið eðlilegt, ekki í sveitarfélagi, ekki í sýslufélagi, ekki í bæjarfélagi, ekki hjá bönkum eða neinni stofnun að afgr. reikninga, sem væri sannað að væru tölulega óendurskoðaðir, eins og hér um ræðir. Og það er ákaflega hæpið, hvort það á ekki að vera sú leið, sem farin er og hefði átt að vera farin fyrir löngu, að Alþ. afgr. ekki reikning, sem svona er til kominn, fyrr en væri sannað, að allar endurskoðunarskýrslur fyrir það ár, sem um er að ræða, væru komnar í hendur yfirskoðunarmanna. Þetta er deiluatriði, og það er líka deiluatriði, að því er virðist, við hv. þm. V-Húnv., að það, hvað reikningurinn er langt á eftir, sé sök okkar yfirskoðunarmanna. Þar erum við á annarri skoðun, og væri æskilegt, að úr þessu fengist skorið á Alþ.